Draumur um ţokumann og misskemmtilegir Facebook-hópar

Fjölmargir tóku síđustu fćrslu minni afar illa og athugasemdir fylltu hvern krók og kima í tölvunni minni. Eldgosiđ vćri víst í alvörunni, sagđi fólk, en ţokukenndir Írskir dagar bara ímyndun mín, og eins og einn fyrrverandi vinur minn, núverandi óvinur, orđađi ţađ: „Ţú getur ekki lent á séns í hverri einustu fokking fćrslu! Ţađ eru ekki til svona margir karlar á öllu suđvesturhorninu.“ Eins og ţessir ađ norđan, austan og sunnan, teldust ekki međ ... en ég veit, ţađ er ekki mikiđ úrval, ef marka má orđ hetjuvinkvenna sem ţora ađ hanga á Tinder.

Orđ hans fengu miSítrónufrómasg samt til ađ hugsa og sitthvađ er rétt hjá ţessum til eilífđar-óvini mínum, ţokan ruglađi mig í ríminu og mig hefur sennilega dreymt manninn sem er grunsamlega óskýr í minningunni. Hver týnir manni í ţoku? Hver heilvita manneskja veit líka ađ ţađ kann enginn alvörukarlmađur ađ búa til sítrónufrómas, ţetta var óafvitandi einhver vörn hjá mér, svo ég gangi örugglega aldrei út. Kannski er ég hrćdd viđ ađ binda mig, og kannski er sítrónufrómas bara svona góđur í minningunni. Og kannski er bloggiđ mitt ađ breytast í svona játninga- og tilfinningablogg ţar sem ég svipti hulunni af öllum ćsispennandi leyndardómum mínum ... eđa kannski ekki. Eiginlega örugglega ekki.

Svo rekur mamma rosalega mikiđ á eftir mér, hún hefur viljađ sjá mig sem fyrst í öruggri höfn hjónabandsins eftir skilnađ minn 1982. „Gurrí mín, ţú ert ađ verđa 63 ára í ágúst,“ nöldrar hún. Ég hef nú samt horft á nógu mikiđ af Bold and the Beautiful til ađ muna eftir ţví hversu oft Brooke stakk undan dóttur sinni, Bridget. Alla vega tvisvar en ég hef ekki treyst mér til ađ horfa á BB mjög lengi svo ţađ getur veriđ oftar. Ţađ eru bara fréttir, eldgos og fótbolti sem halda mér viđ skjáinn. Og svo er ég búin ađ hlusta á heila bók í viđbót á Storytel, Hittumst í paradís (eftir Heine Bakkeid) ... og sú var ćđi, mjög spennandi. Klárađi međ augunum bókina Kaldaslóđ í síđustu viku og fannst hún virkilega fín og spennandi líka. Hún er eftir Kim Faber og Janni Pedersen.

Ég dái og dýrka íslenska bókaútgefendur fyrir ađ hafa hoppađ á krimma- og kiljuvagninn. En međ hćkkandi aldri og auknum ţroska, fyrir svona fimm árum, öđlađist ég smekk fyrir ljóđum og mćtti örugglega gera talsvert meira af ţví ađ lesa ţau.

- - - - - - - - - - - - - - -     

Margir hafa tjáđ sig undanfariđ um mann sem nýlega fékk  afleiđingar gjörđa sinna í hausinn en ţar sem ég mun aldrei, sökum elli (16 plús), lenda í honum ćtla ég bara ađ einbeita mér ađ EM. Áfram England. Á morgun.

DíönusíđanŢeir sem eru á Facebook vita ađ til eru alls konar hópar ţar, sumir skemmtilegir, ađrir ekki. Ég er í mörgum, m.a.: Stuđningshópur fyrir fólk sem gengur asnalega í hálku, Fólk sem ruglar saman bakaríi og apóteki, Hróarsdalsćttin, Flatey á Skjálfanda, Pink Floyd og nokkrum kisuhópum.

Nokkrum sinnum var mér trođiđ (ekki bođiđ) í hópinn Góđa systir en ég fleygđi mér jafnóđum öskrandi út úr honum á ferđ, bara nafniđ fćldi. En nýlega var mér bćtt í hóp um Díönu prinsessu og ţar ríkir nokkuđ sérstakur húmor. Hvađa litur er aftur svartari en svart? Ég er nú samt manneskjan sem kom heim af Kaffibarnum í lok ágúst 1997, hlustađi á ein skilabođ sem höfđu borist á símsvarann minn, í kjölfariđ kveikti ég á Sky News og horfđi ţar til yfir lauk, eđa Díana dó, líklega um sexleytiđ um morguninn. Svo náđi hún mér í aldri, eđa hefđi gert, núna 1. júlí.

Ég var međ fjölvarpiđ 1997 og gat fylgst međ fréttum af bílslysi Díönu og Dodis en vegna blankheita sagđi ég ţví upp 1. september 2001 sem kom mér, fréttafíklinum, illilega í koll ellefu dögum seinna. Ég fć enn hroll ţegar ég hugsa um ţađ.


Bloggfćrslur 6. júlí 2021

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband