Af Kela, fórnum og krassandi bók ...

Nú og þáÍ gær voru komin tólf ár og einn dagur síðan Keli, fullu nafni Áskell Einarsson, flutti frá Kattholti yfir til okkar í Himnaríki. (Krummi heitir Hrafnkell og Mosi Moskell, svona ef þarf að skamma þá sem er eiginlega aldrei). Keli og Sokki, hinn kettlingurinn sem lifði af veruna ofan í poka, ofan í gjótu, í Heiðmörk í desember, fengu fagmannlega áfallahjálp í Kattholti næstu átta mánuðina og voru svo ættleiddir með örfárra daga millibili í byrjun september. Ég hefði sennilega tekið þá báða hefði ég áttað mig en þeir hafa báðir blómstrað, hvor á sínu heimilinu. Ég hef bloggað um ýmsa dynti Kela, eins og að stela gleraugunum mínum af náttborðinu sem þýðir stundum að ég á erfitt með að búa ein - ef mig langar að sjá eitthvað. Oft sem stráksi hefur bjargað þessum málum í gegnum tíðina, og honum finnst það alltaf jafnfyndið. Vandræðin hófust með því að ég fékk mér gleraugu sem voru bara eitt gramm að þyngd.

Myndin var tekin af Kela í gær. Hann er hættur að vera hræddur, kominn með „attitjúd“, eins og sést.

 

Fyrr og síðarTalsverð óvissa ríkir í ýmsum málum ... t.d. varðandi komu flóttafólks á Hótel Glym, ekki síst vegna vatnsskorts í sveitinni, og ... varðandi byggingu mögulegs hótels og baðlóns (enn eitt lónið!) hér við Langasand. Fólk talar sumt um að nú hefðum við átt að læra af reynslunni, af t.d. Sementsverksmiðunni, að gera ekki svona miklar breytingar á náttúruperlu eins og gerðar voru þá, vænn hluti af ströndinni fór undir verksmiðjuna, en þá voru auðvitað aðrir tímar og ansi fáir sem hugsuðu út í það.

 

Samsett mynd: Sú efri er síðan í eldgamla daga og sýnir hluta ósnortins Langasands í austurátt (sjáið háu bakkana, vá). Sú neðri var tekin löngu seinna, og í hina áttina, vestur. Þarna er allt „Sements“ enn uppistandandi. Vinsæl strönd þá og nú.

 

Persónulega fyndist mér ekkert slæmt að fá eins og eitt stykki flott hótel hér við hliðina, ég gæti nánast farið á morgunsloppnum þangað og keypt mér latte, eða fínt út að borða í mínútufjarlægð og haldið mínu góða útsýni þar líka, en ég get ekki bara hugsað um mig þótt ég hafi t.d. aldrei farið í Guðlaugu og hati gönguferðir. Þetta er mjög vinsælt svæði til útivistar, nákvæmlega eins og það er, ekki alveg ósnert þó, hér eru fínir göngustígar, hin fína Guðlaug, grjótvörn með fram öllum sjónum, en þetta sem á að gera yrði einhvern veginn svo óafturkræft, miðað við þær upplýsingar sem hafa lekið út, sumar mögulega ímyndun einhvers. Það má alveg hressa upp á svæðið en fyrirhugað hótel er orðið að hálfgerðu skrímsli í augum sumra og sennilega bara vegna óvissunnar og leyndarinnar. Sumir segja að þetta muni skipta sandinum í tvennt (ekki hægt að ganga ótruflað með fram sjónum), aðrir að það geri það ekki. Það þarf að færa fótboltavöllinn þannig að mörkin verða í norður og suður, eru nú í austur og vestur. Ég notaði orðið fórna um Langasand á fb-síðu þar sem fjallað var um þetta stóra mál, og í gær var ég á síðunni krafin skýringa á þeirri orðanotkun. Tærnar á mér krulluðust af pirringi en ég kæri mig ekki um að fara út í karp sem engu skilar við fólk á netinu, jafnvel þótt ég pirri það með skoðun minni. Þetta er alla vega ekki sú leið sem ég tel vera rétta til að rökræða skynsamlega um hlutina. 

Bíð róleg þar til óvissunni verður eytt og hið sanna kemur í ljós. Í einni fréttinni um þetta sagði fyrrum bæjarstjóri okkar orðrétt: „Mikil áhersla verður lögð á samráð og samtal við bæjarbúa og hagsmunaaðila.“ Mér fyndist að íbúakosning ætti að fara fram, þetta verður mikil breyting á ásýnd Langasands, nátttúruperlunnar sem hann er. Ef þetta reynast vera geggjað flottar breytingar og rökstuðningur með þeim góður, sigra þær í kosningunni. Óvissan er verst.

 

AkranesKannski verður þetta gullfalleg bygging, Skaganum til sóma og laðar að langþráða ferðamenn, Skaginn missti svolítið flugið þegar Hvalfjarðargöngin komu og Akraborgin hætti að sigla á milli, og við þurfum sannarlega eitthvað meira til að trekkja að. Hér eru nú samt fleiri staðir til að byggja hótel á en bara við Langasandinn, ef viljinn væri fyrir hendi. Breiðin, smábátahöfnin (eins og á Sigló) og fleiri.

Vonandi hafa hótelhaldarar, hvar sem þetta hótel rís, vit á því að velja gott kaffi til að bjóða gestum sínum upp á. Ekki trúa mjúkmálu sölufólki um handtíndar baunir, gúglið frekar en bjóða upp á súrt kaffi (mikil sýrni, ekki mikil gæði) sem hefur tröllriðið öllu hér síðustu árin ... Ég er enn í sjokki eftir að hafa snætt hádegisverð á Hótel Holti vorið 1989 þar sem Kaffi Marino, í rauðu dósunum (fékkst m.a. í Bílanausti) var í boði eftir matinn. Ég vissi ekki þá að yfirþjónninn hafði stolist til að kaupa baunir frá Te og kaffi til að nota í vélina góðu sem gerði cappuccino og latte og það allt. Ég hafði ekki enn kynnst þeim kaffidrykkjum. Það var ekki fyrr en tveimur árum seinna, í New York, sem ég bragðaði á cappuccino og smakkaði í fyrsta sinn beyglu, og Dustin Hoffmann gekk fram hjá.

Mynd af Akranesi. Held að svæðið sirka innan pennastrikanna sé það sem verið er að hugsa um að byggja upp. Það væri helst Nýja blokkin (lengst til vinstri) sem missti óhindrað útsýni til Reykjavíkur (ef hótelið verður hátt, við fáum ekkert að vita), en Alma leigufélag á Nýju blokkina og eigendur finna pottþétt einhverja góða ástæðu til að hækka leiguna enn meira, t.d. vegna komu fíns hótels á hlaðið eða vegna minni sjávarseltu á gluggana ... eða bara enga ástæðu.

 

Hús andannaÉg hef verið að hlusta á Hús andanna (Isabel Allende) á Storytel síðustu daga og var yfir mig hrifin, hef lesið hana nokkrum sinnum en fannst mjög gaman að hlusta og rifja upp þessa stórkostlegu sögu eftir allt of langan tíma. Mig minnir að bíómyndin hafi líka verið góð ...

Nú var ég rétt að byrja á sögu sem ég hafði merkt mér á meðan hún var enn væntanleg og kom svo út í gær. Fékk svolítið áfall þegar ég sá umsögn um hana, þá einu sem komin er:

Varð að gefa þessu rusli eina stjörnu til að geta skrifað umsögn. Lögga með sköndulinn á sér á heilanum (gubbkarl) ... og konur bara nothæfar til þess að riðlast á og þrífa undan honum skítinn. Sveianttan. Gaf þessu klukkustund sem ég fæ aldrei aftur.“

 

Það tekur 17 klst. og 49 mín. að hlusta á þessa bók í lestri Kristjáns Franklíns Magnússonar (sem er fantafínn lesari), en ég nota alltaf 1,2-hraðann og því mun ég verja (vonandi ekki eyða) 14 klst. og 43 mín. í hana - ef ég þoli svona typpalingasögu (sem ég geri auðvitað). Er búin með 9 mínútur af henni, byrjaði að hlusta á meðan ég snæddi hádegisverð (Wellington-kornflex og snobb-súrmjólk með glitrandi púðursykri a la Harrods) og gaurinn kominn á morðstað, alls ekkert dónalegt enn, því miður. Ég þarf að brjóta saman þvott í kvöld og ganga frá, verð lengi að því ef þetta er krassandi bók.

 

Rúmið mitt frá RB kemur á morgun. Sendibílstjóri og burðarmaður, mæta eftir hádegi, aðstoða mig við að koma rúminu á lappir, ef þarf, (þetta er kannski svo fínt rúm að það hefur fætur, afsakið) og taka umbúðir með sér og „gamla“ rúmið. Mikil synd að þurfa að losa sig við bara fimm ára rúm sem var ekki einu sinni ódýrt. En dýnan stóð ekki undir væntingum og loforðum (nema fyrstu 2-3 árin) og einn rúmfóturinn hefur frá upphafi verið til vandræða, það ískrar í honum þegar ég sný mér. Kettirnir hafa brýnt klærnar aðeins á hliðinni á rúmbotninum - svo ég kunni ekki við að auglýsa það gefins, dýnan samt eins og ný nema ekki eins stíf og hún á að vera, hef alltaf notað hlífðarlak og aldrei drukkið á því og hellt niður kókómjólk eða rauðvíni. Hilda systir hefur sofið í RB-rúmi árum saman og lætur mjög vel af því. Hlakka vandræðalega mikið til að sofa betur og vakna bakverkjalaus, eins og ég gerði fyrstu árin á þeirri gömlu. Gef skýrslu eftir fyrsta sofelsið.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 517
  • Frá upphafi: 1525896

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 469
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Ásgeir Sigurvinsson
  • Gleðilegt sumar ... bless, hálka
  • Gleðilegt sumar ... bless, hálka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband