Messur í þvottahúsinu og æsispennandi kosningaloforð ...

Verður ekki alltaf að vera prumpbrandariKosningar eftir mánuð og loforðin flæða yfir okkur kjósendur, eins og peningagjafir (háar millifærslur til heimilanna), vinna eftir sjötugt í leikskólum (ekki langar mig að vinna eftir sjötugt) og fleira væntanlegt. Man vel undarlegu "leiðréttinguna" (tilfærsluna?) sem breytti engu. Mér líst vel á marga sem eru í framboði en ég myndi aldrei kjósa flokk með villu í nafni sínu. Tilbúið, dulbúið dæmi: Flokkur Krúttlegra (tveir hástafir) ... ekki frekar en að vilja eiga viðskipti við búð sem heitir t.d. Pabbi Veit Sitt Af Hverju - eða Beggi Bakar, eins og hefur áður komið fram á þessum vettvangi. Svona er maður nú innilega herptur handavinnupoki inn við beinið. 

 

Allt í drasli össsssDagurinn í dag hefur m.a. farið í tiltekt og önnur skemmtilegheit ... fann t.d. þrennar nýjar buxur (með verðmiða, voru ódýrar, sjúkk) á fósturbarnið, sem hafa einhvern veginn lent á milli skinns og hörunds hér í Himnaríki og passa ekki lengur, en Rauði krossinn fær dásemdarsendingu bráðum í stórum svörtum poka (hausttiltektin) ... Ég fann líka þrennar íþróttabuxur (stuttar) og bara einar voru enn mátulegar. Þetta var í poka inni í dýrabúri (!?!) sem ég er að hugsa um að auglýsa og gefa (passar fyrir tvær samrýndar kisur eða hund/a). (Grillir i búrið bak við stólinn á fyrir-myndinni, hver vill eiga?)

 

 

Fyrst poki með gersemum gat leynst í búrinu í tvö ár, hef ég greinilega ekkert að gera við það. Býst við kaupa lítil taubúr undir kisurnar ... og bíða og vona að það komi dýralæknir á Skagann ... vona bara að þær veikist ekkert ... aldrei ...

 

(Sé hér á eftir-tiltektarmyndinni að það er fyrir löngu komið að því að kaupa nýja kattaklóru sem er hálf undir skrifborðinu, ég klippti versta hryllinginn af og ryksugaði það. Viftan var notuð aðeins í dag, í fyrsta sinn síðan fínu sólarfráhrindandi gardínurnar komu en sama dag hætti sólin að skína og það fór að hvessa og kólna úti svo þær hafa verið óþarfar, þetta er allt eitt risastórt samsæri. Fékk bláu, hlýju peysuna á skrifborðsstólnum í afmælisgjöf og flissaði innra með mér, hvenær ætli verði hægt að nota svona peysu í svona hita, ég er ALLTAF í henni núna, nema þegar ég hamast í tiltekt).

 

Aðeins skárraPrestur flytur væntanlega innan tíðar hingað í blokkina sem hýsir Himnaríki. Íbúð prestsins er vandræðalega neðarlega í stigaganginum en nær nú samt, held ég örugglega, að tilheyra Hreinsunareldinum ef farið er grimmt eftir fræðunum (og gömlu þriggja hæða heimavistinni á Bifröst). Þori ekki að segja meira, þá brjálast húsfélagsformaðurinn (á 1. hæð) en ég held reyndar að víti hljóti að vera ansi mikið niðurgrafið, er það ekki?

 

Svo er stóra spurningin hvort hringt verði dyrabjöllum til messu á sunnudögum niðri í þvottahúsi (hjólageymslan er full). Ég er alveg til í að syngja á milli atriða, var í Kór Langholtskirkju í nokkur ár og um skamma hríð í Mótettukórnum (Eliah eftir Mendelssohn), ávallt alt en söng mig svo upp í sópran í Fílharmóníu þar sem Krýningarmessan eftir Mozart var tekin (kann hana næstum utan að). Sópranröddin er komin aftur ... kom eftir að ég hætti að reykja.

 

TenórEf hægt væri að virkja fleiri í húsinu, gætum við vel tekið til dæmis Jólaóratóríuna í desember (frekar löng messa, ég veit) eða kantötur eftir Bach sem er kannski hentugra. Ég kann að spila Heims um ból á píanó en Mía systir (píanókennari m/meiru) myndi ábyggilega vera organistinn ef ég gef henni gott kaffi. Gjaldkeri húsfélagsins er í kór, ef hún er sópran, er ég meira en til í að syngja altinn - þá eru það bara bassi og tenór sem vantar. Við Kristján Jóhannsson súperstórsöngvari erum þremenningar úr Skagafirði (Mínerva amma og amma hans voru systur), ég þekki hann ekkert en frændhygli og klíkuskapur eru okkar vinsælustu þjóðaríþróttagreinar svo hann er örugglega til að vera tenór í Þvottahússkórnum - hver gæti verið góður bassi? Frændi minn í útlöndum þekkir Kristin Sigmundsson sem er frekar mikið æðislegur. Þetta er sennilega komið. Alltaf gott að hugsa í lausnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ekki veit undirritaður hvort er verra, stafsetningarvillur hjá "Fokki Fólsins" eða kvenmaður sem "skítur í slánna", eins og íþróttafréttamaður á mbl.is skrifaði nú í kveld. cool

Þorsteinn Briem, 26.8.2021 kl. 22:21

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Úffff ... sá það ekki.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 26.8.2021 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband