Nöturleg aðför að jólahefðum ... eða þannig

Ónýt jólStundum er ég afar þakklát fyrir skapstillingu mína og hugprýði þegar í raun er ekkert grín að mæta meinlegum örlögum og erfiðum áskorunum. Ég tók því með ró og sannri kvenmennsku að Arnaldur yrði ekki með sakamálasögu í ár - ég hef ekki mikinn áhuga á sögulegum skáldsögum, sorrí, elsku Arnaldur minn, þú ert samt söluhæstur í ár svo það munar ekkert um mig. En það þarf ekki nema annað stórt högg til að raska jafnvæginu. Á fb-síðu þar sem reglulega er eitthvað tengt fortíðinni rifjað upp sá ég hversu mjög er að okkur jólabörnunum vegið því Nói Síríus hefur án miskunnar skipt út bestu molunum (fylltu) - svo það verða víst ekki jól í Himnaríki.

 

 

Ég var orðin sátt við aðför Arnaldar að jólahefðum mínum, vissi að ég myndi bara meta glæpasögu hans enn meira næsta ár, en þessir fylltu molar eru horfnir úr lífi okkar endanlega, ef ég þekki grimmd heimsins rétt. Ég mun lesa t.d. Lilju, Óskar og fleiri sem ég ætlaði að geyma til jóla en þar sem jólin eru ónýt get ég alveg eins lagst í þær núna. Ég kaupi stöku bók sem ég VERÐ að lesa og svo get ég líka lesið á Storytel, sko LESIÐ, þarf ekki að eyða tíma í að hlusta, ég er mörgum klukkutímum sneggri að lesa sjálf en hitt, að hlusta, er reyndar fáránlega gott þegar þvottur er brotinn saman og gengið frá honum inn í skáp. Ég hef talsverða reynslu af því.

 

En Storytel er greinilega stórhættulegt fyrirbæri ... ég ætlaði að kíkja á bók þar sem mikið hefur verið hrósað, Farangur heitir hún, eftir Ragnheiði Gestsdóttur, en ég las bara eitthvað pínkupons fyrir svefninn, byrjaði allt of seint, kl. eitt eða tvö, já, ég veit, og allt í einu var klukkan orðin fjögur og ég búin með 66 prósent. Ég veit ekki hvenær ég get klárað, mikið að gera núna - en sennilega á morgun. Hún er orðin svooooo spennandi. 

 

bad-hairÞori ekki að lesa í kvöld, hárgreiðslukonan mín sækir mig fyrir allar aldir, kl. 8.30 í fyrramálið, sumar- og jólaklippingin fer fram þá og tekur, með lit og látum, nokkra klukkutíma. Kannski get ég lesið Farangur með litinn í hárinu? Það væri góð nýting á tíma. Tímarit myndu annars heilla en ég er svo mikil forréttindapía að ég er alltaf búin að lesa þau ...

 

Rétt skal vera rétt - ég skil ekki Nóa-sælgætisrisann vegna smekkleysis hans þegar kemur að því að skipta út konfekti, nánast ekkert eftir sem mér finnst gott en ég er ekki föst í hefðum og lít á jólin sem næs helgi hjá Hildu og kó, með sérlega góðum mat og úúúú gjöfum ... en ég mun samt sakna Arnaldar meira en konfekts, það er engu að treysta í þessum heimi, makkontossið er heldur ekki jafngott og í æsku - bara karamellurnar en tannlæknirinn minn myndi geta keypt sér sumarhús í Sviss ef ég legðist í þær, hugsa ég.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fari það í fimmtán flyðrur á Fáskrúðsfirði! cool

Fyrst þú "stígur fram" í þessu máli, Gurrí, ætti forstjóri Nóa Síríusar að sjálfsögðu að "stíga til hliðar" og viðurkenna að framleiðsla fyrirtækisins sé öll í molum. cool

Image

Þorsteinn Briem, 10.11.2021 kl. 12:45

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hahahahaha, já, ekki spurning. Hún er öll í molum og hefur alltaf verið...

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 10.11.2021 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 169
  • Sl. sólarhring: 220
  • Sl. viku: 350
  • Frá upphafi: 1528163

Annað

  • Innlit í dag: 138
  • Innlit sl. viku: 276
  • Gestir í dag: 136
  • IP-tölur í dag: 133

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband