Safaríkur kalkúni og safaríkt kannski ekki-hneyksli

ÞakkargjörðarveislaVeitingastaðurinn Grjótið, sá nýjasti hér á Akranesi, býður upp á sérdeilis skemmtilega nýjung nú um helgina. Eða Þakkargjörðarmáltíð fim., fös. og lau. - til að borða á staðnum eða taka heim. Mína fyrstu slíka máltíð fékk ég árið 1991 í Árbæ fyrir klíkuskap (heppilegur kærasti) og síðan aftur 2016 í Conway, WA, USA, og hef allar götur síðan þráð að lenda í félagsskap fólks sem hefur áhuga á slíkum boðum og heldur þau ... en engan fundið. Sumir vilja bara þorrablót, bolludag og slíkt sem er líka ágætt. LÍKA.

 

Eftir seinna hraðprófið á dögunum, þegar Skaginn var undirlagður af covid (bataknús til Grunarfjarðar sem glímir við þennan fjanda núna), hélt ég lítið kökupartí í frábærum félagsskap. Sú sem skutlaði mér og sú sem við hittum á leið í hraðpróf mættu og snæddu tertur og brauðmeti með okkur stráksa. Nú verður leikurinn endurtekinn, með enn meiri fínheitum, safaríkum kalkúna, vonandi, og meðlæti, meira að segja verður graskersbaka í eftirrétt. Ég spurði, eins og hver annar hnetuhatari, hvort væru hnetur einhverju (t.d. fyllingunni) en fékk að vita að svo væri ekki, það fylgdu hnetur með Waldorf-salatinu, fólk gæti sett þær út í, ef það vildi. 

 

SkonsupartíÍ morgunsturtunni hugleiddi ég þetta svolítið. Væri ekki snjallt að stofna klúbb, bara við þrjár? Svo fór ég að hugsa um Hekls Angels og Dúlluklúbbinn (heklklúbbar) sem ég hef vanrækt hroðalega vegna tímaskorts ... Önnur vinkonan var búsett í einu af Norðurlöndunum í nokkur ár, hin bjó á Bretlandseyjum og þetta gæti gert umræðurnar ansi hreint áhugaverðar. Heimaalinn kálfur og það allt. Ég er sæmilega sigld, eftir siglinguna um Karíbahaf jólin 2018, ég var búsett í London í 51 viku árið sem Freddy Mercury gerði allt vitlaust með Bohemian Rapsody, og rest svo sem bara heimsóknir til Elfu í Ameríkunni.

 

Hvað um svona „yfirstéttalegan“ snobbklúbb (ég bý í 170 Akranes) með fínu nafni? Við gætum borðað enskar skonsur með hleyptum rjóma og sultu, drukkið dýrindiskaffi með og sagt svo spennandi leyndarmál að það munaði minnstu að við þyrftum að drepa hver aðra til að ekkert spyrðist út. Setningar á borð við: „Algjör óþekktarangi, þessi ráðherra ...“ eða „Sagði Guðni þetta virkilega?“ Kumra svo svolítið, alls ekki hlæja.

 

Í fyrsta sinn á ævinni sit ég á safaríkri kjaftasögu og ég verð eiginlega að hafa heilan klúbb í kringum hana en ég nenni ekki að baka enskar skonsur. Annað ... engin okkar er sérlega mikið fyrir kjaftasögur sem er galli og slær eiginlega snobbklúbbinn af áður en hægt er að stofna hann. Kannski verður þetta bara árlegur viðburður, þakkargjörðarmatur um þetta leyti og við höldum áfram að tala um alþjóðastjórnmál, endurvinnslu og verndun svæðislýsinga smárása í hálfleiðurum (ég kem því alltaf að).

 

 

Ef einhver kýs (dirfist) að spyrja mig út í þetta safaríka hneyksli (eða ekki-hneyksli) verða spurningar undir öllum kringumstæðum að hefjast á: „Er þetta kannski sagan um xxxx sem gerði xxx með xxx og svo xxx?“ Það heitir að spyrja upplýsandi spurninga og ég mun hafa fleira að segja í boðinu nema allir hitti á það rétta. Tillögur að öðrum umræðuefnum eru líka vel þegnar. Og að nafni á snobbklúbbinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 41
  • Sl. sólarhring: 97
  • Sl. viku: 222
  • Frá upphafi: 1528035

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 173
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband