Að spúa eitri

InkedKattahatari_LISíðustu þrjú árin, eða síðan sonur minn dó, hef ég forðast að koma mér í aðstæður sem valda streitu, ég reyni að sofa vel, borða hollt, tek ekki að mér of mörg verkefni og ... les sjaldnast kommentakerfin á samfélagasmiðlum, ekki síst ef ég sé að stefnir í einhvern viðbjóð. Þetta hefur virkað vel fyrir sálartetrið, ég er farin að þekkja og forðast fréttir, klikkbeitur, sem eiga að fá fólk til að vera á móti einhverjum eða með, aðallega móti. Þá skríða ýmsar rottur úr holum sínum og láta viðkomandi heyra það ... eins og í stóra prestsmálinu á Siglufirði. Kattahatarar náðu allt í einu vopnum sínum ... minnir ögn á Trump-fólkið sem fékk rödd 2016 og mátti bara alveg vera rasistar og öskra það á götum úti.

 

Guðsmaðurinn má auðvitað halda með sínum fuglum gegn köttum en það er alveg hægt að halda með báðum - kannski líka lesa sér til um gang náttúrunnar - og jafnvel temja sér umburðarlyndi gagnvart öllu sem lifir, ekki bara sumu. Ég reyni það sjálf gagnvart kóngulóm og geitungum, læt ekki eitra fyrir þeim, hleyp bara hratt inn ef kvikindin verða of aðgangshörð. Hef þó alltaf vissa samúð með flugunum sem kóngulærnar veiða í vefi sína. Spurning um að banna kóngulær, halda þeim inni, eða kannski ekki.

 

Ég segi ekki að allt logi á minni eigin Facebook-síðu vegna síðasta bloggs, enda eru Fb-vinir mínir annáluð prúðmenni og -kvenni en það hafa verið skoðanaskipti. Þegar ég fletti í gegnum almennu Facebook áðan sá ég akkúrat alvörukveikjuna, þá sem olli því að ég mundaði pennann í gær, eða reyndi að skrifa köttum til varnar. Þarna sá ég að eitthvert illmennið hafði skriðið út og tjáð sig, sjá efstu mynd. Það er akkúrat þetta sem guðsmaðurinn hefði átt að geta sagt sér (nema honum sé bara alveg sama), að öll ógeðin kæmu út úr holum sínum.

 

 

MosiSvo finnst mér ekki hægt að bera saman hunda og ketti, „ég þarf að vera með hundinn minn í bandi, af hverju má kötturinn vera laus?“ Þessi dýr eru mjög ólík. Presturinn lét að því liggja að kattaskítur væri um allt og fólk gæti gengið í hann ... hann veit greinilega ekkert um ketti. Margt af því sem hann sagði er byggt á sögusögnum, einhver hafði séð kött veiða fugl og sagt honum.

Ég ætla samt að fara til Sigló í sumar, eins og venjulega, heimsækja mitt fólk, minn frændkött og minn frændhund, drekka góða kaffið hjá Fríðu og njóta. Ég get ekki gert upp á milli hunda og katta - væri án efa með hund í dag ef ég byggi öðruvísi. Þótt ég eigi ketti og geti kallast kattakerling, elska ég hunda alveg jafnheitt. Ein besta vinkona mín á Akranesi er sjeffertíkin í næsta húsi, alltaf miklir fagnaðarfundir þegar við hittumst. 

 

Ljóta kommentið kom kattavinum eðlilega í uppnám en mér fannst áhugavert sem ein konan sagði í þræðinum um þetta komment, hér er það orðrétt: „Ég leigði hjá miklum fuglaáhugamanni í Danmörku, hann ferðaðist um heiminn til að skoða fugla og var í hinum ýmsu félögum og ráðum um fugla, m.a. á vegum hins opinbera. Hann sótti ráðstefnur út um allan heim, þing um fugla. Þessi maður var og er með kött og ég spurði hann hvort þetta færi saman og hann hélt nú það og sagði að þetta væri náttúran. Ég benti honum á að margir héldu því fram að kötturinn væri aðskotadýr en hann sagði þvert á móti, bæði gerði kötturinn gagn og svo væru miklu fleiri dýr sem færu í fuglana og kötturinn alls ekki sá skæðasti.“

 

Med hunda i heimsoknAnnað merkilegt í þessum umræðuþræði. Kettir og kattaeigendur á Siglufirði hafa orðið fyrir aðkasti, þökk sé guðsmanninum, en á heimasíðu Fjallabyggðar er listi yfir þá sem eru með leyfi fyrir kisum, og bæjarstjórinn neitar að fjarlægja nafnalistann, sem er sennilega brot á persónuverndarlögum. En eru ekki örugglega kosningar á næsta ári? Kattaeigendur gætu án efa breytt málum. Ég myndi láta atkvæði mitt koma svona fólki frá, þótt ég þyrfti að kjósa allt annan flokk en vanalega.

 

Annað: Ég hvet kattaeigendur til að halda köttum sínum inni á þessum viðkvæma tíma, ekki síst yfir nóttina, kaupa á þá litríka og stóra kraga svo þeir reyni ekki að færa eigendum sínum björg í bú. Frændkötturinn minn á Siglufirði er afar rólegur og heldur sig mikið heima, hjá hundinum og fólkinu sem hann á ... Ég hef aldrei heyrt veiðisögur af honum en hann hlýtur samt að vera í hættu núna, af því að hann er ekki fugl.

 

Neðsta myndin (frá 2019) er af (f.v.) Krumma, Mosa og Kela sem virða fyrir sér tvo sæta smáhunda, Herkúles og Golíat, frændhunda mína, sem koma stundum í heimsókn. Allt of sjaldan samt.

 

Svo vona ég það besta fyrir hönd Fjallabyggðar. Það er laust starf í Akraneskirkju fyrir prest og væri áhugavert að vita hvort þessi prestur, ef hann sækti nú um og fengi djobbið gæti einnig klofið okkur Skagamenn í herðar niður - kannski með eða á móti fótbolta? Banna hestareið á Langasandi á sumardaginn fyrsta? Hann myndi finna eitthvað spennandi en fengi aukastig hjá mér ef hann kæmi mávunum, vinum mínum, til varnar.


Sennilega dulbúin tóbaksauglýsing

5. maí 2017Prestinum á Siglufirði hefur gengið dæmalaust vel að koma íslensku samfélagi í uppnám og skapa úlfúð á milli hópa; þeirra sem elska ketti og hinna sem voru rottur í fyrra lífi. Hann dulbýr andstyggð sína á einni dýrategund sem umhyggja fyrir annarri. Nema ... þetta hafi bara verið tóbaksauglýsing. Sáuð þið ekki myndina af honum?

 

Kettirnir mínir eru innikettir (hér eru Krummi og Keli), ekki til að vernda fugla eða mýs, sem ég er ekki viss um að þessir letihaugar myndu nenna að eltast við, heldur til að þeir verði ekki fyrir bíl.

 

Talandi um presta ... eða reyndar prestfrú af Vesturlandi sem gerði líf margra Skagamanna óþarflega erfitt með því að brjálast yfir því að Skagastrætó, eins og hann kallaðist upphaflega, kæmi við á Skaganum á leiðinni til Reykjavíkur (af Vesturlandi). Það var hlustað á frekjuna í konunni sem tók þó sjaldan strætó og stoppistöðvum var fækkað hér svo nú er konan fimm eða sex mínútum sneggri til Reykjavíkur og um leið hætti strætó að henta hluta Skagamanna, sérstaklega á veturna, þá var nú bara betra að kaupa bil. Flestar ferðir héðan í bæinn fara frá bæjarskrifstofunum núna en áður alltaf frá Akratorgi. Þarna var hagsmunum heildarinnar fórnað fyrir eina mannskju. Freka.

Krummi á músaveiðum

 

 

Bílstjórinn sem sagði mér þetta varð mjög hneykslaður og endaði sem trúlaus, það þurfti ekki meira til, og ég geri fastlega ráð fyrir að vegna orða prestsins á Sigló missi ansi margir í viðbót alla trú, við erum svo mörg sem elskum kettina okkar.

 

 

Biskupsstofa þyrfti að ávíta manninn harðlega (og Strætó bs. að gyrða sig í brók) ef sóknargjöldin eiga ekki öll að fara í kattaelskandi söfnuði á borð við Siðmennt, DíaMat og Ásatrúarsöfnuðinn. Kristrún í KFUK æsku minnar hefði reyndar látið þennan prest hafa það óþvegið!

 

 

Nema sem sagt, að þetta hafi bara verið sígarettuauglýsing eins og mig er farið að gruna, það getur enginn verið svona þenkjandi, nema kannski harður veganisti sem myndi aldrei borða sæta kjúklinga, kálfa eða lömb. Ég ætla samt ekki að láta plata mig til að byrja að reykja aftur.

 

KFC til AkranessHér eru svo nokkrar sjálfsagðar kröfur mínar. Ég VIL ...:

- að lausaganga háværra barna snemma á sumarmorgnum verði bönnuð.

- að býflugnabændur hafi flugur sínar í taumi, margir eru afar hræddir við stinguflugur.

- að kattamessa verði haldin árlega á Siglufirði. Og Húsavík.

- að flóð verði alltaf í björtu á veturna í suðvestanátt hér við Langasand. Og að bláfáninn hangi hér uppi allt árið.

- að útibú IKEA eða Rúmfó og KFC komi á Skagann. Og dýralæknastofa.

- að Herjólfur komi minnst vikulega við á Akranesi.

- að Norræna komi minnst mánaðarlega við á Akranesi.

 

P.s. Þrátt fyrir söguhetjur þessa bloggs ... vil ég taka fram að þeir prestar og prestfrúr sem ég þekki eru öll dásamlegt fólk.


Bloggfærslur 13. maí 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1527925

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 121
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband