22.8.2023 | 22:16
Hin mistökin ...
Undirbúningur afmælisins þann tólfta var bæði langur og strangur og þótt ég hafi ekki minnst á það sem fór úrskeiðis, vita bloggvinir mínir svo sem um rafræna boðsbréfið á Facebook, hópinn góða sem var ekki svo góður, fólk er enn að boða sig eða afboða.
Allt var að sjálfsögðu óaðfinnanlegt varðandi veitingarnar, fínasta súperkaffi, geggjað gos og tertur, en það er ekki nóg, ég vil hafa bókstaflega allt fullkomið, allt í umhverfinu líka. Vel þurrkað af, rétta lyktin, tískulitir, markverðar bækur í hillum og borðum, ögrandi listaverk og rétta útsýnið (í fyrra sáu gestir eldgos í grennd, í ár var það sjávarútsýni). Myndin hér að ofan var tekin á hvíta tímabilinu eitt árið, þá var líka sjávarútsýni.
Já, ég var bara með allt það besta sem peningar fá keypt og gúglþekking getur fundið, eins og til dæmis mjúkan og þægilegn klósettpappír! Eftir ýmsar rannsóknir, ég hætti mér meira að segja á YouTube í fimm mínútur, tókst mér að finna tíu bestu tegundir salernispappírs sem völ er á í heiminum og hér á landi, fullkominn pappír fyrir fínu tilvonandi bossana. Ég bað þekkta smekkkonu að velja fyrir mig á milli þessara tíu, sem varð til þess, átta mánuðum síðar, að ég pantaði Lambi-pappírinn í heimsendingu, og fleiri afmælisnauðsynjar í leiðinni. Þetta kom svo allt daginn fyrir afmælið frá vissri ónefndri uppáhaldsbúð, þar sem ég hef ætíð fengið fullkomna þjónustu ... Hér fara mál nú samt að æsast.
Að morgni afmælisdagsins, áður en hirðsystir mín og æðsti krúttmoli, kom akandi með stóran hluta veitinganna sem ég hafði látið gullhúða í höfuðborginni (allt það besta, munið), lagði ég lokahönd á Himnaríki. Mér sást reyndar bara yfir smávegis af hreinum þvotti sem ég hreinlega gleymdi þar til kl. 14.57 sem var í fínu lagi því afmælið byrjaði ekki fyrr en kl. 16. Ég var staðin að verki af gömlum strætóvini, lögfræðingi en samt ágætum, sem hélt svo ótrúlega ranglega að afmælið hæfist kl. 15 og kom að mér berhandleggjaðri að ganga frá fatnaði í skúffur, sjá afmælisbloggið. Vissulega áfall fyrir hann og hefði svo sem verið fyrir alla aðra sem álíta mig fullkomna en undantekningin sannaði regluna í þessu tilfelli. Gleymskugaldur var það eina sem dugði á hann, ásamt gífurlegum hita sem bræddi nýlegar minningar úr heila flestra gestanna. Næstheitasti dagur ársins. Næsta verk var síðan að setja splunkunýjan rúllu af hefðarsalernispappírnum á réttan stað.
Ég handlék pakkann af virðingu, það var mynd af undurfallegu lambi framan á sem kom mér í sannkallað afmælisskap. Ég dró fyrstu rúlluna úr pakkanaum og mér til skelfingar var hún þríbreið! HVERSU FEIT HALDA ÞAU EIGINLEGA AÐ ÉG SÉ? hugsaði ég bálreið.
Korteri seinna hafði ég róast og þegar ég las á pakkann sá ég að þetta var aldeilis ekki salernispappír fyrir breiðvaxna, heldur eldhúsrúllur, mjúkar og voða góðar, þetta höfðu bara verið mistök hjá búðinni svo ég fór með pakkann fram í eldhús. Ég var orðin hipp og kúl þegar ég hringdi í búðina og talaði yfir hausamótunum á öðrum kaupmannssyninum sem grét svo mikið að ég fyrirgaf þetta í hvelli. Kveinin í honum hljómuðu undarlega, eiginlega svipað því og þegar ég emjaði nýlega af hlátri yfir bók Auðar Haralds, Baneitruðu sambandi á Njálsgötunni, sem sjokkeraði stráksa, en ég vissi þó að þetta var ekki hlátur, hann hefði aldrei vogað sér.
Ég tók upp símann aftur og hviss, bang, Hilda mætti með klósettpappír, meira að segja frá Costco, og ekkert neyðarástand myndaðist. Nú þarf ég bara að láta laga oggulítið vesen á gúmmí-sílikon?kanti í sturtuklefanum og þá verður hægt að vera með sturtuferðir fyrir gestina. Ég þarf að bjóða svo miklu betur en keppinautar mínir (fiskidagar, gleðiganga, KK, dráttarvélar og fleira) þegar afmælið ber upp á laugardegi. Þigg allar góðar hugmyndir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 22. ágúst 2023
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 199
- Sl. sólarhring: 281
- Sl. viku: 1741
- Frá upphafi: 1460674
Annað
- Innlit í dag: 184
- Innlit sl. viku: 1408
- Gestir í dag: 177
- IP-tölur í dag: 177
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni