Endurbætt Taylor

Hversdagurinn er sko kominn ... með öllu sínu bjútífúla boldi!

Taylor, ný og endurbætt„Ekki meiri hjálp og afskiptasemi,“ segir Ridge við móður sína sem situr í hjólastól á sjúkrahússtofunni. Líklega að gera sér upp hjartaáfallið.
Nick skammar Taylor fyrir að Ridge yfirgaf litlu börnin (Hope tengdasonardóttir og litla dýrið Ridgeson) þegar hann kastaði Brooke frá sér. Taylor tekur hann á sálfræðinni, enda geðlæknir.
Bridget hin trúlofaða kyssir daðrarann Dante sem bjargaði Taylor úr höllinni og frá Ómari. Kærasti Bridgetar er hvort eð að tala við Taylor og þau virðast vera nokkuð spennt hvort fyrir öðru.
Ridge the hönk bankar að dyrum hjá Brooke og segist hafa gert mistök, hann hafi ekki átt að hlusta á mömmu sína!
Brooke er í gleðisjokki ... the end. Ég vissi að stóru varirnar á Taylor myndu skemma fyrir henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég andaðist við lesturinn. Þvílík snilld, þvílík frjósemi hugans hjá handritahöfundum, þvílíkur léttir að vera horfin yfir móðuna mikluog þurfa aldregi, aldregi að horfa á Bóldið.  Mun samt halda áfram að blogga (Kræst) og "athugasemda" hjá bloggvinkonum mínum.  Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.4.2007 kl. 17:58

2 Smámynd: www.zordis.com

Sápurnar eiga að vera í sturtuklefanum .... kona er bara útundan handan hafs og strauma, en ég á mér drauma og spóka mig í regnvatni suður Spánar .... kveðja á sætu konuna á Akranesi

www.zordis.com, 10.4.2007 kl. 18:55

3 identicon

Að ganga í endurnýjun lífdaga er snilldarráð, Sally í Boldinu hafði þó vit á því að koma sér úr landi og gengur nú undir nafninu Rósa Guðbjartsdóttir og býr í Hafnarfirði.......

Jónsi (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 20:32

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ji minn einasti. Brooke er eins og leirskúlptúr á myndinni til hægri. Brjóstin á henni hæfa einhvern vegin hvorki tíma né rúmi. Er Ridge hættur að elska hana út af varaþurrknum haldiði?

Jóna Á. Gísladóttir, 10.4.2007 kl. 20:39

5 Smámynd: bara Maja...

Amláttugur, er ég að missa af einhverju ???

bara Maja..., 10.4.2007 kl. 20:56

6 identicon

Var komin með einhver ónot jafnvel timburmenn, og skildi ekki af hverju. Líður miklu betur núna eftir einn skammt af Boldinu, það má greinilega ekki líða svona langt á milli.

Takk snillinn þinn 

kikka (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 21:00

7 Smámynd: SigrúnSveitó

Ég verð að vera sammála Örnu, mér finnst Taylor MIKLU sætari áður en hún fór út í allar breytingar og viðbætur...

SigrúnSveitó, 10.4.2007 kl. 21:14

8 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Fallegt, já já .....  en mikið silikon til spillis. Hugsaðu þér Gurrí hvað hefði mátt þétta marga glugga með þessu fyrir sjávarrokinu  ...

Hólmgeir Karlsson, 10.4.2007 kl. 21:52

9 identicon

Hún er eins og önd með innbyggð flotholt.....af hverju að gera þetta við áður fallega konu....mig ekki skilja ...

Magga mákona (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 22:14

10 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Skil þetta ekki heldur. Mikið vildi ég að allt þetta sílikon væri í gluggunum mínum! Þá þyrfti ekki handklæðavakt í himnaríki!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.4.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 3
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 637
  • Frá upphafi: 1505990

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 514
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband