26.6.2025 | 00:16
Endurgoldin ást og veistu hver ég var ...
Gengið í vinnuna-átakið var prófað í dag í annað sinn á nokkrum vikum. Nógu svalt var í veðri til að svitna ekki og nógu blautt til að geitungar réðust ekki á mig. Það var svo heitt (maí-hitabylgjan) í fyrra skiptið að ég settist mjög reglulega á bekk á leiðinni til að svitna ekki (ég var að fara að kenna og engin sturta á staðnum).
Geitungamál ... Mér til varnar: ég er ekki jafnsturlað skelkuð við kvikindin og hann Júlí Heiðar söngvari. Sem sagt, þetta var geggjað sumarveður til skrefasöfnunar. Ég var innan við 25 mínútur á leiðinni - með stoppi í bakaríi þar sem ég keypti smávegis nesti fyrir seinnipartinn. Ein skyrdolla ekki nóg fyrir næstu níu klukkutímana. Æðislegt bakarí þarna í Álfheimum. Ég hefði ekki átt auðvelt með þessa gönguferð fyrir nokkrum mánuðum, orðin algjör sófakartafla sem var þó orðin örmagna uppi á fimmtu hæð (4,5. hæð) og tók lyftuna rest í kvöld, eða upp á 6,5. Skref yfir 5.000, ef marka má símann minn sem er alltaf ansi hreint nískur á viðurkenningu í minn garð.
Efsta myndin tengist færslunni þráðbeint og sýnir velheppnaðar strípur, augabrúnir, sætan kött og drög að útsýni núna undir miðnættið.
Kennslan í kvöld hefði verið afar ögrandi og baðstofuleg EF það væri vetur. Það er verið að gera við ýmislegt í skólanum, aðallega utanhúss hjá okkur, en stofan mín var rafmagnslaus í kvöld - sem gerði samt lítið til. Er með 18 nemendur af tólf þjóðernum og alveg ótrúlega gaman að vera með svona marga. Dáist að þessum duglegu elskum sem eru flest, ef ekki öll, að vinna á daginn og koma svo og læra íslensku á kvöldin.
Ást mín og aðdáun á ofurrokksveitinni Skálmöld hefur ekki leynst nokkurri manneskju og nú hefur ástin loksins verið endurgoldin - með eins konar rafrænu knúsi á Facebook. Þetta gladdi gamalt rokkarahjarta mig ósegjanlega. Ég þyrfti að koma mér upp æstum þungarokksvinum sem væru til í að koma með mér á tónleika - til viðbótar við annars músíkelskandi fólk í umhverfi mínu. Vinir og vandamenn eru meira í: Frank Zappa, Björk, Leningrad Cowboys, Elly Vilhjálms, Bach, Eminem og Hnetusmjöri, svo fátt sé nefnt.
Svo lenti ég í nokkurs konar veistu-hver-ég-var-atviki í gær þegar þegar ég beið eftir strætó hér við Sæbraut. Maður nokkur, á óræðum aldri en greinilega mikill smekkmaður vatt sér að mér: Ert þú ekki stundum með pistla í Morgunblaðinu?
Það var enginn tími til að útskýra muninn á bloggi og blaðagreinum, svo ég kinkaði bara stolt kolli. Svona hlyti Hollywood-stjörnum að líða þegar einhver bar kennsl á þær.
Heitirðu ekki Jóhanna? Eða Ingibjörg? Þarna skemmdi hann þessa annars hugljúfu viðurkenningarstund.
Nei, ég heiti Gurrí, sagði ég snúðugt en reyndi að fela beiskjuna sem vall upp.
Guðríður?
Já.
Þetta eyðilagði samt ekki daginn, enda fín nöfnin Ingibjörg og Jóhanna. Ég hafði líka hugann við máv óttans í Skeifunni. Var með þiðnað brauð úr frysti handa honum ofan í tösku. Mér leið mögulega eins og Þorgerði K. og Kristrúnu þegar þær hittu Trump ... betra að halda sumum góðum ... Þegar ég kom í Skeifuna stoppaði ég hjá sama ruslagámi og síðast (fjarri allri mannabyggð), reif niður brauðið, horfði annað slagið á illfyglið uppi á þaki sem fylgdist með mér, reyndi að hneigja mig svolítið líka en nú brá svo við að flaug ekki að brauðinu þegar ég var komin í hæfilega fjarlægð. Hefði ég átt að dreypa truffluolíu yfir það eða strá á það gullflögum? Þetta var vissulega ekki eldbakað súrdeigsbrauð, heldur meira svona dvergvaxið baguette-brauð frá Eldum rétt, eitthvað sem ég hafði fryst fyrir einhverjum mánuðum. Svo laust því niður ... ég hef breyst mjög í útliti síðan í síðustu viku. Bæði fór ég í litun á augabrúnir og augnhár OG svo í strípur á mánudaginn. Ég var gjörbreytt manneskja og þurfti ekki að færa neinar fórnir lengur úr frystinum. Sennilegast var þetta þó bara annar mávur, þeir hljóta að hafa vaktaskipti.
Mér finnst þó ansi gott að geta tekið úr frysti það sem ég veit að ég á ekki eftir að borða - og einhver sísvangur njóti góðs af. En brauðið var pottþétt étið, engin hætta á öðru.
Á mánudaginn, þegar Eldum rétt var búið að koma (kl. 13.30) hringdi ég í Hárhornið á Hlemmi. Þar er hægt að ganga inn án þess að panta tíma. Ég gerði það fljótlega eftir áramót og fékk ljómandi fína klippingu hjá manni sem býr í næsta húsi við mig, sem kom óvænt í ljós. Lilja, eigandinn, er þó strípudrottningin á staðnum en nánast ómögulegt að fá tíma í slíku. Ég prófaði að spyrja þarna þegar ég hringi og það hafði opnast einhver glufa heppninnar og ég þaut út, 7 mín. bið eftir strætó, aðeins of langt að hlaupa niður á Hlemm, en ég var komin eftir kannski 20 mín. Þessar strípur, ljósar og brúnar til skiptis, voru hugmynd Önnu Júlíu á Akranesi eftir taugaáfallið sem ég fékk þegar ég sá fyrir tilviljun ljósmynd þar sem sást í mig aftan frá ... og það var eins og ég væri með stóran skallablett á hnakkanum. Sumir grána smekklega, ég geri það greinilega ekki. Þetta voru fyrstu strípurnar síðan á Skaganum í fyrra.
Það voru samt ekki strípurnar og skemmtilega starfsfólkið sem heillaði ... heldur köttur (sjá mynd) sem hafði gert sig heimakominn þarna, eða mætt reglulega í heimsókn. Rauðhærður riddari, mögulega vergangsköttur, yfirgefinn, eitthvað sorglegt, en hafði átt skjól hjá Lilju og kó í tvær vikur, fengið mat, vatn og stað til að leggja sig á, við mikla ánægju gesta og gangandi. Hann gæti verið kominn upp í Kattholt núna, Lilja ætlaði að láta skanna hann til að fullvissa sig um að hann ætti ekki heimili áður en hún gerði nokkuð. Hann var víst mjög var um sig til að byrja með, skaust út við minnsta hávaða en lá og hvíldi sig sallarólegur á meðan ég var þarna. Vona að allt fari vel, og að kisi fái nýtt heimili.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 34
- Sl. sólarhring: 58
- Sl. viku: 796
- Frá upphafi: 1528704
Annað
- Innlit í dag: 26
- Innlit sl. viku: 644
- Gestir í dag: 26
- IP-tölur í dag: 25
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning