Fáránleikarnir 2021 ...

Staðreyndir um TrumpÍ gær skrifaði ég um samsæriskenningar en þær eru nákvæmlega ekkert spennandi miðað við það sem ég sá í morgun, samt er ég ekki sest í helgan stein og farin að leita að góðum sögum. Fólkið í söfnuðinum í kringum Trump heldur því fram að John F. Kennedy yngri, lögmaður og sonur JFK forseta og Jackie Onassis og bróðir Caroline, þessi sem fórst í flugslysi fyrir mörgum árum, muni „rísa upp frá dauðum“ og ásamt Donald Trump stjórna Bandaríkjunum þegar kjörtímabili Bidens lýkur. Dauði Kennedys var víst settur á svið, kannski í þessum tilgangi. Það eru þá ekki bara Kínverjar sem hugsa langt fram í tímann ... 50 ár, 100 ár? Íslendingar ... fjögur ár?

 

Snapp-vinkona mín sem býr í USA (íslensk) hélt með Trump gegn Hillary og ég veit um fleiri ... manneskja sem ég þekki og ber virðingu fyrir, skynsöm og klár, las ævisögu Hillary og sagði eftir það að þessi kona mætti aldrei verða forseti Bandaríkjanna, þá væri Trump skárri. Undir það er erfitt að taka en ég hef svo sem ekki treyst mér til að lesa þykka ævisöguna með öllu hinu. En ef ég lendi á eyðieyju með fullhlaðinn kyndilinn! Hillary þótti ímynd peningaaflanna og spillingar í margra augum sem vonuðu að Trump myndi breyta og bæta. Hann breytti eflaust einhverju ...

Snappvinkonan er brjáluð út í bandarísk yfirvöld núna, maðurinn hennar missir sennilega vinnuna af því að hann vill ekki láta bólusetja sig, frekar en hún. Þau eru nefnilega bæði búin að fá Covid-19 en það virðist ekki skipta máli. Bara tekið mark á bólusetningarvottorði. Hér á landi virðist enginn skyldaður í sprautu og það þykir best af öllu upp á hjarðónæmi að vera búinn að fá Covid.   

 

LóaboratoríumEins og fáránleiki dagsins sé ekki nægur, þá sagði útvarpið frá því að platan Led Zeppelin IV ætti fimmtugsafmæli í dag. En sú reikningskunnátta! Ég, þrátt fyrir að vera sársvekktur kjósandi úr Norðvestur, kann alveg að telja og veit að þetta getur ekki staðist. Það eru svo miklu færri ár síðan lagið Going to California varð eitt af mínum uppáhalds af þessari plötu. Mögulega er talning svona fáránleg í útlöndum af því að það er alltaf verið að fikta í klukkunni.

 

Ég er alltaf á leiðinni að kaupa Lóaboratoríum-mynd en þessi lýsandi mynd sem svo margir geta samsamað sig með er þaðan!

 

Going to California er eftir Page og Plant og er um jarðskjálftana í Kaliforníu og ... leitina að hinni fullkomnu konu. Þarna tengi ég ... svoooo fast. Ég er verulega spennt fyrir jarðskjálftum og mamma vill að ég finni hinn fullkomna mann sem mun sennilega aldrei heppnast því vinkonur mínar eru giftar þeim örfáu. Það er engin tilviljun að Magga systir hennar mömmu flutti ásamt Steina sínum til Kaliforníu og þar búa afkomendur þeirra og kvarta ekki mikið yfir hitanum.

Stökkbreytist ekki eitthvað í frumum innfluttra til heitari landa sem láta sér vel líka jafnvel 30 stiga hita? Mér finnst þetta svo magnað, svo ótrúlegt, svo hræðilegt í raun. Eftir kuldahroll í tæpa viku (eftir biðröð) hef ég þó öðlast ögn meiri skilning á þörf fólks fyrir hita. En að fara til Tenerife ótilneyddur er og verður ætíð óleystur leyndardómur í huga mínum.

 

Lagið átti upphaflega að heita Guide to California, en nafninu var breytt þegar hljómsveitin fór til Los Angeles til að hljóðblanda þennan fimmtuga grip sem platan er sögð vera. Stairway to Heaven (svo geggjað að eiga sérstakt lag um stigaganginn sinn) hefur fengið mesta athyglina og ég man að þegar Rás 2, mögulega á sínu fyrsta starfsári, stóð fyrir leitinni að besta lagi allra tíma, og Stairway to Heaven hafnaði í fyrsta sæti. Seinni árin hefur Nirvana tekið fyrsta sætið með Smells like Teen Spirit í svipuðum kosningum.   

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mörlendingar eru almennt miklu vinstrisinnaðri en Bandaríkjamenn og meira að segja Björn Bjarnason álítur Trump vera fífl. cool

23.3.2016:

"Meiri­hluti Íslend­inga myndi kjósa Hillary Cl­int­on sem næsta for­seta Banda­ríkj­anna ef þeir hefðu kosn­inga­rétt í land­inu eða 53%.

Þetta kem­ur fram í niður­stöðum nýrr­ar skoðana­könn­un­ar Maskínu.

Rúm­lega 38% myndu hins veg­ar kjósa keppi­naut henn­ar um að verða for­setafram­bjóðandi Demó­krata­flokks­ins, Bernie Sand­ers.

Þá myndu 4-5% styðja auðkýf­ing­inn Don­ald Trump sem notið hef­ur mests fylg­is í for­vali Re­públi­kana­flokks­ins." cool

Einungis um 5% Íslendinga myndu kjósa Donald Trump

Þorsteinn Briem, 9.11.2021 kl. 11:59

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Samt 5% ... ég vonaði alltaf að Bernie Sanders yrði kosinn. 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 9.11.2021 kl. 13:16

4 identicon

Vill heldur missa vinnuna en að láta bólusetja sig!

Hverslags þvermóðska er þetta? 

Mér skilst að flestallir Ísraelsmenn séu búnir að fá tvær til þrjár sprautur. Dettur nokkrum í hug að þeir ætli sér að fremja þjóðarsjálfsmorð?

Yfirgnæfandi meirihluti bólusettra veit ekki af því, þ.á m. ég sem er búinn að fá þrjár sprautur, plús eina flensusprautu.

Þessar samsæriskenningar sem vaða uppi eru bara bull og þvæla!

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 9.11.2021 kl. 17:21

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Annaðhvort hef ég komið þessu illa frá mér eða þú lesið of hratt. Fólkið er vissulega hrætt við sprautu, skilst mér, en það er komið með mótefni, búið að fá Covid. Til hvers að eyða dýrmætu bóluefni í fólk sem ekki þarf á því að halda. Að öðru leyti er ég hjartanlega sammála, verð sjálf þríbólusett í næsta mánuði ... 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 9.11.2021 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 167
  • Sl. sólarhring: 218
  • Sl. viku: 348
  • Frá upphafi: 1528161

Annað

  • Innlit í dag: 136
  • Innlit sl. viku: 274
  • Gestir í dag: 134
  • IP-tölur í dag: 131

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband