Davíð og Golíat í sumarbúðum

Sumarbúðir Stórsnjallt ungmennakort er að detta inn í Reykjavík. Með því eru m.a. sumarbúðir niðurgreiddar. Heyrði Björn Inga tala um þetta í útvarpinu og fannst skrýtið að hann minntist bara á skátana og KFUM en ekki Ævintýralandið hennar Hildu systur sem þó er án efa með metnaðarfyllstu starfsemina, ég fer aldrei ofan af því. Í hittiðfyrra komu nokkrir ljúfir starfsmenn úr Vatnaskógi í heimsókn og þeir urðu stórhrifnir, eiginlega göptu ... Yfir 100 börn á staðnum en samt allt svo notalegt, allir höfðu nóg við að vera og góð stjórn á öllu.

 

Ævintýraland dansnámskeiðÁ forsíðu DV í gær sagði Hafsteinn Snæland, framkvæmdastjóri Samfés, að allir styrkir til barna- og unglingastarfsemi færu til sömu samtakanna og fulltrúar þessarra samtaka sitji í úthlutunarnefndinni!

 
Nú gengur mér betur að skilja allar þessar neitanir sem Ævintýraland hefur fengið. Auðvitað sjá þeir til þess að samkeppnisaðili fái ekki krónu. Þetta er nú meiri spillingin, ef rétt er. Ég er öskureið.

 

 -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -   -

Sumarbúðir afmæliHilda hefur árangurslaust sótt um styrki í gegnum árin, enda þarf hún að greiða himinháa húsaleigu á meðan hin samtökin hafa komið sér upp góðum húsakosti með milljónastyrkjum.
Við komumst að því eitt árið að á meðan Hilda fékk ekki krónu þá fengu skátarnir og KFUM eitthvað í kringum 5-6 milljónir hvor aðili, m.a. til að greiða fasteignagjöld af húseignum sínum. Þetta hafði viðgengist í fjölda ára, til eru opinber gögn um það, en ég veit ekki hvernig þessu er háttað núna.

Ævintýraland útileikirSamkeppnisaðilar Hildu reka eflaust ágæta starfsemi, ég efast ekki um það. Samt kostar nógu mikið að senda börnin sín þangað og ekki getur Hilda látið kosta meira en hinir vegna samkeppninnar.  

Munurinn á Ævintýralandi og öðrum sumarbúðum er t.d. sá að Hilda fylgir algjörlega reglugerð Barnaverndarstofu og er með fullorðið fólk í vinnu og eina manneskju á hver fimm börn. Ætli meðalaldur starfsmanna sé ekki 35 ára. Hún þarf að borga góð laun til að fá hæft fólk og vill ekki sjálfboðaliða, segir starfsemina of viðkvæma til þess. Það gæti þó hafa hrist upp í ónefndum sumarbúðum þegar leiðindamál komu upp fyrir nokkrum árum vegna sjálfboðaliða. 

 

Sumarbúðir myndlistSíðustu sumur hafa um 100 börn dvalið í hverri viku í Ævintýralandi. Vinsældirnar eru ekki vegna þess að hún hefur efni á því að auglýsa svo mikið, heldur er það góður orðstír sem veldur. Kostnaður við sumarbúðirnar er geðbilaður, það þarf að greiða húsaleigu, laun, mat, fá fólk á launum til að koma og ræða forvarnir og margt, margt fleira. Vá, hvað það myndi breyta miklu og vera upplyfting fyrir starfsemina ef fengist styrkur. Ég hvet bloggvini mína til að velja Ævintýraland ef þeir ætla að senda börnin sín í sumarbúðir í sumar og styrkja þannig Davíð gegn Golíat.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Svansson

hún fær styrk úr frænda sínum, getur bæði komið í kaffi og rautt, en þetta er gott fyrir börnin komast af mölinni (malbikinu) og kynnast einhverju nýju umhverfi og viðhorfum til lífsins. Hilda ætti að ganga svo með hópana eftir göngustígnum með ánni og niður að fossi þar er skemmtilegt fuglalíf á leiðinni og það sem ég sá í vor og ætla að vona að sé til komið til að vera hér á ánni og það eru Straumendur en þær eru mínar uppáhalds endur

Brynjar Svansson, 1.6.2007 kl. 21:23

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þetta er díll, þú kemur og vísar svo veginn, elsku frændi!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 1.6.2007 kl. 21:25

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Oj en ömurlegt óréttlæti...folk má alveg reiðast yfir svona fíflaskap. Gott ef ég sel ekki allt úr bílskúrnum..ohh ég er ekki með bílskúr ein eitthvað ætti ég að geta selt til að styðja þetta fína ævintýraland Hildu og senda börnoin mín yfir.

áfram barátta og út með spillinguna

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.6.2007 kl. 21:34

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég skal svo sannarlega segja frá Ævintýralandinu hennar Hildu.  Ég vil ekki sjá að sjálfboðaliðar séu að sýsla með börn.  Svona starfsemi verður að vera fagleg og það skilur Hilda greinilega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.6.2007 kl. 21:34

5 Smámynd: Brynjar Svansson

Alveg sjálfsagt mál

Brynjar Svansson, 1.6.2007 kl. 21:50

6 identicon

innlitskvitt

Hulda (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 22:04

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Sendi baráttu - og velgengniskveðjur til hennar Hildu systur þinnar. Hún á gífurlegan heiður skilið, ég hef heyrt um hennar mikla og góða starf. Gerð mér ekki grein fyrir þessari mismunun varðandi sumarbúðir fyrir börn; er þetta ekki stjórnarskrárbrot (jafnræðisreglan)? Ósvinna og siðleysi allavega.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 1.6.2007 kl. 22:26

8 Smámynd: www.zordis.com

Gangi Hildu og aevintýralandinu allt í haginn ... Hún er sigurvegari, engin vafi á!  Skemmtilegar myndir af gledi og leik!

www.zordis.com, 1.6.2007 kl. 22:42

9 Smámynd: Ester Júlía

Mér hefur alltaf litist svo rosalega vel á Ævintýraland!  Ef minnsti minn fer í sumarbúðir þá er ekki spurning hvert hann verður sendur! Ekki spurning um að senda hann til Hildu!

Ester Júlía, 1.6.2007 kl. 23:11

10 Smámynd: Ester Júlía

*hóst*...ekki spurning um ANNAÐ en að senda hann til Hildu.

Ester Júlía, 1.6.2007 kl. 23:13

11 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hahahaha! Ég mæti allar helgar alltaf og hef gert síðustu árin og skal dekra rosalega við hann!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 1.6.2007 kl. 23:32

12 identicon

Er að fara um næstu helgi að hjálpa til við undirbúning.  Hlakka þvílíkt til og er búin að bóka eitt barnabarn til hennar í sumar.  Dreifði bæklingum fyrir hana um öll Suðurnes í dag, Vogana, Grindavík, Njarðvík, Keflavík, Garð og Sandgerði.  Bara gaman

Sigga (IP-tala skráð) 2.6.2007 kl. 02:14

13 identicon

Ég held ég nái ekki að koma börnum að í Ævintýraland þetta sumarið, en ég stend heilshugar á bak við Hildu og Ævintýralandið - og auðvitað þig. Tek undir með þér varðandi öskureiðina ... manni blöskrar ótrúlega mikið. Það er lagt svo mikið upp úr frumkvæði á þessu landi, á ekki t.d. frumkvöðlasetur eitthvert að rísa í gamla her-hverfinu á Suðurnesjum ... ? En svo þegar koma ótrúlega flottar hugmyndir, þá er þeim mætt með þögn ... skiptir svo miklu máli greinilega að heita séra Jón en ekki Jón.

Í samfélagi sem hvetur til frumkvöðlastarfsemi skýtur skökku við að sjá frumkvæðinu mætt með svo mikilli mótspyrnu.

En spes knúsið hefurðu fengið Gurrí og þú veist vonandi út af hverju!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 2.6.2007 kl. 02:38

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Alltaf gaman   í   Ævintýralandi.

Kristín Katla Árnadóttir, 2.6.2007 kl. 12:25

15 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Jón Arnar, það þarf að vera eitthvert réttlæti, ekki styrkja bara suma. Í valdi styrkjanna hafa samkeppnisaðilarnir getað hraunað yfir systur mína á margan hátt. Annað hvort allir styrkjalausir eða enginn!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2007 kl. 13:00

16 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Þú getur alveg bókað að um leið og englarnir mínir komast á sumarbúðaaldur, þá verða þau send til Hildu og ekkert annað takk.  Bestu kveðjur norður fyrir rör......

Sigríður Jósefsdóttir, 2.6.2007 kl. 13:48

17 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Frábært, þau verða sko í góðum höndum.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2007 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 15
  • Sl. sólarhring: 229
  • Sl. viku: 812
  • Frá upphafi: 1516329

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 677
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Einarsbúð
  • Þægilegt líf í 11 mín.
  • Í Ikea

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband