Flott veisla en léleg byrjun á kjaftó

KalkúnapartíKalkúnaveislan gekk ljómandi vel í kvöld. Kalkúnninn afar góður og meðlætið alveg geggjað. Mér fannst allt of sjoppulegt að rétta stelpunum og fóstursyninum take away-bakka og segja gjörsovel, svo ég raðaði á fínt fat og fyllti nokkrar skálar af góðgætinu.

 

Önnur, sú sem bjó á Bretlandseyjum mætti með rauðvínsflösku sem var ákaflega notalegt en við erum samt greinilega allar frekar lítið í drykkju en ég hafði keypt malt&sappelsín-blöndu sem passaði líka vel við. Hvað býr maður til úr rúmlega hálfri rauðvínsflösku? Er hægt að jólaföndra eitthvað úr rauðvíni? Eða kannski bara bjóða stelpunum aftur? Ég gæti það því ég fékk fjóra takameð-bakka í Grjótinu og við fjögur borðuðum okkur pakksödd af þremur - mér yfirsást fjórði pakkinn einhvern veginn því allt var orðið svo troðfullt í skálum og á fatinu eftir þrjá - hann stóð í allt kvöld neðstur með þá tómu ofan á sér en er örugglega í lagi. Í lok kvölds fór ég og tók til, eins og maður gerir þegar maður tekur reglulega D-vítamín. Þá hverfur það sem sumir halda að sé leti. Hér í gamla daga hefði ég bara slökkt ljósin, lokað eldhúsinu og ráðist svo á ósköpin eftir vinnu daginn eftir, þá var maður nú ungur og hress og gat tekið trylling  með uppþvottabursta í hönd, enga uppþvottavél. En þá hefði líka eyðilagst matarbakkinn sem bíður nú í ísskápnum eftir að gleðja bragðlaukana á morgun.

 

Ég á sem sagt handa mér í matinn fram á laugardag, stráksi verður að heiman um helgina, það var meira að segja líka talsverður afgangur af þessum þremur skömmtum ... mjög vel útilátið.

 

Tea with the queenSlúðurhefðarklúbburinn var kannski ekki svo góð hugmynd með kalkúna ... ég lét sprengjuna falla eftir að hafa undirbúið jarðveginn og gefið í skyn að þetta væri eflaust vitleysa en ... heimildarmaður minn (karlkyns) væri nú ekki vanur að fara með fleipur. Þá fékk ég alvörusprengju í andlitið:

 

„Já, ég hef einmitt heyrt þetta, við vorum að ræða það í vinnunni í dag, hvort þetta gæti verið,“ sagði önnur en hin hafði ekkert heyrt en vinnur þó á enn stærri vinnustað. „Þessi aukaviðbót þín, Gurrí mín, gerir söguna vissulega miklu meira krassandi,“ hélt hún áfram, „en jafnframt ótrúlegri ... Ertu viss um að það hafi ekki bara blandast saman tvær sögur?“

 

Ég er ógeðslega léleg í þessu, viðurkenni það alveg, gleymi líka oft sögum, alveg sérstaklega ef ég er beðin fyrir þær, og umræður okkar fóru bara um víðan völl eftir litlu hvellhettuna mína sem sprakk ekki einu sinni - t.d. um hvernig var í sveitinni þegar við vorum litlar (við urðum allar fyrirvinnur heimilisins á barnsaldri, nánast). Hvorug þeirra lenti þó í þeim hryllingi að þurfa að borða leikfélaga sinn eins og ég ... (áður en þið hringið í lögguna ... þetta var kálfur). Önnur vinkonan slapp alfarið við uppvask í sinni sveit (hjá frændfólki) og fékk að vera í útiverkum með bóndanum, heppin. Ég var oft næstum drukknuð í uppþvottavatninu.

 

Ég fékk sem sagt ekki EINA kjaftasögu í kvöld! Léleg byrjun nema þetta verði bara kalkúna- og sveitasöguklúbburinn DIG (upphafsstafir okkar þriggja) Samt er DIG (að grafa) tilvalið nafn á kjaftaklúbb, sögur sem þarf að grafa upp! Til að dulbúa svo nafnið ... Klúbburinn Grafa? Allir myndu halda að við værum gröfukarlar og við gætum óáreitt/ar grafist fyrir um allan skrambann og kumrað svo yfir skonsum og gúrkusamlokum einu sinni á ári. Ríkisstjórnir eiga eftir að segja af sér!!! 

 

Ég fékk svohljóðandi inntökubeiðni í snobbhefðar-skonsukjaftaklúbbinn á miðvikudag: Var þessi klúbbur ekki örugglega stofnaður utan um mig? Hópur ólyginna hefðarkatta?“ spurði umsækjandinn. Fyrir þetta held ég að ég verði bara að stofna klúbb þrátt fyrir slæma byrjun - og bjóða þá kannski eingöngu upp á „skonsur“ með hleyptum rjóma og sultu. Eða svona High Tea-dæmi? Er ekki Apótek með slíkt? Það væri líka hægt að skreppa þangað árlega. Og Gröfu-fólk þá búið að safna SÖNNUM sögum í sarpinn í 364 daga. Brilljant!

 

Enskar skonsur

 

Talandi um enskar skonsur - English Muffins: Mér finnst að Costco á Íslandi ætti að flytja þær inn.

Fékk oft þessar sjúklega góðu skonsur hjá Elfu úti í Ammríku - þær (eða fyrirtækið) heita meira að segja Thomas, eins og maðurinn hennar Elfu.

 

Ég verð í fríi á morgun, þarf að undirbúa þáttinn á laugardaginn; Þarf alltaf að vera Ásta? Svo ég geri fátt nema lesa, hugsa, borða kalkún, lesa, lesa og drekka kaffi, pakka jú niður fyrir helgardvöl drengsins - og kannski athuga hvort einhver geti prentað út handritið að þættinum fyrir mig ... eða hlaða iPadinn? Ég hlýt að geta nýtt tæknina eitthvað. Ætli ég þurfi að taka geisladiska með eða er öll tónlist til hjá þeim? Er ljótt að stríða hlustendum með því að hafa alla viðmælendur með sama nafni? Nei ... 

Vá, hvað ég hlakka til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 41
  • Sl. sólarhring: 97
  • Sl. viku: 222
  • Frá upphafi: 1528035

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 173
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband