Skagagóðmennska, stefnumót og mögulegar fávitahrindingar

Nýju gleraugun keisaransSitt af hverju olli því að ég komst ekki í bæinn (innanbæjar-bæinn minn, Akranes) í dag. Það eru bara dylgjur, algjört bull að ég tími ekki að fara að heiman á meðan karlar á krana eru á sveimi í kringum blokkina. Ætlaði með stráksa á flakk um víðan völl en hann misskildi mig eitthvað og kom ekki heim fyrr en rúmlega fjögur. Í stað þess að fara útúrstressuð og allt of seint (á strætó sem gengur á hálftíma fresti) m.a. í Apótek Vesturlands og Einarsbúð hringdi ég og bað um nauðsynjarnar heimsendar.

 

Mér þótti verst að gera ekki sótt nýju gleraugun, því þótt stráksi kæmi heim kl. 16.08 varð ég að bíða eftir sendingu úr apótekinu og matvörunum. Og svo var klukkan orðin of margt og ekkert hægt að gera nema hringja.

 

„Sjónglerið, góðan dag.“

„Já, góðan dag, það var hringt í mig í fyrradag og mér sagt að nýju, fínu, tvískiptu gleraugun mín væru tilbúin. Klukkan er orðin svo margt, ég næ ekki að koma fyrir sex, verður opið á morgun?“

„Nei, þetta er síðasti laugardagur sumarsins þar sem er lokað, því miður.“

„Er einhver hætta á að þið seljið gleraugun mín öðrum fyrst ég kemst ekki fyrr en eftir helgi?“

„Býrðu ekki í Himnaríki? Ég get skutlað þeim til þín eftir lokun.“ 

 

Og þessi elskulegi sjóntækjafræðingur kom með flottu nýju gleraugun til mín eftir kl. 18 í dag (sjá mynd af mér með gleraugun á nefinu og strák á höfðinu). Þegar Gurrí kemur ekki til Akraness kemur Akranes til Gurríar. Öll mín erindi voru afgreidd, nema eitthvað dekur við drenginn (hann elskar bókabúðina og ég ætlaði að kaupa spilastokk handa honum þar). Við förum bara á morgun ... verst að bókabúðin hefur bara opið til kl. 14 og þá eru flestir enn að nudda stírurnar úr augunum, hefði ég haldið, a.m.k. þeir sem hafa nógu góða samvisku til að geta sofið út.

 

Næsta símtal, kl. 18.15:

HansonsMamma: Sæl, Gurrí mín. Ég hef svo miklar áhyggjur, heyrði af karlamálum þínum á Útvarpi Sögu í dag, á ég að trúa því að þú berir einkamál þín á torg? Eða blogg? Ertu ekki farin að blogga aftur? Arnþrúður, frænka þín í föðurætt, var ábyggilega að reyna að auglýsa eftir manni fyrir þig, ef ég heyrði það rétt. Hún sagði guð ... menn ... eitthvað ...

Gurrí: Þú heyrðir örugglega ekki rétt. Ég lýg eins og ég er löng til hér á blogginu, mamma mín, ég þarf engan mann, ekki fyrst ég er komin með þessa líka fínu uppþvottavél og mér fer hratt fram við eldamennskuna, þökk sé alheimsnetinu (www).

Mamma (afsakandi en spennt: Ég vildi að ég hefði vitað af því fyrr. Það koma margir krakkar (ég elska þegar hún kallar mína kynslóð krakka) hingað til að heimsækja foreldra sína, einn mjög myndarlegur fór herbergjavillt og við vorum búin að rabba saman í tíu mínútur þegar hann uppgötvaði að ég væri ekki pabbi hans. Mér tókst að komast að því að hann er einhleypur, kann að búa til sítrónufrómas en hann gæti verið í Miðflokknum ... eða var það Alþýðubandalaginu? Ja, hann var orðinn svo spenntur fyrir þér að hann rauk af stað út í bíl án þess að hafa heimsótt pabba sinn, þú átt alla vega stefnumót við hann núna klukkan hálfsjö á Galito. Eða var það Subway? Nei, Galito, ég er viss. Mæður hafa nú eitthvað að gera með hjónabönd dætra sinna, er það ekki?

Gurrí: Hvernig lítur hann út? Og af hverju kemurðu ekki Hildu á stefnumót, hún býr þó á höfuðborgarsvæðinu?

Mamma: Hávaxinn, dökkhærður og sjóferð ... Ja, Hilda er nú svo miklu, miklu yngri en þú, þessi maður er örugglega ansi nálægt sextugu og allt of gamall fyrir hana.

Gurrí: Hmmm, þú veist að við erum 58 og 59 ... er það ekki?

Mamma (forviða): Ha, eruð þið ekki eldri?

Gurrí (gröm): Ég var að tala um árgerð.

Við kvöddumst með kærleikum, enda klukkan alveg að verða, og ég dreif mig af stað með stráksa, svona óvænt stefnumót gefur ekki færi á því að snurfusa sig almennilega, ég ákvað að vera allan tímann með grímuna á mér, þannig virka ég bæði dularfull og hrukkulaus. Alveg hægt að lyfta henni aðeins upp og stinga mat upp í sig. 

 

Namm, laxVið biðum til hálfátta en þá, alveg að verða hungurmorða, pöntuðum við okkur mat. Drengurinn, prinsinn, pantaði sér LAX (næstdýrasta réttinn) og skóflaði honum í sig á ljóshraða, besti matur sem hann hafði smakkað á veitingahúsi, sagði hann. Ef hann væri ekki vel uppalinn hefði hann sleikt diskinn. Þorskurinn sem ég fékk mér var líka algjört æði.

 

Enginn sem passaði við lýsinguna á huggulega manninum var á staðnum, ég margskannaði báða salina með nýju gleraugunum.

 

Það voru aftur á móti læti við Subway sem er skáhallt á móti Galito, einhver maður (huggulegur, sýndist mér) sem virtist hafa harðneitað að fara út þegar átti að fara að loka. Það þurfti tvær afgreiðslustúlkur til að ýta honum út með valdi. Aldrei dauð stund hér á Akranesi. 

 

Fávitavarpið í GeldingahrauniVeit einhver með vissu hvort megi (skv. lögum) hrinda (fast, mjög fast) ferðamönnunum sem halda til nálægt ónefndri vefmyndavél við Langahrygg?

 

Ég er auðvitað að spyrja fyrir vin, sjálf er ég bara meinlaus kattakerling sem heklar í frístundum og bruggar kaffi á meðan hún gjóar stundum augunum að gosinu sem mallar svo notalega í sjónvarpinu hennar.

 

 

Lendir mögulegur fávitahrindari í fangelsi eða fær hann heiðursmerki Veðurstofu Íslands og aðdáun allrar íslensku þjóðarinnar? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband