16.12.2021 | 22:37
Stríðið sem bara harðnar og ... afsakið, bold
Það er kominn svo mikill tryllingur í umræðuna og stundum er hreinlega erfitt að kíkja á feisbúkk þar sem hinu ágætasta fólki (læknum, vísindafólki) er líkt við fjöldamorðingja. Umræðan er komin þangað. Við hverja einustu frétt sem tengist kórónuveirunni kemur nú fjöldi athugasemda (skipulagt?) um meinta skaðsemi bólusetninga - pent orðað. Mér skilst að bólusetningum fyrri tíma hafi einnig verið mótmælt og gott ef ekki var einnig talað um tilraunir.
Það er að verða hæpið hjá meirihlutanum (bólusettum) að láta nægja að glotta bara og hrista hausinn yfir minnihlutanum (óbólusettum, ekki samt öllum). Það þarf að svara, lið fyrir lið, hrekja það sem er rugl og útskýra það sem er satt. En sennilega tekst ekki að snúa neinum. Samt gott að leiðrétta það sem rangt er ... ef einhver sannleikur er í einhverju, þá drukknar hann í öllu bullinu sem flýtur með. Eins og bullið um að bólusettir megi ekki gefa blóð.
MYND: Skjáskot af einu frekar meinlausu kommenti um Þórólf sóttvarnalækni, undir frétt RÚV af einhverju bólusetningatengdu. Ógn við mannlíf í landinu? Ætli það. Efra kommentið er um friðargöngu og er deilt (skipulega?) út um allt á Facebook núna, og ég spyr: Af hverju er mótmælaganga gegn bólusetningum barna kölluð FRIÐARGANGA? Er ekki verið að ræna nafninu af friðarsinnum sem hafa gengið fyrir friði undir þessu nafni á Þorláksmessu árum saman? Til að fá fleiri í gönguna?
Er ekki hægt að setja algengar staðhæfingar beggja stríðsaðila í eins konar spurt & svarað á aðgengilega síðu? Fjölmiðils eða sóttvarnayfirvalda?
Alvörurök, hlekkir og fleira? Það má ekki vanmeta þetta stríð sem er því miður farið að kljúfa vinahópa og fjölskyldur - og rangar upplýsingar, hvaðan sem þær koma, geta verið hættulegar. Ef ég væri betri í ensku, t.d. menntaður líffræðingur og ekki í 180% vinnu myndi ég gera eitthvað - en kannski ekki breyta eigin bloggsíðu (afsakið, fjölmiðli) í áróður, ekki þegar ég er byrjuð að horfa á boldið aftur.
Svo eru það þau sem mótmæla þessum hræðsluáróðri ... því að tyggja tölur ofan í fólk alla daga sem geri það ofsahrætt (og séu notaðar til að hefta frelsi fólks). Ég mótmæli harðlega, þekki engan sem óttast að heyra smittölur dagsins, ekki síðan í fyrra alla vega þegar við vissum nánast ekkert um veiruna. Fólk kinkar kolli, það sem nennir að hlusta á fréttir, og heldur svo áfram að panta miða á sína tónleika, fara út að borða, kaupa jólagjafir og slíkt, og jú, grímur, spritt, hraðpróf og bara það sem fylgir því að halda áfram sem eðlilegustu lífi. Við höfum verið ótrúlega frjáls á Íslandi miðað við mörg önnur lönd.
En hva, annað og mun meira spennandi; svo virðist sem Hope (dóttir Brooke) sé búin að endurheimta dóttur sína sem hún hélt að hefði fæðst andvana en Steffí (dóttur Ridge) ættleiddi (til að fá leikfélaga fyrir dóttur sína) án þess að vita móðernið, Steffí hefur lengi verið keppinautur Hope um ástir Liams ... sem er faðir beggja stúlknanna, þá eldri á hann með Steffí og yngri með Hope, sem hann er með núna. Löng saga.
Mynd f.v.: Hope, Liam, Steffí.
Ridge á líka soninn Tómas sem elskar Hope af mikilli þráhyggju, það hefur eitthvað mikið gengið á mánuðina þegar ég horfði á eldgos í sjónvarpinu alla daga, en Tómas er farinn að daðra við Zoe (sem er, held ég, dóttir læknisins og spilafíkilsins blanka sem rændi barninu af Hope og seldi Taylor, mömmu Steffíar, hún vildi að barnið sem Liam og Steffí eiga saman eignaðist leikfélaga ... hafði ekki heyrt um bangsa eða hreinlega hvolp. Ridge reif skilnaðarpappírana í þætti dagsins og sagði Brooke að hann elskaði hana of mikið ... hann þoldi víst ekki hversu illa Brooke talaði um Tómas, son hans, þegar hann hræddi greinilega líftóruna úr Hope, dóttur Brooke, með ástreitni. Nú sé ég eftir að hafa hætt öskrandi að horfa á þessa þætti. Mér fannst dregið um of á langinn að Hope fengi barn sitt aftur þegar fleiri en þrír (þjóð veit þá þrír vita) vissu af samsærinu um að ræna af henni barninu. Hvernig getur hún allt í einu deilt forræði lítils drengs (ekki sonar hennar hennar) með fyrrnefndum Tómasi, allt í einu klikkhaus og eltihrelli, sem hún treystir ekki (og er að nota Zoe til að róa alla í kring). Nú er eiginlega spurning um að skreppa austur á firði og múta Svölu til að segja mér hvað hefur eiginlega gerst. Svo er komin einhver ný kona, alveg bjáluð í Ridge, og vill eyðileggja hjónaband hans og Brooke, veit sennilega ekki af rifnu skilnaðarpappírunum, og sú kona er góð vinkona Tómasar sem viðurkenndi fyrir henni að hann ætlaði sér Hope, hann geti beðið ... múahaha
Úff, ég skildi ekki helminginn af þessu sjálf. En ég er sennilega fallin. Og bíð spennt eftir því að dæturnar sem Liam á með Hope og Steffí verði gjafvaxta, það gerist hratt í boldinu, og fari að bítast um einhvern sjarmörinn.
Á morgun kaupi ég restina af jólagjöfunum og afmælisgjöf handa Hildu sem verður 39+ á laugardaginn. Fyrst ætlum við stráksi að fara á Grjótið og fá okkur hádegismat, hálfgerðan KFC-kjúkling ... með kartöflumús.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 15
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 645
- Frá upphafi: 1525006
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 550
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Sæl, vissulega er hlaupinn hiti í mannskapinn. Við sem höfum sett okkur vel inn í málin eins og um covid-bólusetningar barna okkur blöskrar þegar aðrar eins falsfréttir eru bornar fram og sjá má í fjölmiðlum hérlendum. Innan hópsins sem beitir sér gegn þessu er alls konar fólk en ekki bara sérvitringar sem eru á móti bólusetningum almennt. Í okkar hóp eru líka covid-bólusettir einstaklingar sem t.d. hafa fengið vondar aukavverkanir og líka einstaklingar sem telja bóluefnin geti gagnast ákveðnum hópum en alls ekki börnum. Allir óháðir læknar og vísindamenn sem ég hef kynnt mér segja það sama, það er meiri áhætta en ávinningur á því að covid-bólusetja börn. Það er svo misjafnt hvað sérfræðingarnir taka sterklega til orða um hættuna. Ég ætla að leggja til að þú kynnir þér orð þessa ameríska sérfræðings, umræðan um bólusetningar barna hefst á mín. 20:
Dr. Scott Atlas on Vaccine Mandates for Children, Natural Immunity, and Florida’s COVID-19 Surge (theepochtimes.com)
Auður (IP-tala skráð) 17.12.2021 kl. 09:19
Mér finnst alltaf gaman að umræðum um Covid-19. Mig langar alltaf að vita hvaða bóluefni eru fyrir mig. Vegna þess að það sem ég heyrði hingað til er aðeins hugarstjórnun og breyting á DNA okkar. Ég sé enga ástæðu til að setja okkur og börnin okkar í hættu og ekki bólusetja, sama hver eða hversu mikið læknar um allan heim eru að sanna að bólusetning sé röng.
Сoworking Göteborg (IP-tala skráð) 17.12.2021 kl. 11:11
8.12.2021:

Coronavirus: Quite obvious that vaccinated people are far more likely to avoid intensive care
Þorsteinn Briem, 17.12.2021 kl. 12:55
3.12.2021:

Coronavirus: More and more children in hospitals
15.12.2021:
Coronavirus: Vaccination of children aged 5-11 begins
Þorsteinn Briem, 17.12.2021 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.