Ólöglegar vefmyndavélar og furðuhópar á Facebook

OpentopiaÁrum saman ferðaðist ég um heiminn í gegnum vefmyndavélar, og skemmti mér konunglega með aðra hönd á mús og hina með kaffibolla. Sparaði einhver ósköp líka. Í dag langaði mig að kíkja á Norðvesturlandið mitt, en norðar, og sjá veðrið, en mér til skelfingar sá ég að vefmyndavélum okkar hafði fækkað niður í þrjár. Tvær frá Akureyri (önnur úr Gilinu, hin frá flugvellinum en ekkert spennandi) og sú þriðja frá golfskála! Keilir golf club-eitthvað (sjá mynd).

 

Opentopia.com safnar (ólöglega) vefmyndavélum á síðu sína og fækkun á íslenskum vélum þar getur stafað af meira öryggi vélanna. Engar klámvélar samt, nema neðst á síðunni (sjá mynd) ... eflaust til að fjármagna þetta, eða boðið upp á spjall við hressar og léttlyndar konur og það kostar eflaust sitt. Þetta gætu auðvitað verið spákonur, í gamla daga var hægt að fá spá í gegnum síma, man ég.

 

 

ÓskarsverðlaunÉg sakna Ólafsvíkur, Ísafjarðar, Vestmannaeyja, Siglufjarðar, Stykkishólms (Míla er reyndar með þá vél) og fleiri staða sem gaman var að heimsækja á þennan hátt.

Einu sinni átti ég vefmyndavél og hafði hana í svefnherbergisglugganum mínum, þá var það vinnuherbergi. Hún vísaði út á sjó og var ljómandi skemmtileg, fannst mér. Sonur minn, þáverandi hirðtölvumaður minn, vistaði hana í gegnum java-eitthvað sem varð með tímanum svo vírusaviðkvæmt að fyrir rest komst ég ekki inn í eigin vél í tölvunni og á endanum hætti hún svo bara að virka. Takk, Java-drasl, takk kærlega. Opentopia gat ekki rænt henni - mátti það samt alveg, mín vegna. Í gegnum yr.no, eða norsku veðursíðuna, var hægt að finna vélina og mig minnir að á stuttum tíma hafi verið kíkt á hana yfir 40 þúsund sinnum. Virt vefmyndavéladæmi Earthcam.com, svona alvörudæmi, skellti henni í best of-mánaðarins með fleiri vélum reyndar ... en samt, svo sigurganga vélarinnar hefði orðið með ólíkindum (Óskarsverðlaun?) ef java-klúðrið hefði ekki komið til. Drekk ekki einu sinni java-kaffi, ég er svo beisk.

 

Við erum líka ansi beisk og sár yfir kosningaklúðrinu okkar, ég myndi gjarnan vilja að talið yrði víðar almennt, ekki bara á einum stað, það hlýtur að vera mun fljótlegra og ég býð mig fram hér á Akranesi. Er nákvæm og smásmuguleg, þegar ég þarf, stjörnuspekifrændi minn segir að Merkúr í meyju bjargi mér, hvað sem það þýðir.

Ætli verði ekki heiðarlegast, ef ekki á að kjósa aftur í NV, að láta fyrri úrslit gilda? Ef bara örlítil hætta er á því að einhver hafi getað átt við atkvæðin, verður að gera það. Það er líka ferlega fyndið að Alþingi ráði því hvort verði kosið aftur ... Mitt atkvæði breytist þó ekki, ef kosið verður aftur en sennilega verða einhverjar smábreytingar samt. Vildi gjarnan sjá hinn frábæra, klára og skemmtilega Valgarð (Samfylking) ná inn á þing, hann er kennari en samt ágætur, brilleraði (eins og ég með Oliver Twist) í Útsvari fyrir nokkrum árum. Margir fínir náðu inn á þing en ég er ekki sátt við alveg alla ... nefni ekki nafn hans - og svo á að fækka þingmönnum okkar um einn frá og með næstu kosningum sem er áfall! En við hefðum svo sem getað endað með Angelu Merkel, þetta með uppbótarþingmenn var orðið svo ruglingslegt ...

 

ÞakrennurHóparnir á Facebook geta verið ansi skemmtilegir ... ég er t.d. í hópi áhugafólks um þakrennur ... í alvöru, fallegar konur geta alveg verið nördar. Vona að ég verði ekki ofsótt fyrir að hafa rænt myndinni ... en það er hefð fyrir því hér í NV.

 

Og svo gekk ég nýlega í aðdáendahóp um Stephen King - ég sem horfi t.d. ekki á hryllingsmyndir er afar hrifin af flestum bókum hans. Var óheppin með fyrstu bókina sem ég las, Gæludýrakirkjugarðinn, og eins og ég hef sagt frá áður, henti kunningjakona mín bókinni The Dark Half - hafði hana í láni frá mér en gleymdi því í allri geðshræringunni yfir því hvað hún væri viðbjóðsleg ... svo ég hef ekki lagt í hana.

 

Hér koma nokkrar staðreyndir um Stephen King, ég á bara tvennt sameiginlegt með honum:

Í GAMLA DAGA: Pabbi hans yfirgaf fjölskylduna þegar SK var tveggja ára. SK bjó í hjólhýsi með konu sinni. Hann hafði ekki efni á því að vera með síma. Hann vann nokkur störf til að vinna fyrir fjölskyldu sinni. Hann þjáðist af kvíða og þunglyndi. Hann varð háður víni og dópi. Hann fékk um sextíu sinnum NEI áður en hann seldi útgáfurétt að fyrstu bók sinni. 

OG SVO: hélt hann bara áfram að skrifa og hefur sent frá sér hátt í 90 bækur. Varð metsöluhöfundur. Yfir 45 bíómyndir og þættir hafa verið gerðir eftir bókum hans. Hann hefur selt yfir 350 milljón eintök af bókum sínum. Hann er ein af ríkustu rithöfundum heims. 


Bloggfærslur 28. september 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 150
  • Frá upphafi: 1527945

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 118
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband