Stuđ í bólusetningu ...

Systir„Litla systir“ (16 mán. YNGRI en ég) fékk bólusetningu í gćr og lét mig vita ađ hún vćri stödd í Laugardalshöll í ţrumustuđi. Ţó var ţar ekki beint árgangsmót, heldur „í fremstu víglínu“-mót frekar. Ég spurđi öfundsjúk hvort hefđi óvćnt uppgötvast ađ hún vćri í raun MIKLU eldri en ég ... en fékk ekki svar, heyrđi ekkert í hátt í klukkutíma og ţegar ég var orđin viss um ađ hún vćri komin á sjúkrahús nćr dauđa en lífi eđa ofbođslega móđguđ, lét hún heyra frá sér.

Hún fékk Moderna - ég ţrái ađ fá Janssen eins og áđur hefur komiđ fram, orđin sprautuhrćdd af öllum ţessum sprautum í sjónvarpsfréttum og ţigg ţakklát ađ mćta einu sinni, ekki tvisvar, takk.

MYND til hćgri: EIN AF DÁSAMLEGU SYSTRUM MÍNUM - FYRIR UTAN ÍSBÚĐINA FRYSTIHÚSIĐ Á AKRANESI. 

Blóđţrýstingur hafđi hćkkađ hjá litlu systur fljótlega eftir ađ hún fékk sprautuna en svo vel er passađ upp á nýbólusett fólkiđ ađ hún var látin sitja og róa sig hjá sćtum sjúkrabílakarli - heillengi ... Hvernig gerir mađur sér upp háan blóđţrýsting? 

Hún systir mín var sćmilega eđlileg í dag ţegar hún kom í heimsókn upp úr hádegi. Stóra systir kom líka. Og međ fangiđ fullt af misgömlum og misţćgum börnum og unglingum var haldiđ í Frystihúsiđ, ísbúđina góđu. Ég mćli međ sykurlausa ísnum!

Systur mínar ávítuđu mig góđlátlega fyrir ađ hafa látiđ mig dreyma um ađ komast í bresku konungsfjölskylduna í gegnum pabba heitinn (sjá fćrslu gćrdagsins) - ekki giftist ég Andrési ţótt hann sé á lausu. Hann var áđur uppáhaldssonur drottingar en mig grunar ađ Játvarđur, yngsta barn hennar og sá sem enginn man eftir, sé ţađ núna.

Fylgst međ eldgosiPabbi átti vissulega margar konur sem hefđi getađ međ tímanum fariđ ađ skemma fyrir honum á hjúskaparmarkađi ef hann vćri kona. Viđ systur munum aldrei gleyma ţví ţegar svo furđulega vildi til ađ nr. 1 (mamma), nr. 2 og nr. 7 lágu allar á sama tíma á Landakoti. Ţćr voru ekki saman á stofu og hver á sinni deild sem var sennilega best. Mamma hafđi engan húmor fyrir ţessu. Pabbi var ţá dáinn en honum hefđi annars veriđ trúandi til ađ mćta međ ţrjá blómvendi og ţrjá konfektkassa og heimsćkja ţćr allar.

Bein útsending frá eldgosum hefur lengi höfđađ til mín eins og sést á seinni myndinni sem ég tók af tölvuskjá međ myndavél (og flassi, eins og sést á glampanum) af gosvefmyndavél Mílu ţegar Fimmvörđuháls var ţađ heitasta. Og ţar var líka fólk fyrir framan vélina en ég man ekki til ţess ađ nokkur hefđi veifađ. Ekkert útsýni til goss ţennan dag, sýnist mér, en mikiđ var ég ţakklát Mílu fyrir ađ bjóđa okkur gosfíklum upp á almennilegt skemmtiefni.


Bloggfćrslur 10. apríl 2021

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 152
  • Frá upphafi: 1527921

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 117
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband