6.9.2021 | 18:50
Róandi dagskrá fyrir R-daginn.
Rafmagnslausi dagurinn nálgast allt of hratt en ég fann út að ef ég skipulegði hann gæti hann orðið léttbærari. Ég róaðist mikið við þá ákvörðun.
Eina sem ég hef ekki ákveðið er hvort ég fari á fætur fyrir kl. 9 til að búa til kaffi (en hvað geri ég þá til hádegis þegar allt er lokað nánast alls staðar?) eða sofi lengur (er í sumarfríi, varð að taka sumarfrísdag, tölvan mín gengur nefnilega fyrir rafmagni, eins og allt).
Sennileg dagskrá R-dags:
Kl. 9.00: Rafmagn tekið af Himnaríki og hverfunum í kring.
Kl. 10.58: Vaknað í nístandi þögn. Áfall, bitið á jaxlinn.
Kl. 11: Hlustað á fréttir í gegnum símann, útvarpið gengur fyrir rafmagni.
Kl. 11.10: Reynt að róa kettina og sprauta upp í þá vatni, þeir eru löngu orðnir afhuga venjulegum vatnsskálum, vatnsbrunnur þeirra gengur fyrir rafmagni. Takk, Rarik. Takk kærlega.
Kl. 11.15: Sturta og klæð.
Kl. 11.30: Farið í Galito, aðeins of langt á Grjótið, nema Tommi hirði mig upp og skutli mér þangað. Samt örlítil hætta á að hann bjóði mér í mat heima hjá sér, í súrsaða selshreifa með hræringi sem uppstúfi. Hann er með súrtunnu á svölunum. Muna að forðast Tomma. Fara í Grjótið ef R.d. nær til Stillholts.
Kl. 12.30: Gleraugnabúð. Gleraugu löguð og áfallahjálp.
Kl. 13.00: Latte í Frystihúsinu.
Kl. 13.30: Latte í Grjótinu og lesið, kannski eitthvað sæmilega myndarlegt tekið tímabundið og örstutt á löpp.
Kl. 15:00: Bókasafnið, stefnumót við stelpurnar, spjallað, heklað, blaðað í bókum. Já! Leitað að sjónvarpi. Þetta Eldvatn við Ása horfir ekki á sig sjálft á RÚV. Stefnir í stórt hlaup.
Kl. 17.40: Flamingo, sýrlenskur gæðamatur á góðu verði keyptur, Réttur nr. 10 í takeaway (nr. 10 á skiltinu fyrir ofan afgreiðsluborðið).
Kl. 18.04: Stráksi kemur heim, saddur. Borðaður réttur nr. 10. Setið saman í örvæntingarfullri þögn og jafnvel myrkri með honum og kisunum. Pikkað með fingrum á stólarma, tárast.
Kl. 18.10: Ísland-Þýskaland. Ekki hægt að horfa því sjónvarpið gengur fyrir rafmagni. Kíkt á hálfrar tommu símaskjáinn ef eitthvað er eftir af hleðslu. Leitað að kertum.
Kl. 19: Lífið hefst. Ísland-Þýskaland þar sem karlar sparka bolta kemur í ljós, einnig vaknar til lífsins Eldvatn við Ása þar sem jökulvatnið frussast. Almenn gleði.
Daginn eftir: Allt úr frystinum borðað (tvær skúffur) svo það skemmist ekki. Þarf að panta ný föt, stærri. Ath. alnetið.
Daginn þar á eftir: Restin af öllu úr frystinum borðuð. Muna að breyta fatapöntunum í XXXXXXXXXX-L.
Þessi dagskrá fyrir miðvikudag, fimmtudag og föstudag er nokkuð líkleg - svo er líka freistandi að fara til Kaju, maturinn hjá henni er ekki bara hollur, hann er líka mjög góður, eða það sem er ekki með hnetum, möndlum, döðlum og rúsínum. Ohh, þarf líka að fara í apótek, kaupa búkonuháraplokkara, sveppakrem, míkrólax, lúsasjampó og gyllinæðarkrem - djók. Ég fer í apótek í Reykjavík ef mig vantar slíkt (og ekki lengur með hárkollu og sólgleraugu, þökk sé grímum). Það vantar D-vítamín á heimilið. Ég hef verið dugleg að taka það eftir hvatningu landlæknis, og er eiginlega viss um að flensan sem herjaði á mig í síðustu viku hafi verið miklu vægari en sú sem ég fékk í fyrra vegna D-vítamínsins. Stráksi fékk mun meiri kvefeinkenni (hóst og snýt) enda gleymi ég sjaldnar en hann að taka vítamínið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. september 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 6
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 148
- Frá upphafi: 1527943
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 116
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni