10.3.2007 | 17:59
Ungfrú Vesturland ... martröð ... og danskir brjóstdropar
Konur á mínum aldri hafa svo gaman af því að fara í apótek, ég hef orðið vör við það hjá sjálfri mér. Þar hittir maður jafnaldrana og getur talað við þá um krankleika sem farnir eru að hrella okkur og hægðirnar eru líka alltaf frábært umræðuefni. Eða þannig! Ég fór út í apótek skömmu fyrir tvö og keypti m.a. baðbombur fyrir mig (úje) og lyf fyrir Míu systur sem þjáist af kvefi. Norskir brjóstdropar heita núna Danskir brjóstdropar. Það vissi ég ekki. Svo bað systir líka um panódíl hot!
Í stað þess að fara beint til sjúklingsins kom ég auðvitað við í kaffihúsinu sem ég er að verða háð. Mágur minn sótti mig svo þangað eftir klukkutíma. Svo mikið var að gera í Skrúðgarðinum að kalla þurfti út aukamanneskju og ég fór út án þess að borga, lofaði að koma aftur sem ég stóð við eftir að hafa spjallað við sjúklinginn í smástund ... og horft á X-Factor úrslitin aftur. Ekkert breyttist, Gylfi fór heim í dag líka.
Ég tók mynd á leiðinni út í apótek, mynd af æskuheimilinu mínu sem stendur beint fyrir aftan Einarsbúð og er orðið gult á litinn. Gömul martröð rifjaðist líka upp fyrir mér síðan ég var sjö ára. Fyrir neðan litlu svalirnar var öskutunnan alltaf (og er enn) og eina nóttina dreymdi mig að stór og loðin risakrumla, jafnbreið tunnunni kæmi upp úr henni eins og hún ætlaði að hremma húsið. Vaknaði öskrandi ... ekki löngu síðar skildu foreldrar mínir og ég tók það mjög nærri mér. Maður ætti ekki að gera lítið úr draumum. Undirmeðvitundin er algjör blaðurskjóða.
Í apótekinu hitti ég gamla nágranna sem bjuggu við hliðina á mér í tilraun 2 til að búa á Skaganum (þegar ég sat saklaus inni í hjónabandi), þær Dúnu og Stínu, dóttur hennar. Þær voru í óðaönn að velja sér snyrtivörur fyrir kvöldið ... en Ungfrú Vesturland verður kosin í kvöld. Þórdís, systurdóttir Dúnu er einn keppanda og mér skilst að hún sé sigurstrangleg, hæfileikarík, sæt og klár. Þegar hún verður ungfrú heimur get ég montað mig af því að hafa hitt móðursystur hennar og frænku í apótekinu ... jamm.
Vitlaust veður er að skella á, hélt að það yrði á morgun, ég sem fylgist svo grannt með veðri en hvað er einn dagur milli vina ... eða vikur, eins og vinir mínir með svalahurðina hugsa eflaust.
Já, það er fúlt að verða að athlægi á Skaganum fyrir að vera með svalir sem ég kemst ekki út á! Hhehehehe! Þær gera ekkert núna nema skyggja á útsýnið mitt. Sjá myndir.
Best er að vera í bókaherberginu við skrifborðið, þar skyggir ekkert á ... nema fuglinn fljúgandi!
Er með nokkrar spennandi DVD-myndir til að horfa á og líka nokkrar bækur. Mikið væri gott ef helgarfríið væri fjórir dagar og þá hægt að komast yfir svo mikið meira. Horfði grútsyfjuð á heimildamyndina hans Al Gore og hún er snilld! Ekki skrýtið að hún hafi fengið Óskarinn. Ætla að horfa á hana aftur, ekki syfjuð, og njóta hennar betur. Héðan í frá ætla ég að leggja miklu meira af mörkum til umhverfisverndar og veit að það munar um hvert okkar.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 20
- Sl. sólarhring: 46
- Sl. viku: 847
- Frá upphafi: 1515942
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 709
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Fallegur köttur. Minnir mig á hana Rósu mína.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 10.3.2007 kl. 18:37
Já, hann Tommi er einstaklega fallegur ... og líka góður köttur.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.3.2007 kl. 19:02
kisi er sætur
Ólafur fannberg, 10.3.2007 kl. 19:23
Vona að þú hafir skilað kveðju til nöfnu minnar hennar Maríu... Það er reyndar akveg rosalega gaman að fara í apótek, það er svo margt að skoða og þú átt svakalega fallegar kisur
bara Maja..., 10.3.2007 kl. 20:02
Ég elska apótek! Get verið þar tímunum saman og skoðað vítamín og snyrtivörur . það var klikkað veður hérna í Grafarvoginum um kl. 18 í kvöld. Þá fór ég út að skoða íbúð og missti bílhurðina upp , ég veit ekki hvert! Skaðræðisrokhviður! Held það hafi skánað veðrið en er reyndar ekki viss, er bara inni í hlýjunni við tölvuna .
Kemst ekki yfir útsýnið hjá þér Gurrý, finnst svakalega sjarmerandi ströndin og allur þessi sjór!
Ester Júlía, 10.3.2007 kl. 20:24
Apótek eru skemmtileg, Það að versla í Boots (það eina jákvæða við Standsted flugvöll) tekur á. Ef maður kemst framhjá öryggisverðinum þá nær maður smá rispu á krítinni ... útsýnið er himneskt það er ekki hægt að mótmæla því! Væri alveg til í að eiga svona góða útsýnishöll .....
www.zordis.com, 10.3.2007 kl. 21:07
Guðsminnsalmáttr hvað útsýnið hjá þér er mikil guðsglóandi dýrðardásemd. Kisi er krútt.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.3.2007 kl. 21:08
Það er alltaf gaman að líta við hjá þér í himnaríki Guðríður. Þetta hlýtur að vera frábær staður þarna við hafið .
Ég sé að þú ert að horfa á myndina hans Gore. S.l. fimmtudag var frumsýnd á Channel 4 í Englandi myndin The Great Global Warming Swindle. Ég var einmitt að blogga um hana áðan hér. Í þessari mynd kemur ýmislegt fram sem ekki sást í mynd Gore. Ekki síður merkileg mynd en An Inconvenient Truth. Bara dálítið öðruvísi...
Ágúst H Bjarnason, 10.3.2007 kl. 21:13
Já fallegur kisi minnir á mogga minn
Kristín Katla Árnadóttir, 10.3.2007 kl. 21:39
Ertu viss um að þetta hafi ekki verið Gammel Dansk?
Sigríður Jósefsdóttir, 10.3.2007 kl. 21:53
Heheheh, frú Sigríður, það gæti sko alveg verið!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.3.2007 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.