20.2.2022 | 16:57
Blóðflokkar og covid - sjokkerandi niðurstöður um B-mínus
Loksins, loksins, alvörurannsókn á covid eftir blóðflokkum. Og það á Facebook sem lýgur aldrei. Um 130 manns tóku þátt og ég nennti bara að skrá niður 70 fyrstu. Ótrúlega margt merkilegt kom fram, niðurstöðurnar eru í raun sjokkerandi. Um 15 manns í O-blóðflokki hafa smitast en 16 O-plúsarar ekki. Sagt er að langstærsti blóðflokkurinn sé O plús en ég hef lært undanfarið að læknar og vísindamenn fái borgað fyrir að segja það sem lyfjafyrirtækjum hentar og greinilega vilja þau að við höldum þetta. Þá komum við að mínum blóðflokki sem er auðvitað A plús. Í stíl við allar einkunnir mínar alltaf, minnir mig. En ég fékk reyndar 1,5 í handavinnu í 8. bekk af því að ég týndi handavinnudótinu mínu í strætó.
En sautján einstaklingar í A plús hafa ekki fengið covid og ég er þar meðtalin, aðeins fjórir hafa fengið covid, jafnmargir og í O mínus. Nú veit ég að það er ekkert til sem heitir B mínus, það er bara blekking því enginn í þeim svokallaða blóðflokki hefur fengið covid eða ekki fengið það. Einn AB fékk covid, enginn AB fékk ekki covid. A mínus-fólkið telst vart með, svo ótrúlega fá atkvæði sem komu frá því fólki ef það er þá til. Þetta setur allt í nýtt samhengi sem ég á eftir að finna betur út úr.
Ef við A plús-fólkið erum ekki bara fleiri á Íslandi en O plús-fólkið, svei mér þá, og við erum nánast ónæm fyrir covid samkvæmt þessari vönduðu rannsókn Facebook-vinkonu minnar sem ýmsir frægir og þekktir tóku þátt í sem rennir enn styrkari stoðum undir þetta. En mikið er gott að tilheyra þessum blóðflokki, og ekki ólíklegt að þessir fjórir í A plús sem fengu covid hafi fengið falsaða niðurstöðu. Ef þið bara vissuð hvað er í gangi í heiminum. Nú þegar reynt er að draga athygli okkar að sameiningu sveitarfélaga og konudeginum til að við hættum að hugsa um það sem máli skiptir, er svo nauðsynlegt að vera stöðugt á verði. Það þarf ekki menntun, bara að kunna að draga greindarlegar ályktanir, það hef ég lært undanfarna mánuði.
Og eitt mjög mikilvægt ... haldið þið ekki að Siggi í Bernhöftsbakaríi bjóði upp á bestu konudagsköku sem hefur verið gerð frá upphafi, og það nú í ár, engar hnetur hjá honum, bara hvítsúkkulaðidásemdin sem ég hef svo oft mært hér á blogginu. Nú væri gaman að búa í bænum, halda risastórt partí og bjóða öllum sem ég þekki í A plús í gott kaffi og alvörutertu.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.3.): 220
- Sl. sólarhring: 228
- Sl. viku: 1101
- Frá upphafi: 1521055
Annað
- Innlit í dag: 125
- Innlit sl. viku: 890
- Gestir í dag: 122
- IP-tölur í dag: 122
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
20.6.2020:



"Fólk í O-blóðflokki virðist ólíklegra til að smitast af Covid-19 en aðrir.
Fólk í AB-blóðflokki er aftur á móti líklegra til að smitast."
Fólk í O-blóðflokki smitast síður af Covid-19
Hér á Íslandi eru um 56% í blóðflokki O, 32% í A, 10% í B og 3% í AB.
Hins vegar eru um 49% Norðmanna í blóðflokki A, 39% í O, 8% í B og 4% í AB.
Blóðflokkar - Vísindavefurinn
"Til að finna erfðaþætti sem valda þoli gagnvart veirunni þarf að bera saman þá sem komist hafa í návígi við smitandi einstaklinga og annað hvort smitast eða ekki.
Með slíkum samanburði væri hægt að finna út hvort einhverjir séu ónæmir vegna þess að viðtakinn sé ómóttækilegur fyrir veirunni eða vantar alveg eins og í tilfelli þeirra sem eru arfhreinir um úrfellingu í CCR5-geninu og verndaðir fyrir HIV-1 smiti."
Hafa erfðaþættir áhrif á sýkingu veirunnar sem veldur Covid-19? - Vísindavefurinn
Þorsteinn Briem, 21.2.2022 kl. 08:22
Ekki í fyrsta sinn sem þú eyðileggur bullið í mér með mögulegum staðreyndum ... dæs. :)
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.2.2022 kl. 11:20
Stend algjörlega með þér í þessu, Guðríður.
Er einnig A+
Steini Briem er hér bara með leiðindi, enda kominn af O-lafi harðráða :-)
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.2.2022 kl. 12:06
Hjartans þakkir, Símon Pétur. :) Geymt en ekki gleymt.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.2.2022 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.