Smábatnelsi í himnaríki - Taylor heyrir allan sannleikann

SvimiVaknaði um tíuleytið í morgun rosalega lasin ... reyndi að vinna eitthvað, skellti samt inn sápuóperuþættinum Blogg and the Bjútífúl sem ég hafði skrifað í gærkvöldi og fór svo að sofa ...svaf til hálffimm í dag. Nú held ég að mér sé loks að batna. Ég snýtti mér í morgun og þurfti að styðja mig við vegg, mig svimaði svo. Djísus! Langt síðan ég hef orðið svona lasin.

 

Er að skrifa ofsafengilega spennandi grein núna og þegar hún er búin skelli ég í eina sápu ... nú langar mig að troða smá ofbeldi og kynlífi inn í þetta, allt of teprulegt það sem komið er miðað við það sem gerist í sjálfu Boldinu:

Stefanía sagði Taylor að Brooke hefði stungið undan dóttur sinni, Bridget, og eignast barn með Deacon (sem var áður ástfanginn af Amber). Og hefði þar að auki sofið hjá Nick sem er í þann veginn að verða tengdasonur hennar.

Tómas segir við Eric, afa sinn, þó ekki blóðskyldan, að hann hafi áhuga á því að feta í fótspor hans og Ridge, föður síns, og gerast tískuteiknari! Eric er eitthvað hikandi og segir að sumarið sé ekki réttur tími. Tómas er þó ekki alveg tilbúinn til að vera sendisveinn allt sumarið.

Brooke svaf víst hjá Nick daginn eftir að hún hélt að Ridge væri dáinn (já, hann dó víst eða var úrskurðaður látinn) og Brooke hélt á tímabili að Nick ætti RJ, litla barnið sem þau Ridge eiga saman. Ridge og Brooke hlera við dyrnar ... og koma svo inn. Taylor spurði Brooke hvort þetta væri allt saman satt!

Hinn nýi RickÞetta er hinn nýi Rick sem kemur inn í þáttinn á næstu mánuðum eða árum!

Svona er maður nú klár að njósna.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Ertu búin að vera heima í allan dag ljúfan, að drepast úr veikindum ... svo heldur fólk að þú drepir og drepir (hehe)  Láttu þér batna ......

www.zordis.com, 28.2.2007 kl. 17:59

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ elsku kerlingin mín...láttu þér nú fara að batna. Knús!!!

Þú heldur okkur öllum svo heilbrigðum með því að láta okkur hlægja svona mikið..við verðum öll arfagömul með þessu áframhaldi!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 18:06

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Takk, elskan!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.2.2007 kl. 18:10

4 Smámynd: Gerða Kristjáns

Farðu vel með þig ljúfan, og láttu þér batna

Gerða Kristjáns, 28.2.2007 kl. 18:15

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Heheheh, hvað er skvaller? Íris er snillingur í fréttum af fræga fólkinu ... ég er ekki góð í slíku ... ertu eitthvað að dissa mig? Passaðu þig, þú gætir lent í óvæntu slysi í Blogg and the bjútífúl!!! Múaaaahahahah

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.2.2007 kl. 18:26

6 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Gerða verður í stóru hlutverki ... fyrst hún er svona mikil dúlla við mig!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.2.2007 kl. 18:27

7 Smámynd: Bragi Einarsson

Hm, skondið handrit! Sé ég Skara gullskalla þarna í flokki frumsaminna handrita?
En endilega láttu þér batna, ég hef sloppið við flensuna hingað til (7-9-13 -  bank bank bank) 

Bragi Einarsson, 28.2.2007 kl. 18:35

8 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Ja, ef þetta ... ég meina þegar þetta verður kvikmyndað veit maður aldrei hvað gerist!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.2.2007 kl. 18:40

9 identicon

auðvitað verður að koma ofbeldi og kynlíf ert sko alveg með frjálsar hendur með minn karakter ... get alveg höndlað ýmislegt sko :) nema að gera mig feita þá verð ég brjáluð ;)

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 19:01

10 Smámynd: Gunna-Polly

láttu þér batna

ps pant vera lík sem lifnar við í blogg and the bútífúl  

Gunna-Polly, 28.2.2007 kl. 19:10

11 Smámynd: Saumakonan

"skvaller" er sögusagnir eða kjaftagangur á sænsku hehe     Láttu þér nú batna almennilega og vertu ekki að rjúka neitt út í bráð... þessi flensuskratti er skæður  og það er betra að taka aukadaga undir teppi heima í staðinn fyrir að láta sér slá niður aftur.   Hlakka til að sjá framhaldið af B&B...   nú er maður orðin húkkt! LOL

Saumakonan, 28.2.2007 kl. 19:21

12 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Góðan bata, kæra kella, mundu engifer og koníak, Kristófer og salmíak.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 28.2.2007 kl. 21:53

13 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Sæl kæra vinkona, vona að þú sért nú að hrista af þér allan krankleika og slappelsi, lét eftir mér í síðustu viku að horfa á BB og svo aftur í dag og ég hef það á tilfinningunni að ég hafi ekki misst af neinu, segi þér seinna hvar ég faldi gimsteininn, smá hint, hann er ekki inn til dala eða upp til fjalla.

Góð hugmynd engifer og koníak.

Pétur Þór Jónsson, 28.2.2007 kl. 21:59

14 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hæ Pétur minn, já ég ætla að hrista þessi leiðindi af mér! Á hvorki engifer né koníak en það má bæta úr því fyrir helgina. Verst að ég get ekki drukkið koníak. Ég finn eitthvað annað. Hheheheheh

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.2.2007 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 3
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 637
  • Frá upphafi: 1505990

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 514
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband