Vá, gleymdi að bolda ...

Vá, ég gleymdi að bolda í kvöld og þetta var dúndurþáttur. Stefanía fór í slag við Jackie og Brooke, stútaði lampa og allt! Hjartalæknirinn hefur greinilega blaðrað öllu í Jackie eftir að hún táldró hann og Jackie tók allt upp á segulband. Þættinum lauk þegar Stefanía ætlaði að fara að játa allt fyrir væntanlegum brúðhjónum og brúðkaupsgestum. Verður af giftingunni? Ég bara spyr því að ég sé fram í tímann og veit að Nick á eftir að tæta í Taylor með varirnar og Brooke (orðin leið á Ridge) verður rosalega afbrýðisöm.

Hér er krassandi aukabíómynd fyrir þá sem eru enn vakandi:

http://www.grapheine.com/bombaytv/index.php?module=see&lang=uk&code=e6157bc0b73db30e17d723f53cf3676b  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Olga Clausen

Vildi að ég væri með á nótunum en hvaða þáttur er þetta?

Guðrún Olga Clausen, 28.4.2007 kl. 00:36

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

ertu þá að meina litlu uppþvottavélina?

Hann er samt enn með hneppt of langt niður Gurrí mín. grunndvallaratriðið manstu??? Svona menn drepa ketti! Og kunna ekki  á kaffivélar og því síður að keyra strætó. Geta bara fullnægt konum. Common!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 00:40

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Arna, við viljum láta kalla okkur kvikmyndagerðarmenn ...

Olga, þú þarft að fylgjast betur með ... heheheh!

Katrín ... það er aldrei of illa farið með góða menn og ég er rétt að byrja! Múahaha 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.4.2007 kl. 00:59

4 identicon

Jónsi elskar ketti og á fallegasta kött í heimi - maður leggur sko til með sér.

http://www.grapheine.com/bombaytv/index.php?module=see&lang=fr&code=3e3603f77322792d8b4d88251213649f

Jónsi (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 01:09

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Minn bara hefnir sín ... kattavinir eru ekki skammaðir á þessu bloggi þannig að þú sleppur vel, heillin!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.4.2007 kl. 01:20

6 identicon

Heil og sæl, Guðríður !

Að gleyma, að ''bolda''??????? Sál þín mun, að eilífu fordjarfast, í vítislogum: og munt þú aldrei sólarljós sjá framar, þessa heims; hvað þá annars, Guðríður mín hehehehehehehehe...........................................

(Mátti til, Guðríður; smávegis hrekkur, og hvíld frá pólitíkinni.)

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 00:38

7 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hehehhehe, skamm, Óskar! Boldið er dásamleg hvíld frá stjórnmálunum!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 30.4.2007 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 47
  • Sl. viku: 774
  • Frá upphafi: 1528650

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 620
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Herkúles besti
  • Elsku Herkúles
  • Catalínusautjándi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband