Frændur eru frænkum verstir

Að reita til reiði ...Orðatiltækið Frændur eru frænkum verstir er svo sem ekki til en samt upplifði ég nákvæmlega það árum saman þegar annars ágætur frændi minn, nú hamingjusamlega fluttur úr landi, enn oft kallaður Fjandi, gerði líf mitt stöku sinnum að hálfgerðu hlæjandi helvíti ... sem er heldur betur til. Við kynntumst þegar ég var 38 ára og hann 13 árum yngri.

 

Ég man því miður ekki hvað hann sagði á taílenska veitingastaðnum sem var rekinn hér á Akranesi um tíma, á meðan við biðum eftir matnum, en ég gat aldrei farið þangað aftur. Hló samt að þessu þar til ég áttaði mig á því. Akranes er nógu lítill staður til að slíkt geti gerst, þótt stór sé.

Fjandi hefur alltaf verið sérlega greiðvikinn og þegar ég bað hann um að kenna mér að gera orðaleit fyrir Vikunna í Excel, svo ég gæti séð um það vikulega, fór hann að gera þetta fyrir okkur, eldsnöggur og bara greiði - og orðaleitin varð strax afar vinsæl. Ég fann fimmtán orð og sendi honum, hann faldi fjórtán þeirra inni í textanum (til að gera þetta erfiðara) og setti stundum (alltaf) önnur orð sem átti ekki að leita að og finna en fundust nú samt, eins og sést neðst á myndinni sem svo birtist á Flick my life-síðunni fyrir nokkrum árum. Ég beið bara eftir lögreglunni stundum, það kom alla vega eitt óþægilegt símtal frá opinberu embætti ...

 

AsparfellEitt sinn skutlaði hann mömmu heim, þau höfðu hist í fyrsta sinn þennan dag (u.þ.b. 1996) heima hjá mér á Hringbrautinni, og það má fylgja með að hann er ekki sérlega hrifinn af Breiðholti, einhverra hluta vegna. „Þú býrð væntanlega í Breiðholti, ekki satt?“ sagði hann í tilraun til að vera fyndinn. „Ó, jú, ég er í Asparfelli, heldur betur,“ sagði mamma glaðlega enda verulega ánægð með fallegu útsýnisíbúðina sína á sjöundu hæð. Við ókum af stað og þegar við vorum komin upp í Breiðholt og keyrðum Vesturbergið í átt að Asparfelli sagði fjandi með leiðsögumannsrödd: „Hér til hægri fer nú fram sjoppurán ... og á vinstri hönd má sjá að verið er að ráðast á gamla konu.“ Ég grenjaði úr hlátri en hlátur mömmu varð sífellt þvingaðri, þessi frændi dóttur hennar var kannski ekki eins indæll og hún hafði haldið. Svo sagði hann rétt við bæjardyrnar: „Er þér sama þótt ég fleygi þér út á ferð? Ég vil ekki að hjólkoppunum verði stolið!“ Þá var mömmu allri lokið. Hún þakkaði samt fyrir farið, hún er kurteis, en tók fjanda ekki í sátt fyrr en tæpum tuttugu árum seinna. Maður dissar ekki Breiðholt, aldrei! Ekki einu sinni í gríni. (Ég hef án efa sagt frá þessu áður hér, þetta er lengri útgáfan - og þetta er líka skrifað eftir minni).

 

Ég reyndi sjálf stundum að nota þetta síðasta og sagði kannski kurteislega við bílstjórana mína á leið 57 þegar þeir hægðu ferðina áður en ég hoppaði út við Vesturlandsveginn: „Þú mátt alveg henda mér út á ferð, ég skil alveg að þú viljir ekki að hjólkoppunum verði stolið, þetta er svo hræðilegt hverfi,“(ég var að fara í Höfðabakka). „Hvaða vitleysa,“ tautuðu flestir þeirra, eins og þeir færu að fleygja farþegar út á ferð ...

 

Þessi frændi fékk hina Trump-jólakúluna sem ég keypti (sjá Fréttablaðið í gær) þannig að hann er kannski sá eini eftir af vinum mínum, ættingjum og kunningjum, sem allir eru brjálaðir út í mig eftir viðtalið í Fréttablaðinu í gær, um að ég myndi aldrei treysta þeim til að kaupa nógu ljóta jólakúlu handa mér. Ég notaði daginn í gær og morguninn og hádegið í dag, til að benda fólki á að blaðamaðurinn hefði misskilið mig og ég hefði reynt að leiðrétta þetta í bloggi gærdagsins, en allir segja: „Of lítið, of seint, farðu til fjandans.“ Þannig að ég þarf mögulega að verja jólunum í Frakklandi.

 

Dagurinn í dag fer í vinnu en ég verð með fótbolta á kantinum, verulega stór dagur í dag, Chelsea núna, á eftir Man. Utd. og svo Liverpool gegn Arsenal. Ef einhver slysast í heimsókn fær hann verulega gott kaffi en verður að sætta sig við að hlusta á fótboltalýsingu og mig hlaupa til að sjá endurtekningu á marki. Ég á mjög skilningsríka vini ... eða nei, ekki lengur ... alveg rétt.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 167
  • Sl. sólarhring: 218
  • Sl. viku: 348
  • Frá upphafi: 1528161

Annað

  • Innlit í dag: 136
  • Innlit sl. viku: 274
  • Gestir í dag: 134
  • IP-tölur í dag: 131

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband