19.8.2023 | 21:56
Ef ég nenni ...
Letidagar eru algjör nauðsyn annað slagið, og hér fór einn slíkur fram í dag. Vifturnar fóru í gang aftur eftir næstum vikalanga hvíld, ég hélt að ég gæti farið að fagna hausti og svala en svo var nú aldeilis ekki ... Gætti þess bara að hreyfa mig ekki neitt.
Sendi auðvitað hamingjuóskir til allra þeirra sem nenntu að hreyfa sig í morgun í maraþoninu. Sá að Team Tinna sem ég styrkti í ár safnaði heilmiklu fé. Ég man eftir maraþoni þar sem hlaupið var fram hjá heimili mínu við Hringbraut (1988-2006) og ég varð ekki vör við neitt, aðeins einfalt gler á milli mín og þúsunda sem másuðu og blésu í örfárra metra fjarlægð. Segir kannski allt um mýktina á hlaupaskóm þess tíma eða hve bókin sem ég var líklega að lesa var skemmtileg.
Myndin er af ámátlegum Krumma sem getur ekki látið blómvendi í friði ... hann er verstur kattanna. Tveir vendir sluppu í gegn á afmælinu og ég hélt hreinlega að kettirnir hefðu ekki tekið eftir þeim, óskhyggja ... Veit ekki hvort þessar gulu freknur framan í Krumma verði þar til eilífðar.
Alltaf eitthvað að gerast á samfélagsmiðlunum. Á hundasíðu á Fb skrifar manneskja um mann sem passar hunda og tekur þá með sér út í bílskúr á kvöldin og reykir þar gras. Fólk er ótrúlega rólegt yfir því og segir það allt í lagi, ekki skaðlegra hundum en skötufýla! Mjög margir eru staddir niðri í bæ og svolgra í sig menningu, einhverjir njóta þess að sitja heima, eins og ég. Miðað við skyggnið núna ætti að sjást mjög vel í flugeldasýninguna frá Akranesi kl. 23, ef ég nenni. Ein á Instagram býr í Þýskalandi og hlakkar ekki til hitans fram undan, eða yfir 30 gráður næstu daga. Svo er það vinurinn sem vil meina að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin fái alræðisvald yfir líkama okkar og haldi áfram að fremja fjöldamorð á okkur, ríkisstjórn Íslands að lauma þessu í gegn. Það eru týndir kettir og fundnir kettir, prjóna- og heklfólk að sýna afurðir sínar, fólk að deila fréttum og segja álit sitt í leiðinni. Það eru myndir frá ýmsum fallegum stöðum í heiminum, fólki á ferðalögum, fólki að borða, ég setti t.d. mynd af kexi, osti og freyðivíni (afmælisgjafir) á Snapchat hjá mér. Hugsa að allir þar haldi að ég sé algjör lúxusgella að borða svona kvöldmat, og gruni síst að ég sé bara að klára þetta áður en þetta skemmist og nenni ekki að elda fyrr en á morgun, stráksi að heiman núna.
Ótrúlega stutt síðan glugginn minn út í heim, fyrir utan bækurnar, var sjónvarpið sem ég nenni ekki kveikja á núorðið og hef varla gert í lengri tíma, kannski of mikið áreiti alls staðar. Er með Sjónvarp Símans Premium, Netflix, Amazon og Disney plús ... en stráksi hefur gaman af því að horfa stundum, annars væri ég hætt með þetta. Jú, ég myndi stökkva til og horfa ef kæmi önnur þáttaröð um Jack Reacher (Amazon), frábær leikarinn þar og greinilega um tveir metrar á hæð eins og sögupersónan á að vera (sjá mynd af honum), Tom Cruise er flottur í mörgum myndum en við sem höfum lesið bækur Lee Child eigum erfitt með að horfa á Tom sem Jack. Svo er systir mín búin að lofa að láta mig vita þegar allir þættirnir eru komnir af The Lincoln Lawyer, sá reyndar fyrri seríuna og vil geta horft á alla þættina þegar mig langar, ekki bíða. Maður er orðinn svo frekur eftir að dagskrárstjórar sjónvarpsstöðva hættu að stjórna lífi manns.
Þegar Lincoln L. kemur, eða allir þættirnir, verður sennilega poppað. Kannski mun ég sjá eftir því að hafa keypt svona lítinn örbylgjuofn (hætta á að pokinn brenni) en ég þoli ekki stærðarinnar tæki á bekkjum og borðum í eldhúsinu. Það sem ég nöldra oftast yfir við stráksa er þegar hann gleymir að ganga frá hraðsuðukatlinum inn í skáp. Drengurinn er með einhver bresk gen, held ég, er alltaf að fá sér te. Og hefur það sterkt, notar hverja einustu teögn úr tepokanum,. Jæks. Ég rétt bleyti tepokann í heita vatninu, blæs síðan á það í hálftíma til að geta mögulega drukkið það. Við erum te-plebbar hér í himnaríki, vissulega ólíkir te-plebbar en þegar ég bauð einu sinni enskumælandi konu í heimsókn sagðist ég eiga gott kaffi en vont te. Þegar hún kom sagðist hún gjarnan vilja kaffi.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 9
- Sl. sólarhring: 38
- Sl. viku: 473
- Frá upphafi: 1526442
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 408
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Takk fyrir skemmtileg skrif
Guðlaug Hestnes (IP-tala skráð) 20.8.2023 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.