Hirðlistmálari himnaríkis

MæðginNýlega sá ég á Facebook málverk af fjögurra manna fjölskyldu sem frændi konunnar hafði málað. Þetta er ungur Skagamaður, Þorvaldur, sem hefur verið svo heppinn að njóta handleiðslu og fá aðstöðu hjá Bjarna Þór, listmálara og ljúfmenni. Alltaf gaman að fara á vinnustofuna hans, ekki síst á laugardögum þegar Ásta, konan hans, er á staðnum.

Fjölskyldumyndin, máluð eftir ljósmynd, fannst mér stórkostleg, einstök alveg og dreif mig í að panta málverk eftir mikilli uppáhaldsljósmynd af mér og syninum. Þótt ég sé rígmontinn Þingeyingur (og ofsaglaður Skagfirðingur) hefði mér einhvern veginn aldrei flogið í hug að láta mála af mér mynd, mér var innrætt í æsku að hógværð væri dyggð og maður ætti ekki að halda að maður væri eitthvað (þættir á borð við X-Factor hefðu aldrei orðið að veruleika hér á landi í gamla daga, enginn hefði þorað að taka þátt til að verða ekki kallaður montrass). Mér líður samt eins og ég sé komin með hirðlistmálara. 

Mamma listmálarans færði mér myndina í gær og fékk kaffi og súkkulaðiköku. Verðið fyrir myndina var ekki hátt, hugsa að það verði dýrara að láta ramma hana inn. Mér finnst ekki ólíklegt að það verði meira nóg að gera hjá Þorvaldi. Ég fékk símtal frá útlöndum í kjölfar þess að ég birti mynd af málverkinu á Facebook í gærkvöldi, frá manneskju sem ætlar að fá hann til að mála mynd fyrir sig.

- - - - - - - -

Mæðgin ljósmyndVinkona mín sem er listmálari með meiru varð yfir sig hrifin þegar ég sendi henni ljósmynd af verkinu, og ætlar að bregða sér í heimsókn og aðstoða við að velja myndinni stað þegar ég verð búin að láta ramma hana inn. Það þarf einhverju að breyta, ekki svo mikið pláss á veggjum himnaríkis.

Ég held að Einar hefði líka orðið hrifinn af þessu málverki, eiginlega efast ég ekki um það. En mikið er ég þakklát honum Guðmundi sem ég kynntist hér á Moggablogginu fyrir mörgum árum, hann heimsótti okkur tvisvar eða þrisvar á Skagann og tók þessa ljósmynd í einni heimsókninni, sendi mér hana fyrir ekki svo löngu.

Nú er bara að blikka vinkonu sína, móðursystur málarans, til að skutla sér með hana í innrömmun, helst í gær, finnst ólíklegt að vinkonan sé á gosstöðvunum í þessu veðri.


Bloggfærslur 16. apríl 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 152
  • Frá upphafi: 1527921

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 117
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband