Glćpónabakarar og fávitavarp

Kaffivél og kvörnLífiđ er stutt - ţađ stutt ađ mađur á ekki ađ eyđa ţví í ađ drekka vont kaffi - svo ég fór í Kaffitár í Borgartúni og keypti mér alvörukaffimaskínu og -kvörn og alls konar fylgihluti.

Einhvern tímann á nćsta ári ţegar ég hef lćrt á grćjurnar verđur nú aldeilis gaman ađ geta bođiđ upp á alvöru-latte. Er jafnvel ađ hugsa um ađ nota páskafríiđ í námiđ en miđađ viđ gengi mitt í tölvu- og netmálum grunar mig ađ útkoman yrđi te eđa jafnvel eplasafi, hvađ veit mađur? Veit ađ stutt er í leiđbeiningar á íslensku frá Kaffitári - ţrjú myndbönd sko. Ég fékk heilt kíló af Húsblöndu í kaupbćti og er enn hlýtt í hjartanu eftir einstaka ţjónustu.

Talandi um drykki / drykkju ... ég fór á Vor í dal á sínum tíma en ţađ var Hilda systir sem fór á Rauđhettu - ekki ég. Mögulega var ég vaxin upp úr útihátíđaveseni eđa var ađ vinna hjá Hrađfrystistöđinni í Grindavík og fór ţá á hátíđina Svartsengi (sem mig minnir) - eđa var úti í Eyjum ađ vinna í Ísfélaginu og ţá var nú sjálfmćtt á Ţjóđhátíđ (1974). Ekki međ ártöl allra hátíđa á hreinu. 

ÚtihátíđUnglingadrykkja var mikil og alveg umborin á ţessum tíma (áttunda áratug síđustu aldar) og sá unglingur ţótti flottur sem gat t.d. smyglađ víni inn á útihátíđir. Líklega á visst skyldmenni mitt smyglmetiđ ... hún var ađ vinna í bakaríi á ţessum tíma og spurđi bakarana hvort ţeir vćru ekki til í ađ skella einni Brennivín og einni Bianco (hver man ekki eftir Bianco?) inn í brauđdeig og baka. Glćpónabakararnir voru alveg til í ţađ fyrir ţessar unglingsstelpur svo ţćr gćtu dottiđ í ţađ á Rauđhettu. Inn komust ţćr međ brauđin tvö - engin ástćđa til ađ halda nokkuđ misjafnt, enda gekk blekkingin ţađ langt ađ međ brauđinu í pokanum var bćđi smjör og álegg til ađ gulltryggja glćpinn. Svo drukku börnin sitt brennivín og keyptu eflaust rćkjusamlokur međ einni rćkju - eins og algengt var á ţeim tíma. Aldrei of illa fariđ međ góđa unglinga hét ţessi samlokugerđ, ef ég man rétt.

Í dag hefđi ţetta orđiđ barnaverndarmál og bakararnir veriđ reknir, gott ef ekki nánast lent á Hrauninu. Enn er drukkiđ en nú fer ţađ ekki jafnhátt. Ţegar krakkar eru komnir í menntó eru bjórkvöld fastur liđur - og fyrirpartí (á undan t.d. árshátíđ) og ţar drekka sextán ára krakkar jafnt sem nítján ára. Drekka allt sem rennur nema skíđasleđa og magasleđa, eins og Halla frćnka myndi orđa ţađ. Covid hefur auđvitađ klúđrađ bjórkvöldum í heilt ár.

Viđ systur fórum líka í Costco - mig langađi í ketilbjöllu og ég fann ketilbjöllu - sem ég keypti ţótt hún vćri sennilega allt of ţung fyrir byrjendur, eđa 12 kíló. Ég fer bara rólega í ţetta. Afgreiđslumađurinn almennilegi (frá Marokkó, giftur íslenskri og búsettur hér í 12 ár) horfđi ađdáunaraugum á mig (eins og karlarnir í rćktinni) ţegar hann sá ketilbjölluna. Hann var ekki jafnglađur ţegar hann sá nautahakkiđ, sítrónukökuna (sandkaka međ sítrónubragđi, mjög góđ), viftuna fyrir sumariđ (hitinn hér viđ tölvuna fer upp í 40°C á ömurlegustu dögunum. Vont veđur í mínum huga: sól, logn og hiti yfir 15°C) - hef ekki keypt meira árum saman í Costco og ekki er allt upptaliđ. Kortiđ borgar sig alltaf upp í fyrstu heimsókn eftir endurnýjun, í alvöru. Eins og fyrst, fínir skór ţar á 3.700 kr. en kostuđu vel yfir 10 ţúsund kr. „á Íslandi“ eins og fólk orđađi ţađ, fannst ţađ vera statt erlendis - gott grćnmeti og ávextir og frekar lítiđ okur ...

FávitavarpiđSvo heimsóttum viđ mömmu og dáđumst ađ útsýninu hennar, sófanum sem viđ keyptum fyrir hana um daginn, Pétri í útvarpinu (djók) en ég lét hana samt vita ađ Jóhannesarpassían yrđi á Rás 1 um páskana ...

Davíđ skutlađi okkur heim á Skagann, enda bíllinn trođfullur af dóti fyrir mig - ţar var líka nýi skrifborđsstóllinn fyrir drenginn - og međ Muse á hćsta tók ferđin í raun bara tíu mínútur, ţannig.

MYND NR. 3: Ţađ var gaman ađ sjá fólk veifa í gegnum vefmyndavélina svona fyrstu 200 skiptin, svo fór ţađ ađ verđa leiđingjarnt, síđan pirrandi. Nú hefur veriđ stofnađur Facebook-hópur fyrir ţá sem hafa ekki alveg nógu gaman af ţví ţegar einhver skyggir á gosiđ ţeirra.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 39
  • Sl. viku: 472
  • Frá upphafi: 1526441

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 407
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Hjúkrunarneminn
  • Sófamorðingi 2
  • Sófamorðinginn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband