Hin mistökin ...

Á hvíta tímabilinuUndirbúningur afmćlisins ţann tólfta var bćđi langur og strangur og ţótt ég hafi ekki minnst á ţađ sem fór úrskeiđis, vita bloggvinir mínir svo sem um rafrćna bođsbréfiđ á Facebook, hópinn góđa sem var ekki svo góđur, fólk er enn ađ bođa sig eđa afbođa. 

 

Allt var ađ sjálfsögđu óađfinnanlegt varđandi veitingarnar, fínasta súperkaffi, geggjađ gos og tertur, en ţađ er ekki nóg, ég vil hafa bókstaflega allt fullkomiđ, allt í umhverfinu líka. Vel ţurrkađ af, rétta lyktin, tískulitir, markverđar bćkur í hillum og borđum, ögrandi listaverk og rétta útsýniđ (í fyrra sáu gestir eldgos í grennd, í ár var ţađ sjávarútsýni). Myndin hér ađ ofan var tekin á hvíta tímabilinu eitt áriđ, ţá var líka sjávarútsýni.

Já, ég var bara međ allt ţađ besta sem peningar fá keypt og gúglţekking getur fundiđ, eins og til dćmis mjúkan og ţćgilegn klósettpappír! Eftir ýmsar rannsóknir, ég hćtti mér meira ađ segja á YouTube í fimm mínútur, tókst mér ađ finna tíu bestu tegundir salernispappírs sem völ er á í heiminum og hér á landi, fullkominn pappír fyrir fínu tilvonandi bossana. Ég bađ ţekkta smekkkonu ađ velja fyrir mig á milli ţessara tíu, sem varđ til ţess, átta mánuđum síđar, ađ ég pantađi Lambi-pappírinn í heimsendingu, og fleiri afmćlisnauđsynjar í leiđinni. Ţetta kom svo allt daginn fyrir afmćliđ frá vissri ónefndri uppáhaldsbúđ, ţar sem ég hef ćtíđ fengiđ fullkomna ţjónustu ... Hér fara mál nú samt ađ ćsast.

 

Lambi-pappírAđ morgni afmćlisdagsins, áđur en hirđsystir mín og ćđsti krúttmoli, kom akandi međ stóran hluta veitinganna sem ég hafđi látiđ gullhúđa í höfuđborginni (allt ţađ besta, muniđ), lagđi ég lokahönd á Himnaríki. Mér sást reyndar bara yfir smávegis af hreinum ţvotti sem ég hreinlega gleymdi ţar til kl. 14.57 sem var í fínu lagi ţví afmćliđ byrjađi ekki fyrr en kl. 16. Ég var stađin ađ verki af gömlum strćtóvini, lögfrćđingi en samt ágćtum, sem hélt svo ótrúlega ranglega ađ afmćliđ hćfist kl. 15 og kom ađ mér berhandleggjađri ađ ganga frá fatnađi í skúffur, sjá afmćlisbloggiđ. Vissulega áfall fyrir hann og hefđi svo sem veriđ fyrir alla ađra sem álíta mig fullkomna en undantekningin sannađi regluna í ţessu tilfelli. Gleymskugaldur var ţađ eina sem dugđi á hann, ásamt gífurlegum hita sem brćddi nýlegar minningar úr heila flestra gestanna. Nćstheitasti dagur ársins. Nćsta verk var síđan ađ setja splunkunýjan rúllu af hefđarsalernispappírnum á réttan stađ.

Ég handlék pakkann af virđingu, ţađ var mynd af undurfallegu lambi framan á sem kom mér í sannkallađ afmćlisskap. Ég dró fyrstu rúlluna úr pakkanaum og mér til skelfingar var hún ţríbreiđ! HVERSU FEIT HALDA ŢAU EIGINLEGA AĐ ÉG SÉ? hugsađi ég bálreiđ.

Korteri seinna hafđi ég róast og ţegar ég las á pakkann sá ég ađ ţetta var aldeilis ekki salernispappír fyrir breiđvaxna, heldur eldhúsrúllur, mjúkar og vođa góđar, ţetta höfđu bara veriđ mistök hjá búđinni svo ég fór međ pakkann fram í eldhús. Ég var orđin hipp og kúl ţegar ég hringdi í búđina og talađi yfir hausamótunum á öđrum kaupmannssyninum sem grét svo mikiđ ađ ég fyrirgaf ţetta í hvelli. Kveinin í honum hljómuđu undarlega, eiginlega svipađ ţví og ţegar ég emjađi nýlega af hlátri yfir bók Auđar Haralds, Baneitruđu sambandi á Njálsgötunni, sem sjokkerađi stráksa, en ég vissi ţó ađ ţetta var ekki hlátur, hann hefđi aldrei vogađ sér.

Ég tók upp símann aftur og hviss, bang, Hilda mćtti međ klósettpappír, meira ađ segja frá Costco, og ekkert neyđarástand myndađist. Nú ţarf ég bara ađ láta laga oggulítiđ vesen á gúmmí-sílikon?kanti í sturtuklefanum og ţá verđur hćgt ađ vera međ sturtuferđir fyrir gestina. Ég ţarf ađ bjóđa svo miklu betur en keppinautar mínir (fiskidagar, gleđiganga, KK, dráttarvélar og fleira) ţegar afmćliđ ber upp á laugardegi. Ţigg allar góđar hugmyndir. 


Bloggfćrslur 22. ágúst 2023

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 41
  • Sl. sólarhring: 43
  • Sl. viku: 505
  • Frá upphafi: 1526474

Annađ

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 434
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Hjúkrunarneminn
  • Sófamorðingi 2
  • Sófamorðinginn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband