Hamingjan er ... stóll

TveirHamingjan ríkti í Himnaríki um miđjan dag í gćr ţegar fíni, flotti stóllinn var pantađur. Ljúfmenni í Húsgagnahöllinni stökk á milli hćđa fyrir mig og mćldi stólinn, sethćđina sem reyndist vera hálfum sentimetra minni en í gráa tungusófanum. Og hvađ er hálfur sentimetri á milli vina? Ég fleygđi mér út í djúpu og keypti hann ... í gegnum netiđ! Hikstađi bara einu sinni í greiđsluferlinu og hélt ađ allt vćri glatađ (tilveran) en góđ greind og smámunasemi (Merkúr í meyju, skilst mér ađ bjargi vitsmunum mínum) hjálpađi og kom einnig í veg fyrir ađ ég keypti óvart tvo stóla sem munađi engu! Ţá hefđu nú veriđ gaman ađ fá vísareikninginn ...  og ég ţurft ađ fleygja tungusófanum til ađ skapa pláss fyrir tvo fína stóla, en ţetta tókst fyrir rest. Nú bíđ ég bara eftir ţví ađ Pósturinn komi međ stólinn upp ađ dyrum, fyrir 12 ţúsund kall auka.

 

Kannski er hamingjan fólgin í fallegum stól, jafnvel tilgangur lífsins líka ... sumir segja samt hamingjuna birtast viđ ţađ ađ grennast, ţađ sé ekki hćgt ađ vera hamingjusamur ef mađur er a) ţybbinn, b) feitur, c) búttađur, fólk hljóti ađ glíma viđ depurđ og ţađ algjörlega án ţess ađ viđurkenna ţađ ... svo segja ađrir hamingjuna fólgna í ţví ađ fá rjúpur í jólamatinn, ţađ komi ekki jólin nema fá rjúpu. Hjá mér er ţađ stóll. Og kannski kaffi, bćkur, tónlist, kettir, flottar öldur, hundar, fólk, viftur ...   

 

KólnandiFína silkisćngin er alveg jafnheit og ađrar sćngur, skrambs, en hún er samt sérlega létt og mjúk. Hitaköstin tengjast víst hćrra hitastigi utandyra og versna viđ hverja einustu f...ings gráđu sem bćtist á mćlinn. Get víst ekki kennt bólusetningum um eđa síđbreytingaskeiđi.

 

Hversu flott er samt ađ búa ekki t.d. í Tyrklandi eđa á Grikklandi núna, eđa bara ekki ţar sem ţađ eru yfir 15 gráđur! Ég meira ađ segja gekk um allt Himnaríki í morgun og dró „gervi“gardínurnar fyrir, í fyrsta sinn, mađur notar ekki gluggatjöld međ svona útsýni, en ţau varna ţví kannski ađ sólin nái ađ skína af jafneinbeittri grimmd inn í stofu og á mig líka í hinum enda Himnaríkis, viđ vinnu mína vestanmegin íbúđar viđ suđurglugga, suđu-glugga. Um leiđ og ég er búin ađ kaupa ţrjú gluggajárn get ég haft norđangluggana  sífellt opna nema í norđanstórhríđ (vá, ég hlakka svo til vetrarins) og ţá verđur bćrilegt ađ vera hér. Yfirleitt hef ég frekar svalt heima hjá mér og ţess vegna ţoli ég hita ekki vel. Ég setti mini-hrífuna (klóruprik úr Rúmfó) í gluggann, tindarnir snúa upp. Ţađ hefur virkađ áđur, ţori ekki ađ segja meira.

 

Trúleysi eyttBúast má viđ trylltu trúarbragđastríđi á fimmtudaginn, en ţann dag, afmćlisdaginn minn, takk kćrlega, völdu nokkrir kristnir Bandaríkjamenn til ađ biđja guđ um ađ eyđa trúleysingjum, eitthvađ slíkt. Mér skilst ađ trúleysingjar ćtli á móti ađ sýna fingurinn ţann sama afmćlisdag kl. 14 ađ íslenskum tíma.

 

 

Fyrst ég held ekki upp á afmćliđ mitt međ sama hćtti og ég hef gert síđustu áratugi, 1987-2019, og bjóđa rúmlega 200 allra nánustu til veislu (201 eđa enginn), mun ég í stađinn fylgjast međ stríđinu í beinni, borđa kökur og snittur, sitja alein ađ krćsingunum, loksins. Gott plan.

 

Helgin fer m.a. í ađ brjóta saman ţvott og ganga frá, og dagsferđ á Snćfellsnes, ég mun ekki gleyma ađ kaupa kaffi á Rjúkanda, jesssss!


Bloggfćrslur 6. ágúst 2021

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband