Að skemmta sér yfir litlu ...

Æsispennandi hraunflæðiFyrir skömmu, eða innan við sólarhring, komst ég að því að ég er týpan sem hefur gaman af því að sjá málningu þorna eða hraunflæði fara af stað úr einum dal í annan - starði (á væntanlegt hrauðflæði) þar til svefninn yfirbugaði. Eins gott, þetta er ekki enn farið af stað. Þrátt fyrir öryggisbönd sýnist mér fólk fara þarna yfir án þess að blikka auga ... spurning um að taka 40 þúsund kall á mann fyrir björgunina ... eða nota tækifærið og ... æ, blóðþorstinn yfirbugar mig stundum.

Helgin var annasöm, eða bíltúr út í sveit í gær, heimsókn til konu sem býr í klukkutímafjarlægð frá Skaganum, þetta var mikil upplyfting, eins og að fara í sumarfrí. 

 

Bílferð í roki og regniÞarna eru komnir tveir hlutir sem fólki finnst ekki endilega sjálfsagt að skemmta sér rosalega mikið yfir. Hraunrennsli sem fer hægt yfir, mjög hægt og ökuferð í roki og rigningu. Sennilega eru þetta Flateyjargenin (Skjálfanda) þar sem fátt gerðist nema kannski á 80 ára fresti þegar ísbjörn kíkti í heimsókn en ég hef reyndar ekki lesið sögu Flaeyjar. Þetta gefur manni ákveðna innri ró sem skemmist svo alveg á heimaleikjum ÍA sem fara fram hér á hlaðinu. Enda hef ég oft sagt að fótbolti hljóti að vera af hinu illa, eða syndsamlegur, hann er svo skemmtilegur ... og talandi um syndina ...

 

Presturinn á Siglufirði skrifar grein um ketti í Morgunblaðið í dag en Mannlíf birtir hluta úr henni. Af hverju datt manninum (hann segir það fara í manninn, ekki málefnið, að kalla hann prest) ekki í hug að biðla bara til kattaeigenda (eða hreinlega fara fram á við þá) um að halda dýrum sínum inni á þessum tíma, í stað þess að lýsa yfir stríði? Hann hefði frekar fengið fólk (bæjarbúa almennt) í lið með sér þannig, tel ég líklegt. Held að allir, a.m.k. flestir, vilji að ungar komist á legg - og ... saddir og sælir heimiliskettir hafa nákvæmlega ekkert erindi á varpslóðir fugla. Kattaeigendur skilja það líka. Það er þó fáránlegt að ganga jafnlangt og Húsvíkingar hafa gert. Þótt ég sé með inniketti myndi ég aldrei í lífinu vilja flytja í bæ þar sem slíkar reglur væru (kettir bannaðir úti), þrátt fyrir Jajadingdong-barinn og að vera skyld helmingi bæjarbúa.

 

EggjakakaGuli maturinn úr síðustu færslu var nýttur, eða afgangarnir, og búin til eggjakaka úr bernes-kartöflunum. Þrjú egg, mjólk, salt og pipar - við lágan hita, reynt að snúa við, tókst í sex bitum ... Dugði sem ágætur bröns á laugardegi með tómötum og agúrku, afgangurinn um kvöldið ásamt skyri - en ekki SAMAN. Ég kann að elda. Ég sýð t.d. spaghettí al dente þótt ég hafi alist upp við að það hafi verið soðið eins og kartöflur, í hálftíma. En ég fékk aldrei að smyrja fransbrauð með smjöri og strásykri eins og ein leiksystir mín gerði iðulega. Eða notaði púðursykur í stað salts þegar etið var soðið egg.

Það eru greinilega til ýmsar furðulegar matarsamsetningar. Og bara til dæmis hvað ófrískar konur verða brjálaðar í - væri efni í heila bók. Ég var brjáluð í kotasælu ... sem ekki var byrjað að framleiða á Íslandi á þeim tíma (1979-1980) en hafði kynnst og lært að meta 1976, þegar ég var au-pair í London. Namm, mér finnst hún enn mjög góð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Prestsins mikið raus og rugl,
rotinpúrulegur,
hann er mikill furðufugl,
og fjandi líka tregur.

Þorsteinn Briem, 31.5.2021 kl. 13:12

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Svona, svona ...

Held að norðanmaðurinn sé alveg ágætur þótt við séum ekki sammála í sumum málum. Ég féll í sömu gryfju og einhverjir, að það skipti máli hvaða starfi hann gegnir, en manni var svo sem innrætt í æsku að það fyndist vart betra fólk en prestar og nunnur (sem virða ALLT sem lifir) ... það voru eflaust leifar af því sem ég klikkaði á. :)

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 31.5.2021 kl. 14:02

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jóhann Bessason, bóndi og smiður á Skarði í Dalsmynni, forfaðir undirritaðs í fjórða lið, smíðaði meðal annars Laufás í Eyjafirði og Flateyjarkirkju á Skjálfanda.

Vorið 1882 var Jóhann Bessason að smíða
hákarlaskálm í smiðju sinni þegar hvítabjörn birtist í smiðjudyrunum.

Jóhann mundaði hákarlaskálmina og gekk á móti hinum óboðna gesti þannig að hann hörfaði úr dyrunum en Jóhann hrakti hvítabjörninn niður að Fnjóská, þar sem hann stakk sér í vök. cool

Bóndinn á Skarði


Þorsteinn Briem, 31.5.2021 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1527925

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 121
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband