10.2.2023 | 17:14
Sjokkerandi sambandsslit og vinir okkar, Danir
Æ, er ekki betra að vera svolítið dipló og sýna kurteisi í samskiptum, er ekki tekið meira mark á manni þannig? spurði ég nýlega í stuttri pásu til að horfa á helstið í fréttunum.
Bíddu, bíddu, hatar þú herbergisþernur? spurði maðurinn minn gáttaður. Augu hans skutu gneistum. Skýring á tilveru hans: Ég hafði heitið mér því eftir síðasta Valentínusardag (og bolludag) að ná mér í mann innan árs. Við erum auðvitað ekki gift, enda bara þekkst í fimm daga þegar þetta samtal fór fram.
Ráða ekki fyrirtæki hvern þau vilja hafa sem andlit í auglýsingaherferðum sínum? spurði ég síðar sama kvöld. Sérstaklega ef þau vilja ekki særa viðkvæma hópa fólks, þú veist? bætti ég við.
Hann hafði verið á Facebook eins og ég og svaraði mér undrandi: Bíddu, bíddu, bíddu, BÍDDU! Þú hatar ekki bara skúringarkonur, heldur líka samkynhneigðar söngkonur? Hvar er málfrelsið? Hvert fór þessi æðislega Gurrí sem ég kynntist?
Ég reyndi að segja honum að ég hataði sannarlega engan og útskýrði að ef ég yrði til dæmis fengin til að vera andlit Íseyjar-skyrs myndi það mögulega særa allt almennilegt KFUM-fólk. Jú, ég gagnrýndi ákaft eitt árið alla sumarbúðastyrkina sem þau samtök fengu frá hinu opinbera, á meðan sumarbúðir systur minnar fengu ekkert, þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði og rúmlega það. Viðbrögðin hefðu verið ansi sterk þótt ég hafi nú bara verið að gagnrýna styrkveitingarnar en ekki KF- Hann greip fram í fyrir mér:
OMG, hatarðu KFUM? Þú fyrirlítur kannski bara allt gott og sannkristið fólk? Ertu kannski í Siðtrú, eða hvað sem þetta félag satans heitir?
Hann þagnaði og hóf að taka saman dótið sitt sem hann hafði smátt og smátt komið með í sambúðina, eins og gerist. Sambúðina sem hafði lofað svo góðu. Það yrði þrautin þyngri að koma flyglinum niður þröngan stigaganginn, en það tókst. Ekki að spyrja að ÞÞÞ. Ég vonaði heitt að hann gleymdi Egginu, þeim flotta hönnunarstól, og háa borðlampanum sem er eins og lampinn hjá Gísla Marteini, ógeðslega flottur. En öllu lauk þarna í einu vetfangi, með einu samtali, vissulega okkar fyrsta vegna ástríðnanna sem gripu okkur stöðugt og höfðu komið í veg fyrir spjall. En maðurinn, ég man ekki einu sinni hvað hann heitir, ef ég vissi það þá nokkurn tíma, tók hvern einasta hlut með sér og hvæsti í kveðjuskyni: Er ansi hræddur um að sýnatökupinnarnir hafi sett gat á heilann í þér eins og hinum hræddu sauðunum. Svo fussaði hann alla leiðina niður stigana.
Valentínusardagurinn verður sem sagt ömurlegur. Ekki einu sinni hægt að hugga sig við köku ársins því hún er með hnetumarensbotni, það vantar bara rúsínur, möndlur og döðlur til að fullkomna hryllinginn. Hvar eru femínistar núna?
MYNDIN: Þessa mynd úr svefn- og vinnuherbergisglugga Himnaríkis tók ég með gemsanum mínum í enn einni lægðinni í janúar og sendi hana á Facebook-síðu sem heitir View from my Window, þær eru nokkrar til ... (þessi með 3,5 millj. meðlimi). Mér leið eins og Ronaldo fótboltamanni líður örugglega þegar hann skellir einhverju á Facebook, hann fær óhugnanlega mörg læk og komment á fyrstu sekúndunum og tölurnar hækka hratt. Það voru komnir vel yfir 400 manns sem höfðu látið sér líka vel við myndina mína eftir tíu mínútur og nákvæmlega núna, eftir bráðum sex daga eru líkendur rúmlega 42 þúsund!!! Kommentin 1.200 talsins og deilingar 183. Þónokkuð margir þekktu Akranes, höfðu komið hingað og létu vel af. Minntust á vitann (hæ, Hilmar), Langasand og Kaju, frábæru heilsubúðina með fínu kaffihúsi innanborðs. Konan sem talaði um Kaju og átti ekki orð yfir því hvað snúðarnir þar væru góðir sendi mér myndir (í kommentunum) frá Akranesheimsókninni.
Ég veit ekki hvort við Íslendingar getum í alvöru miðað við Dani í alls kyns mikilvægum málefnum þar sem nágrannaþjóðir okkar eiga að vera svo frábærar og gera allt rétt í öllum málum ... en við erum svo ofboðslega ólík þeim, eiginlega ólík flestum öðrum þjóðum í raun. Vinkona mín bjó ytra í nokkur ár þar sem hún nam fræði sem voru ekki kennd hér. Ekki arkitektúr en ég segi ekki meira. Margt sem kom vinkonunni á óvart, flest gleðilega en annað ekki, eins og gengur. Eitt sinn hringdi hún í danska kunningjakonu sem átti dóttur jafngamla hennar og spurði hvort væri ekki sniðugt að leyfa stelpunum að hittast og leika sér saman. Kunningjakonan samsinnti þessu, þetta væri voða sniðugt, jú, hún ætti lausan laugardag í viku 27, sagði hún. Ha? hváði vinkona mín sem meinti þennan sama dag. Ekki eftir fimm vikur. Það var þarna sem hún komst að því að allt er skipulagt með löngum fyrirvara hjá svo mörgum Dönum. Eitt sinn fór hún í gönguferð og ákvað að kíkja óvænt í kaffi til skólasystur sem hún þekkti ágætlega. Áttu ekki kaffi handa mér? spurði hún þegar konan kom til dyra. Andlit konunnar datt niður á þröskuld en svo sagði hún já, gaf henni kaffi og þær spjölluðu nokkra stund áður en vinkona mín fór heim. Þetta vakti aldeilis lukku og varla talað um annað í skólanum næstu vikurnar, öllum þótti þetta bæði djarft og stórsniðugt en vinkona mín kom engu spontant-trendi af stað samt. Eitt sinn fóru hún og maðurinn hennar í partí. Hann og dönsku karlarnir drukku óspart þetta kvöld og voru eiginlega afvelta ansi hreint snemma kvölds, að mati vinkonu minnar. Hún stakk upp á því að þær konurnar skelltu sér á pöbb eða skemmtistað og leyfðu þessum körlum að eiga sig. Þessi tillaga vakti mikla undun og þótti allt of uppreisnargjörn, þær tóku þetta alls ekki í mál.
Svo á ég aðra vinkonu sem var í heimsókn í Danmörku eitt árið, mögulega vinnutengdri. Henni til heiðurs var boðið upp á ógurlega fínt smörrebröd-hlaðborð. Hún, sjálfur heiðursgesturinn, dreif sig í að fá sér á disk en allt í einu skall djúp þögn á, fólk starði á hana en reyndi svo að láta á engu bera. Hún komst örlítið seinna að því að hún hafði sett ranga tegund brauðs undir rækjurnar, dökkt eða hvítt ... og setti ekkert dill eða setti dill, hún mundi þetta ekki nákvæmlega. Eitthvað slíkt. En ... Dönum til varnar: Okkur Íslendingum myndi nú bregða í brún ef fólk á þorrablóti borðaði harðfiskinn með rófustöppu. Annars þekki ég konu sem setur alltaf púðursykur ofan í linsoðna eggið sitt á morgnana. Og veit svo sem líka um fólk sem hrærði í hvelli í kokteilsósu með Londonlambinu á aðfangadagskvöld 1978 þegar kom í ljós að hvorugt okkar kunni að búa til brúna sósu ...
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 9
- Sl. sólarhring: 38
- Sl. viku: 473
- Frá upphafi: 1526442
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 408
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.