Á trúnó með kokki og djammað í drepsótt

InkedÁ hlaðinu ..._LIRúmlega fjögur í dag fann ég fyrir fiðringi og spennu. Það var að koma helgi, fríhelgi sko, drengurinn gistir annars staðar fram á mánudag. Hægt að djamma, sukka og svalla, jafnvel skemmta sér.

 

Upp úr hálffimm var ég orðin ein í Himnaríki. Hafði vaknað um ellefu og því ekkert „borðað“ nema tvo heimatilbúna latte-bolla en þar sem finu matarvagnarnir úr Reykjavík ætluðu að vera á Skaganum, á hlaðinu hjá mér, hugsaði ég mér gott til glóðarinnar. Ekki séns að ég nennti að útbúa hungangsleginn fasana með frönskum og kokteilsósu. Aðeins tveir vagnar og valið þá auðveldara. „Einn hreindýraborgara, takk,“ sagði ég við Silla kokk, ég var nánast klökk af gleði yfir að vagnarnir væru komnir í grennd.

 

HreindýraborgariÁ Írskum dögum fékk einhver þá „snilldarhugmynd“ að láta vagnana vera í margra kílómetra fjarlægð við vanalega staðinn, eða við vitana fínu á Breiðinni, ég gafst upp eftir átta klukkutíma göngu og sneri við ... Silli skældi líka (ef þetta var Silli) og sagði að hann væri mjög sáttur á hlaðinu hjá mér, það væri alltaf mikið að gera þegar vagnarnir væru þar, enda miðsvæðis. Eins konar mini-tívolí var á staðnum líka en til að flotti hreindýraborgarinn minn kólnaði ekki ákvað ég að sleppa því að hoppa á litlum hoppköstulum sem hefði samt verið gaman.

 

Borgarinn var hreint út sagt æðislegur og ég nánast sé eftir að hafa ekki keypt mér tvo og borðað hinn upphitaðan seinna í kvöld. Kannski þegar ég væri búin að djamma  ... Ég henti umbúðum, setti plast- og pappahluta, þurrar fernur við vaskinn og annað dót í endurvinnslupokann, leirtau í uppþvottavélina. Gerði súperfínt í eldhúsinu. Setti svo í þvottavél og ákvað að hátta og fara í náttföt til að geta þvegið ALLT ... Vélin fór í gang, í fyrra lífi (FC eða FK)) hefði ég ekki getað það, blaut föt og ætla að fara út? Og eftir að ríkið (Vínbúðin) flutti enn lengra upp í sveit fer ég hvort eð er alveg að koma út úr skápnum sem algjör bindindismanneskja. Það hefur nú oft munað litlu, aldrei eins og núna. 

 

 

HamfaramyndÁ þremur kvöldum tókst mér að klára um tíu Barböru Cartland-rafbækur á Storytel (hélt að hún hefði skrifað fleiri). Jeminn hvað þær enda asnalega, eða eru endasleppar, BC fléttar endinn aldrei almennilega, ég áttaði mig ekkert á því í gamla daga. Fékk pabbi hennar biskupsstöðuna þótt vondi hertoginn sem hún átti að giftast til að pabbi hennar fengi betra starf, bróðir hennar kæmist í flottan háskóla og systir eitthvað annað, hafi dáið í einvígi í miðju brúðkaupinu þegar maðurinn sem hún elskaði í raun og veru (eftir u.þ.b. þriggja klukkutíma kynni) náði að afhjúpa hertogann sem föðurlandssvikara og það í návist konungs sem var svaramaðurinn? Var ekki frekar klént hjá kóngsa að láta manninn sem hún elskaði fá allar eigur vonda hertogans, og nota tækifærið og láta ástfangna parið giftast, fyrst hvort eð er var búið að undirbúa brúðkaup, nánast spígsporandi ofan á líki vonda hertogans?

 

Best að setja í þurrkarann, og fara að róa niður djammið, stilla á Fávitavarpið í Langahrygg (RÚV2) og fylgjast með fólki skyggja á gosið sem fer senn að hefjast eftir síestu dagsins. Ef ég hækka í sjónvarpinu fæ ég tónlist frá níutíu og eitthvað í umsjá Dodda. Það er akkúrat áratugurinn sem mér finnst svo frábær og vakti mig af tónlistardásvefni undanfarinna ára. Björk, Radiohead, Nirvana ... bara MTV í kringum 1995! Það væri gaman að heyra Babylon Zoo, one hit wonderið sem var spilað út í eitt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sko til, "hoppköstulum" en ekki "hoppuköstulum".

Ekki eru allir Mörlendingar fífl, enda þótt þeir hafi flestir sofið hjá ættingjum sínum þar til Pólverjar fluttu til landsins. cool

Þorsteinn Briem, 21.8.2021 kl. 10:05

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þegar einn blaðamaðurinn á mbl.is skrifaði "verðlaunafés" þegar hún átti við "verðlaunafjár" var undirrituðum nóg boðið og sendi henni leiðréttingarbeiðni.

Því miður ætlar OnlyFans að loka fyrir klámið, þannig að hún getur ekki aflað "fés" á þeim vettvangi og verður því að stunda aðra "fésöflun" eins og "fésmálaráðherrann". cool

Þorsteinn Briem, 21.8.2021 kl. 10:21

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hahahahahahaha

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.8.2021 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband