Þarf alltaf að vera Ásta ...

Útvarp AkranesÞá er dagskráin hjá Útvarpi Akranes, 95.0, komin út, ótrúlega þétt og skemmtileg ... minn þáttur (um bækur) verður kl. 13.30 á laugardaginn. Ég fæ þrjár frábærar konur í spjall um bækur. Þátturinn heitir Þarf alltaf að vera Ásta? Og svarið er já. Ástur eru afar mikilvægar í bókaheiminum á Akranesi, eins og mun koma í ljós í þættinum, alveg jafnmikilvægar og Evur eru í bókaútgáfu hér og Ólar eru sem tæknimenn ÚA. Ásta hin fyrsta í bókasafninu leiddi mig ljúflega yfir í ástarsögurnar þegar ég var búin með barnadeildina í æsku. Hún var svo frábær, fann alltaf eitthvað gott að lesa fyrir okkur lestrarsjúku krakkana.

 

Það var frekar algengt að sjá í svokölluðum minningabókum hjá Skagastelpum, 10 til 11 ára, að uppáhaldsbækur þeirra (okkar) bæru ástríðuþrungna titla, Ást og örlög, Ástir og meinleg örlög eða jafnvel Hjónaband í hættu - ég móðgaðist virkilega mikið út í mömmu þegar hún flissaði yfir minningabókinni minni. Ég var svo stutt frá því að verða fullorðin þarna, eignaðist minn fyrsta varalit 11 ára, ljósfjólubláan sem lét tennurnar virka gular, og mátti svo ekki nota hann.

 

Armani heima hjá sérVissulega ábyrgðarhluti að setja ekki viðvaranir á sumar bækur. Fyrstu eiginmenn mínir ollu ekki beint vonbrigðum en þeir komu ekki fram við mig eins og prinsarnir og lávarðarnir í bókum Barböru Cartland komu fram við fagrar og eftirsóttar konur. Sá fyrsti var vörubílstjóri sem var nú í fínu lagi, byrjaði ekki Elvis einmitt sem vörubílstjóri? En minn reyndist ekki sérlega músikalskur svo þá var það bara næsti.

Fyrstu vinnustaðir mínir á fullorðinsárum voru verulega óspennandi eftir að hafa lesið bæði Beverly Gray-bækurnar og allt sem til var á íslensku eftir Agöthu Christie. Að fara í sveit var ekkert líkt Ráðskonunni á Grund, bara púl og vissulega stöku dansleikir (án aðalsmanna þó). Og svo framvegis.

 

Svo er sagt að það sé erfitt að alast upp nú til dags. Ég hlæ með ekka og mótmæli, bendi á sem dæmi sérlega erfiða bernsku mína og unglingsár þar sem sumar bækur, málshættir og orðatiltæki blekktu mann til að sætta sig við hvað sem var. Til dæmis sársaukafull blankheit, eða að fá mjög litla vasapeninga, ég fékk lengi 10 kr. á viku þegar ís með dýfu kostaði 12 kr. Hugsið ykkur grimmdina. Samt þrælaði ég alveg heima stundum, ryksugaði, þurrkaði nýuppvaskað leirtau og hellti upp á Kaaber-kaffi fyrir mömmu.

 

Nú til dags má segja að samfélagsmiðlar hafi mótandi áhrif á fólk en á mínum ungdómsárum voru það helst málshættirnir. Hilda systir heldur því enn fram að morgunstund gefi gull í mund, samt er hún ágæt, eiginlega bara mjög fín. Nú þegar reynsla mín til áratuga hefur sýnt hversu gott er að sofa út. Dýrmætt að fá nægan svefn, það lengir lífið að sofa sína 8-10 tíma, það er sannað! 

 

BrúðkaupsbrosEngin er eik án kvista hélt mér t.d. í heljargreipum allt of lengi. Hvað þýddi þetta? Að ég yrði að giftast manni þótt hann hefði ótal „kvisti“, jafnvel BÆÐI sötraði og smjattaði, af því að hinn fullkomni maður væri ekki til? Vá, hvað ég sætti mig við marga kvisti í fyrstu hjónaböndum mínum. Svo bara komst ég að því með árunum að til eru virkilega margir nánast fullkomnir menn.

 

Við höfum oft hlegið að þessu, ég og minn fyrsti sem var nú ágætlega fullkominn, valinn eftir útliti vissulega en reyndist fínn að innan að auki. Hann tekur undir þetta sem ég segi en hann var ögn fyrri til að finna hina alfullkomnu konu en ég hef ekki enn fundið minn alfullkomna gaur. Mín leit er ekkert brjálæðislega áköf núorðið. Ég verð róleg til sjötugs.

 

Space manTvennt er kyn að manni hverjum, er t.d. málsháttur sem ruglaði mig lengi og hefði sennilega fengið mig fyrir rest til að efast um kynhneigð mína ef ég væri ekki svona vitlaus í karlmenn. (Mamma, þetta er djók).

 

Næstneðsta myndin sýnir vandræðin sem geta komið upp í annars sæmilega hamingjuríkum hjónaböndum. Þegar lagið Space Man kom út rétt fyrir aldamót varð ég svo hrifin af söngvaranum að ég hætti með þáverandi kærasta löngu áður en kom í ljós að sæti söngvarinn (sem geimvera í bláu pilsi, ekki sem viðskiptafræðingurinn) var eiginlega ekkert fyrir konur. Neðsta myndin er af honum (í viðlaginu, sem geimvera). Kíkið endilega á þetta löngu gleymda næntís-lag á YouTube, hljómsveitin heitir Babylon Zoo og lagið var svokallað one hit wonder, eða eina lag BZ sem sló í gegn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 41
  • Sl. sólarhring: 97
  • Sl. viku: 222
  • Frá upphafi: 1528035

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 173
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband