29.10.2021 | 01:59
Lífið er fréttir og sælgætið sem verður að fara
Stráksi verður að heiman um helgina og ég er búin að raða niður á dagana alls kyns djammi og sukki, eins og það er kallað hjá okkur síðmiðaldra borgurum en táknar samt eitthvað ögn rólegra. Gesturinn sem kemur í heimsókn í dag (það er kominn föstudagur) er mjög spenntur (kvenmaður, samt ágæt) fyrir að smakka matinn á Flamingo sem er það góður að ég lifi af að borða hann annað kvöldið í röð. Finnst bara að ég verði að ráðleggja gestinum að panta réttinn sem er nr. 10 (á listanum fyrir ofan afgreiðsluborðið) og fá mér hann líka henni til samlætis. Alltaf að fórna sér fyrir gesti sína.
Fegin að það er loks komið að þessari helgi ... og verulega stutt í sunnudaginn, ég er langt komin með Þristana sem áttu að vera fyrir grímuklædd börnin - en verð bara að segja við þau, eins og var sagt við mig í æsku, að lífið væri ekki dans á rósum. Þau þurfi að búa sig undir mótlæti en ég eigi samt næstum fulla körfu af alls konar öðru sælgæti þótt Þristum hafi fækkað.
Þetta sælgæti þarf að fara, mér líður eins og fáránlegur æskudraumur minn hafi ræst - að ég eigi ofboðslega mikið sælgæti. Ég hét mér því fyrir kannski 55 árum þar sem ég sat við hansahilluskrifborðið með tveimur skúffum að fylla alla vega aðra þeirra af sælgæti þegar ég yrði fullorðin. Ég gat það aldrei af því að þessar hillur urðu eftir á Skaganum þegar við fluttum í bæinn og ég notaði peningana mína í að kaupa íbúð og svona. Nú hefur draumurinn í raun ræst og þótt ég hafi falið körfuna fyrir mér, vandlega í fatahenginu, næ ég alltaf að finna hana aftur og næla mér í Þrist eða eitthvað annað. Jafnvel tvisvar á dag. Ótti minn vex, það var mikið predikað um orsök og afleiðingu í æsku minni svo ég veit að eitthvað slæmt gerist.
Kemst ég á fætur á sunnudaginn eða verð ég orðin þá þegar of þung á mér. Er fíni sturtuklefinn úr Bauhaus að verða of þröngur? Hvað með fötin mín? Gæti ég saumað eitthvað smart á mig úr rúllugardínunum nýju úr Römmum og myndum við Skólabraut? Fara heimahekluðu lopatreflarnir kannski að þrengja að hálsinum? Lífið er ekki bara flókið - það getur líka verið svo fitandi.
Helgardagskráin
Föstudagur
Kl. 10.00: Vinna, fréttir, vinna, fréttir, vinna, fréttir o.s.frv.
Kl. 17.00: Stráksi sleppur kveður. Sjáumst á mánudag.
Kl. 17.30: Fyrri gestur helgarinnar mætir á svæðið. Kaffi, spjall, kvöldmatur (Flamingo), spjall, spjall, meira kaffi. Hlustað/horft á fréttir kl. 18. 18,30, 19, 22, 24, 01, 02. Gestur fer ... þarna einhvers staðar á bilinu.
Laugardagur
Kl. 11.30 Vakn, sturta, kaffi.
Kl. 12.20 Fréttir.
Kl. 13.50: Seinni gestur helgarinnar mætir. Kaffi, spjall. Spjall, meira kaffi, ætti ég að draga hana í antíkskúrinn hjá Kristbjörgu, eða Frystihúsið í ís? Prófa kaffið hjá Grjótinu? Vona að valið á kaffitegund hafi verið almennilegt því Grjótið er ekki lengur bara matsölustaður, það er líka kaffihús síðan á þriðjudaginn. Kórónuveiran í veldisvexti, við verðum að læra að lifa með henni en þýðir það samt nokkuð að við verðum endilega að smitast? Ég nenni því alls ekki og bíð kannski með mikið útstáelsi. Verst samt að fá ekki að vita um ástandið á covid í heimabænum. Hmmm.
Kl. 16.50. Ætli væri sniðugt að bjóða henni upp á rauðvínið sem ég fékk í afmælisgjöf í ágúst? Hún er reyndar á bíl. Mögulega lítið fyrir vín eins og eiginlega ALLIR MÍNIR VINIR!!! Æ, bíð með það.
Kl. 18.00: Fréttir. Af hverju á ég ekki drykkfellda vini? Svona stuðbolta? Væru þeir þá ekki bara búnir að missa bragð- og lyktarskyn eftir sukkið um síðustu helgi og eru í einangrun? Kannski eru kaffisvolgrandi, heimahangandi stuðboltarnir bara bestir.
Kl. 18.30: Fréttir, líka kl. 19, 22, 00, 01, 02.
Kl. 19.39: Teningnum kastað. Gestur fer einhvern tímann.
Sunnudagur
Kl. 11.23: Vakn, kaffi, vinna.
Kl. 12.20: Fréttir, kaffi, fréttir líka kl. 14 og 16.
Kl. 16.50: Finna hálftóma sælgætiskörfu í fatahenginu, taka einnota hanska og grímu, teikna hroðalegt bros framan á grímuna. Óttast að gríman hræði börnin og þau þjóti argandi á brott, kannski verður afgangur.
Kl. 17-19: Flest börn á Akranesi koma í Himnaríki og berjast um sælgæti hjá konu sem er klædd í ólögulega mussu sem er greinilega búin til úr rúllugardínu sem var klaufalega bútuð niður og svo heftuð saman. Konan er greinilega nýfeit og það er lakkríslykt af henni. Börnin fnæsa af hryllingi en sætta sig við sælgætið. Það er nú líka hrekkjavaka og ekki hægt að gera hryllingskröfur.
kl. 19.00: Sjónvarpsfréttir, spurning um að horfa á eftir á fréttir Stöðvar tvö til að missa ekki af neinu. Kíkt á covid.is, engar tölur frá Akranesi þar, hissa og hneyksluð. Megi þau sem því ráða upplifa tilbreytingaríka tíma. Ó, þau gera það.
Kl. 20.00: Aumingja Birgir Ármannsson sem rétt komst inn á þing og nýfundna Framsóknaratkvæðið, kannski þarf að kjósa aftur og hann getur ekki komið í veg fyrir það og kemst kannski ekki inn á þing eftir endurkosningarnar. Það hlýtur nú bara að vera nóg að biðja þjóðina afsökunar, þetta er gleymin þjóð ... vá, hvað nýtt eldgos kæmi sér vel núna.
Kl. 23.00: Lífsgátan leyst. Farið í bólið með jólabók.
Kl. 12.-02: Fréttir, lestur, fréttir, lestur, fréttir ...
Ástæðan fyrir fréttafjölda í lífinu er sú´að ég vil geta fylgst með. Er ekki enn búin að jafna mig á því að hafa frétt af 9/11 í útvarpinu á meðan það var að gerast, hækkað en systir mín sem keyrði bílinn sagði: Ertu til í að lækka? Ég var nánast froðufellandi af æsingi en hún eins og jógakennari í miðri hugleiðslu. Slaka, anda, hugsa um eitthvað fallegt-kjaftæði. Þetta er kannski ástæðan fyrir því að ég bý næstum ein. Held ég sé búin að venja drenginn á að yrða ekki á mig þegar heilagur fréttamaður hefur upp raust sína. Það er hræðilegt að hafa ekki fréttastefið aðgengilegt á Spotify ... (grín).
Það er ekki af sjúklegum covid-ótta sem ég vil fá áfram smittölurnar af Akranesi, hata bara þegar mér er ekki treyst til að fá sjálfsagðar upplýsingar, einhver vilji hafa vit fyrir mér, svona forsjárhyggjubull. Ég vil líka vita hvort almennileg lægð sé á leiðinni, hvenær verði kosið aftur í NV, hvort fari ekki að gjósa einhvers staðar aftur. Lífið er fréttir. Hættuaðreykja-lyfin eyðilögðu kannski fyrir mér reykingar og sjónvarpsglap en leyfðu mér að halda fréttunum. Ég er þakklát fyrir það.
Mynd: Mosi og Keli. Í dag, föstudag, er dagur kattarins, þeir verða allir þrír, líka Krummi sem komst ekki fyrir á myndinni, knúsaðir í ræmur. Og fá síðasta bréfið af blautmatnum sem þeir eru svo hrifnir af.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 17
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 159
- Frá upphafi: 1527954
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 127
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.