True Lies-stemmari og dræsan hún Brooke ...

True LiesEkkert lát á spennu við himnaríki. Ef það eru ekki dularfull skip sem fá hjartað til að slá hraðar þá eru það þyrlur. Rétt áðan flaug þyrla fast upp að himnaríki við mikla gleði mína. Einn draumurinn er nefnilega að komast í þyrluferð. Kisurnar hafa ekki erft hugrekki eiganda síns og voru rosalega hræddar, Kubbur leit út eins og klósettbursti. Það var heilmikil True Lies-stemmning í gangi í nokkrar mínútur ... og þetta minnti líka á þegar býflugnadrottningin gerði sig heimakomna í eldhúsglugga himnaríkis í fyrravor og gerði allt vitlaust.

Nú gekk hún Brooke endanlega fram af mér. Hún er búin að veiða Nick, tilvonandi tengdason, í net sitt. Á meðan hún tældi hann með ástarjátningum sat dóttir hennar, ófrísk eftir Nick, með bullandi samviskubit yfir að hafa skrökvað þessu með fóstureyðinguna. Nick reyndi að ýta Brooke frá sér og sagðist elska Bridget en allt kom fyrir ekki. Þátturinn endaði á því að þau kysstust. Líklega kemur Bridget að þeim í mánudagsþættinum, það er stíllinn. Þá mun hún vera full af samviskubiti og vilja sættast við Nick. Hvað gerir Brooke nú þegar hún getur bæði fengið Nick og Ridge, sem er búinn að brenna allar brýr að baki sér gagnvart geðlækninum geðþekka, Taylor. Þetta leiðir hugann að því að nú verður Brooke stjúpmóðir ömmubarns síns. Jamm, þetta er snilldarþættir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

'Eg hef ekki gert annað síðustu mánuði ... bloggvinir hafa hneppt mig í þrældóm. Fylgstu bara með.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2007 kl. 16:09

2 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Snilld Gurrí, tær snilld!

Vilborg Valgarðsdóttir, 2.6.2007 kl. 17:17

3 Smámynd: Mafía-- Linda Róberts.

En Gurrí mín, hún Brooke lofaði Bridget því að verða ekki oftar ástfangin af kjærustunum hennar (hún á að vísu barn með síðasta kjærastanum hennar) heldur þú að hún svíki það? hún er bara að segja þetta til þess að bjarga Nick frá sjálfsvígi svo að Brigdet geti verið hamingjusöm með Nick og Brooke sofið á milli. Annars held ég að það gæti verið gaman að vera stjúpmammaömmubarns dóttur sinnar eða hvað haldið þið????

Mafía-- Linda Róberts., 2.6.2007 kl. 17:39

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Mér hafði ekki dottið þetta í hug. Auðvitað er hún bara að bjarga honum frá því að sigla út í storminn, hvurnin læt ég ...

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2007 kl. 17:44

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Ja, nú veit ég ekki. Hvað segir Mafía um það? Fleiri? Var ekki hoppað yfir nokkur ár akkúrat á þeim tímapunkti? Svo er Amber horfin, okkur Gunnu Pollý til mikillar hrellingar. 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2007 kl. 18:00

6 Smámynd: Gunna-Polly

já ég verð aldrei söm aftur síðan Amber hvarf úr BB , ætli stebba hafi myrt  hana?

Gunna-Polly, 2.6.2007 kl. 18:02

7 identicon

Hvað í ósköpunum ertu að horfa á þarna á skaganum???? er einhvers konar cable tv þarna???

Halla 

Halla (IP-tala skráð) 2.6.2007 kl. 19:53

8 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þetta er bold and the beautiful ... hefur verið á dagskrá stöðvar 2 um árabil. Ég gerði einhvern tíma grín að þessum þætti á blogginu, mikið vildi meira og ég er að verða húkkt á þessarri vitleysu ...

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2007 kl. 20:25

9 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Ég á nú bágt með að trúa þessu! Ertu að plata, fröken Anna?

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.6.2007 kl. 00:00

10 identicon

Þetta verður ekki alveg svona.  Brooke bregst "öðruvísi" við þegar hún fær að vita að Bridget er ennþá ófrísk.  Þetta verður snilld og gamla brýnið hún Stephanie er ekki búin enn.  Hún á eftir að setja allt á annan endann enn og aftur áður en langt um líður.  Þetta eru snilldarþættir. 

Ég er viss um að kattinn minn væri til í þyrluferð.  Þyrlan sveimaði yfir húsinu hér í tvo eða þrjá hringi í gær svo lágt að það nötraði allt.  En katti sat hinn rólegasti, glápti út um gluggann og lét sig dreyma.

Sigga (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 14:35

11 identicon

Gurrí þú þarft að fara meira út!!!!!!!!!!!!

Halla

Halla (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 16:22

12 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

ÚT? Ævintýrin gerast bara innandyra. Ég hefði misst af þyrlunni, bankasvikunum og skipinu ef ég hefði verið úti, sver það. Jú, ég ætla út á morgun þótt veðrið verði vont. Hvaða Halla er þetta? Þekki nokkrar prímaHöllur! 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.6.2007 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 25
  • Sl. viku: 157
  • Frá upphafi: 1527596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 132
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband