26.11.2021 | 12:58
Músikforrit sem les hugsanir og snjóhvítur fössari
Allt í einu var tónlistarveita YouTube komin í tölvuna mína og vildi fá mig í leik við sig. Ég átti að velja fimm uppáhalds-eitthvað sem var frekar erfitt. Ég ýtti á Wu Tang Clan, Pink Floyd, Led Zeppelin, Jónsa úr SigurRós og Mozart, ég fann ekki Radiohead og marga fleiri, nennti kannski ekki að skrolla mikið lengur en sá svo fullt af íslensku tónlistarfólki ögn neðar. Svo ýtti ég á Done, og sjá: YouTube hafði gert alls konar lagalista fyrir mig og þar voru elsku Radiohead. Þannig að kvikindið les hugsanir ... Davíð frændi var búinn að segja mér frá því og hann yfirgaf Spotify-veituna einmitt vegna þess að forritið les mann svolítið. Það var sem sagt ekki bara G5-njósn í bóluefninu, heldur líka í gjöfinni frá ríkisstjórninni skv. Persónuvernd. Af hverju mega góð fyrirtæki ekki fá aðgang að myndavél okkar og fleira? Á meðan tæknin læsir mig ekki inni og elskar mig ofurheitt og reynir að tölva (barna) mig, eins og í skelfilega vondri bók eftir Dean Koontz (Bad Seed) er ég sátt. Já, það var gerð kvikmynd og allt, sennilega er hún jafnslæm.
Kúl, þetta auðveldar lífið á svo margan hátt, músiklega og kannski meira. Nú er Beethoven í gangi, beint á eftir Mozart. Sinfóníur reyndar ... Samt ættu öll vönduð njósnaforrit að vita að ég er brjáluð í hákirkjulega kórtónlist, en auðvitað ef fylgst er með ferðum mínum sést að leitun er að ókirkjuræknari manneskju ... Millivegurinn er samt ekki alltaf bestur, eins og í einu mötuneyti lífs míns þegar reynt var að gera öllum til geðs (örfáu körlunum sem hötuðu krydd) og allir grétu í hádeginu yfir bragðlausum mat. Og svo var það hitt mötuneytið þar verkstæðiskarlarnir rúlluðu út á barmi hjartaáfalls eftir ofsaltaðan matinn - ég hef áður grátið hér yfir nætursaltaða fiskinum sem var nú bara ferskur fiskur á matseðli og þau aldrei verið með nætursaltað ...
Það sló þögn á partí gærdagsins þegar kom í ljós að seinni tölur í NV-kjördæmi yrðu látnar standa. Ég veit ekki betur en að dóttir heimsfrægra hjóna heiti einmitt North West - sem segir mér að þetta hafi alltaf átt að gerast. Væri skrifað í skýin. Gæsahúð samt.
Annars tóku Keli og Krummi þessu sérlega illa (sjá mynd) en segja má að þeir hafi speglað svipinn á öllum í boðinu. Þetta er kosningasvipurinn á þeim - þegar hlutirnir fara ekki eins og þeir ættu að fara. En hvenær tökum við svo sem mark á köttum?
Hér í Himnaríki verður eigi stokkið á Svartan föstudag. Ekki að ég eigi nóg af peningum og þiggi ekki afslátt, heldur nenni ég því ekki. Elfa vinkona horfði svolítið smeyk á mig eitt árið, daginn eftir Þakkargjörðarmáltíð þar sem Tom hafði gert einstaklega góða sætkartöflumús með sykurpúðum! og spurði hvort mig langaði kannski í búð í dag? Á svörtum föstudegi? spurði ég hlessa. Uuuu, nei, takk, ég skal koma með þér ef þú vilt fara. Feginssvipurinn sem kom yfir hana var ógleymanlegur og nú veit ég að hún er ekki vinkona mín fyrir tilviljun.
Hætturnar af búðarápi eru svo sem alltaf fyrir hendi. Ég fékk hrikalega góða þjónustu í Steinari Waage-skóbúðinni í Kringlunni fyrir tveimur vikum, og hvað gerðist? Ég keypti mér vetrarskó og hafði nánast verið á leiðinni út þegar ég var gripin, lífsviljinn farinn og fullvissa um að örugglega væri ekkert til á mig ... ég myndi nota gömlu skóna lengur, en ekki í hálku og snjó, og í karlafatabúðinni rétt hjá, jólaföt handa stráksa. Ég vara virkilega við góðri þjónustu í búðum, það getur verið svo dýrt.
Nú hefst bókaþáttarundirbúningsdagurinn stóri. Fyrst samt morgun- og hádegisverðurinn; kalkúnn með öllu ... fyrsti hluti.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 42
- Sl. sólarhring: 98
- Sl. viku: 223
- Frá upphafi: 1528036
Annað
- Innlit í dag: 36
- Innlit sl. viku: 174
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Maður þarf einungis að segja reglulega upphátt "I love China!". Það er yndislegt að einhver hafi áhuga á og nennu til að fylgjast með okkur.
Julius Valsson (IP-tala skráð) 27.11.2021 kl. 12:17
Jáhá, yndislegt alveg ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.11.2021 kl. 23:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.