Vesen og vatnsleysi og leiðréttingin sem gleymdist

Ekkert vatn í kaffiSMS-ið sem kom kl. 10.29 í morgun var eins og köld vatnsgusa framan í andlitið á mér, nema það vantaði vatnið, bókstaflega. kaldavatnslaust til kl. 16 í dag ... vegna bilunar! Ég hljóp um Himnaríki og tékkaði á öllum (báðum, ekki sturtu) krönum, ekki einu sinni heitt vatn - því við tökum inn kalt og hitum, held ég. Var til nóg vatn á kaffivélinni fyrir einn bolla? Nei, heldur betur ekki. Myndi vatn í vatnsbrunni kattanna duga til fjögur í dag? Nei, alls ekki. Var hægt að kveikja ljósin? Já, sem betur fer var rafmagn. Ekki bara Himnaríki sem syrgir vatn, heldur öll gatan og þær næstu í kring. Jaðarsbraut, Sandabraut, Garðabraut og Skagabraut!

 

Þar sem ég er kona eigi hjálparvana, datt mér nánast strax í hug að fara út í Krambúð. Þar ræður ríkjum elskan hún Þórhildur almáttugur ... og stóð hún undir nafni? Játs. Hún átti ekki vatn nema kolsýrt en fann tvær tómar 2 l gosflöskur á bak við sem hún fyllti af köldu, dýrmætu vatni og gaf mér. Gangan heim var síðan algjör viðbjóður, þetta var svo þungt, en það hefði verið snjallt að nýta ferðina betur og fara í morgunsturtuna í leiðinni. Bleyta hár að Krambúð - sápa og nudda meðan Þ reddaði málum - skola sápu frá Krambúð. En heim komst ég, rennblautt, sárfætt með mun lengri handleggi en áður eftir burðinn og kettir glaðir (það vantaði í raun ekkert svo mikið hjá þeim, en í dramakastinu kl. 10.30 fannst mér brunnurinn tómur. Vælið í köttunum stafaði af því að þá langaði í blautmat en vatn var nauðsynlegra en dekur við síst af öllu svanga hefðarkettina. Það er ekkert Kristallmeðlímónu-bragð af kaffinu, Þórhildur varaði við því. Skolaði samt vel.

 

Hvar pissum við? Stráksi kemur heim kl. 13, getur hann haldið í sér til kl. 15 þegar hann fer í klippingu? Hvað með Langasand? Eigum við að taka Danskinn á þetta og sturta bara niður í dagslok? (vatnið svo dýrt þar) En einn kaffibolli til klukkan fjögur verður bara að duga.

 

Eva og EvaBókakynningin í gær var alveg frábær, makrónur og freyðibúblur til að gleðja. Drengurinn (17) ætlaði að vera fyndinn og spurði hvort væri ekki líka vodka ... hvar ætli hann hafi lært þennan stórfenglega aulahúmor? Evurnar árituðu af miklum móð.

Ég blaðaði í kökubók Evu Laufeyjar og hún er sérlega girnileg, Eva gefur nokkrar uppskriftir í kökublað Vikunnar sem kemur út eftir viku, og þegar ég sá þær og myndirnar vissi ég að ég yrði að eignast bókina, stundum veit maður bara.

Eva Björg skrifar um glæpi, oft tengda Akranesi sem er æði, og ég er komin ögn áleiðis með hana (bls. 39, klára í kvöld), ég sofnaði bara svo afkáralega snemma í gærkvöldi. Bókin heitir Þú sérð mig ekki.

 

 

Ægir, pabbi Evu Bjargar, var einn af ljúflingunum sem lagði parketið á Himnaríki, ég þekkti hann ekki með grímuna, eins gott að einhver kallaði á hann. Hann hló bara, móðgaðist ekkert og líkti mér við Jón Gnarr!?! (Viðbót: Gnarr þekkir fólk víst bara af munnsvip

 

 

JólakúlurÍ Krambúðinni greip ég með mér Fréttablaðið og viti menn, var ekki Himnaríkis-áhrifavaldurinn af Moggablogginu aðalgellan í jólablaðinu? Og ljúfi blaðamaðurinn sem tók samt ekki mark á breytingarbeiðni minni ... vissulega bara smáræði en blæbrigðamunur sem skipti mig máli.

 

... ekki beðið neinn að kaupa handa sér ljóta jólakúlu. „Það er af því að smekkur fólks er misjafn. Það yrði hræðilegt að sitja kannski uppi með flottar jólakúlur.“

Ég bað hann um að fleygja í burtu ÞAÐ ER AF ÞVÍ AÐ ... því ég sagði það aldrei. Ég treysti vinum og vandamönnum vel til að kaupa ljótar jólakúlur handa mér, þetta er upp til hópa smekklaust ... (djók)

Hitt var bara hugleiðing: Smekkur fólks er misjafn. Það yrði hræðilegt að ... osfrv.

 

 

Eflaust algjört smáatriði, en hva, jólablaðið hjá Fbl. er hrikalega flott og skemmtilegt.

 

 

Meira að segja bjúg-myndin af mér skemmir það ekki ... það væri alveg eftir því ef akkúrat dagurinn í dag til fjögur yrði vatnslosunardagurinn mikli ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Það er eitthvað hreinsisýstem í húsinu mínu ... engin lykt eða bragð af heita vatninu. Skal tala við einhvern viti borinn (um þetta) og birta leiðréttingu. :) 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 19.11.2021 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 167
  • Sl. sólarhring: 218
  • Sl. viku: 348
  • Frá upphafi: 1528161

Annað

  • Innlit í dag: 136
  • Innlit sl. viku: 274
  • Gestir í dag: 134
  • IP-tölur í dag: 131

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband