7.3.2023 | 22:36
Fólkið með frasana og Ölver minnir á sig
Skagamær hef ég verið í 17 ár í þessari þriðju umferð búsetu hér síðan 1961 og nú hefur fóstursonurinn búið hjá mér í 6 ár, upp á dag. Á þessum 17 árum hef ég gert margt skemmtilegt en ansi hreint lítið um djamm hérna. Pöbbinn sem ég man ekki hvað heitir var á horni Skólabrautar og Vesturgötu sem allir vita að er ekki í göngufjarlægð fyrir t.d. mig í 170 Akranes, hvað þá 210 Akranes uppi í Grundum og enn nýrri hverfum. Barinn var rétt hjá kirkjunni en staðsetningin skýrir eflaust arfalélega kirkjusókn þeirra bíllausu af því að innanbæjarstrætó tekur ekki bara síestu um miðjan morgun virka daga, heldur ekur hann hvorki á kvöldin né um helgar. Vínbúðin er aftur á móti lengst austur í rassgati, rétt hjá Húsasmiðjunni og þar, þannig að ég gerðist bara bindindiskona og einbeitti mér að kaffidrykkju. Það er eitthvað sjoppulegt við að burðast með bokkur í bónuspoka í strætó. Hælaskór, varalitur, pels og Benz, eða sleppa því.
Vissulega einir rokktónleikar með Dúndurfréttum rétt fyrir covid, nokkrum sinnum í bíó, upplestur á jólabókum í bókasafninu í nóvember, afmælisveislur, málverkasýningar. Allt skemmtilegt og án sukks. Svo fór doktor Kamilla að vinna á Akranesi. Hún er dönsk og við kynntumst yfir úkraínskri máltíð hjá Rauða krossinum. Hún er nánast altalandi á íslensku eftir átta mánaða búsetu hér, hef ekki tölu á því hve mörg tungumál hún talar ... en það er ekki málið. Var það ekki einmitt í desember á síðasta ári sem ég datt kylliflöt í sollinn, glötunina, djammið, sukkið, eftir að hafa verið stillt og prúð í áratugi, þegar hún dró mig með á pöbbkviss á Útgerðinni? Ansi hrædd um það. Hún bætti svo um betur síðasta föstudag. Sendi mér skilaboð: Viltu koma með á blústónleika í Reykjavík? Ég er alltaf að reyna að tosa mig út úr þægindahringnum (án þess þó að samþykkja að fara með nokkrum í sund) svo ég sagði bara já. Enda er ég mjög hrifin af blústónlist.
Ég rak samt upp stór augu þegar ég kíkti í símann minn í bílnum á leiðinni í bæinn, hún hafði sent mér allt um viðburðinn á meðan ég var í sturtu. Ég spurði hana og hollenska manninn hennar sem er listamaður og heldur með Ajax, samt ágætur:
Ha! Farið þið stundum í Ölver? Hafið þið kannski áður farið á blústónleika þar?
Nei, við höfum aldrei gert það, er þetta ekki allt í lagi staður?
Þetta er eða var karaókíbar, held ég, eða sportbar, hann er í kjallara í verslunarmiðstöð. Ég vissi ekki að það væru haldnir tónleikar þar, sagði ég og eldgamlar minningar fóru að rifjast upp.
Þau hjónin höfðu haldið að þetta væri einn af þessum stöðum í miðborginni en þau hafa sótt tónleika nokkuð grimmt, blús og jazz. Þótt ég fengi örfá minningarleiftur frá fornri tíð þegar við ráfuðum um í kringum Glæsibæ í leit að innganginum að Ölveri, tókst okkur að skunda fram hjá innganginum. Ef ekki hefði verið fyrir hjálplegan fastagest sem gargaði á okkur: Þið eruð komin fram hjá. Dyrnar eru hérna! hefðum við eflaust lent í vandræðum og værum kannski enn ráfandi um Heima-Sund. Fjöldi fólks var inni á staðnum, samt var klukkan bara átta og tónleikarnir ekki byrjaðir. Ekki reyndist mögulegt að fá almennileg sæti því sumir voru búnir að taka bestu borðin frá fyrir vini sem voru á leiðinni. Við enduðum á því að setjast við fremsta borðið í salnum, við hlið sviðsins, og sáum hljómsveitina mest á hlið (sjá mynd) en bara bakið á sumum. Þetta var skemmtileg lífsreynsla, ágæt músík en hljómburðurinn hefði mátt vera betri. Þarna voru tveir sem ég þekkti, báðir nokkuð tengdir bandinu, held ég, og þarna gerði ég játningu:
Fyndið að vera hér, sagði ég. Síðast kom ég hingað 26. júlí 1980. Þau störðu hissa á mig. Við höfum svo sem ekki þekkst lengi en ég efast um að þau hafi átt von á einhverju svona frá mér. Sko, ég giftist einum af fyrstu eiginmönnum mínum heima hjá mömmu á Rauðalæk og hún heimtaði að halda veisluna hérna í Ölveri, játaði ég og roðnaði glettnislega. Ég held að það hafi ekki verið svona dimmt þá, bætti ég greindarlega við. Þvílíkt minni eftir alla vega 15 ár og jafnvel rúmlega það, hugsaði ég með sjálfri mér, ég man samt ekki hvort kaffið var drekkandi sem mér finnst lykilatriði í dag, enda ógift í augnablikinu. Við erum sko fínir vinir, ég og allir mínir fyrrverandi, tók ég fram. Hjónunum létti stórlega.
Ég drakk tvo bjóra sem er meira en ég hef gert í mörg, mörg, mörg ár, nema í desember og með þessari sömu manneskju. Tilviljun? Held ekki. Ef ég verð alki veit ég hverjum ég get kennt um það. En samt ... ég held að sökin sé í rauninni hjá fólkinu með frasana, sjá sérstaklega nr. 2:
1. Þú ert nóg ...
2. Drífðu þig út úr þægindahringnum ...
3. Lifðu lífinu lifandi ...
4. Vertu þú sjálf og láttu allt flakka ...
5. Morgunstund gefur gull í mund ...
Ég reyni svooo mikið til að enginn geti sagt við mig að ég sé vanaföst (gömul) og þoli ekki breytingar (feit). En þau hjónin gætu þó ALDREI í lífinu platað mig með í sund þannig að minn eigin vilji fyrirfinnst þarna einhvers staðar.
- - - - - - - - - - - - - - - - -
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 10
- Sl. sólarhring: 39
- Sl. viku: 474
- Frá upphafi: 1526443
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 409
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.