14.2.2024 | 17:26
Skutla skaltu náunga þínum ...
Valentínusardagurinn minnti harkalega á sig í hádeginu þegar vinur minn gaf mér Snickers-súkkulaðistykki í tilefni hans. Þetta var ekki viljandi morðtilræði en í stað þess að þiggja það brosandi og þakklát sem hefði verið mesta kurteisin, sagði ég með tilþrifum: Ó, ég dey ef ég borða jarðhnetur! Svo dró ég vísifingur hægri handar lárétt eftir hálsi mínum. Vissulega lymskuleg tilraun til að fá hann til að gefa mér Mars-súkkulaði eða eitthvað hnetulaust að ári. Ég sat í bíl með honum, konunni hans og dætrum og við vorum á leiðinni heim til mín eftir skóla. Hann hefur ætíð hugfast góða málsháttinn: Skutla skaltu náunga þínum þegar hálku ber að fótum. (sjá átakanlega mynd a ófærð) Hann lagði óvænt lykkju á leið sína, lagði bílnum fyrir utan verslun, hoppaði út og hvarf úr augsýn. Hann hafði gefið konu sinni fallegan blómvönd rétt áður og sagði við hana:
Hvað ætlar þú að gefa mér?
Kannski koss? svaraði hún. Dæturnar voru samt þarna ...
Fáið ykkur herbergi, hugsaði ég og dæsti hneyksluð.
Skömmu síðar tók ég gleði mína, hann mætti í bílinn með stóran og fallegan blómvönd handa mér! Fyrstu vinkonunni sem hann eignaðist á Íslandi, sagði hann. Ég heimtaði að þau hjónin kæmu í kaffi í nokkrar mínútur, stelpurnar í kókómjólk og kisuklapp. Þegar þau voru farin hugsaði ég um vælið í mér í bloggfærslu gærdagsins ... um að geta ekki skoppað í vinnunni á morgnana án þess að leggjast í kör eftir hádegið. Ég var ótrúlega spræk þarna í kringum hádegi í dag.
Ahhh, ég hef greinilega skrifað mig út úr verkjunum, hugsaði ég. Kláraði að setja í uppþvottavélina, hafði bara bakheilsu til að elda í gær, setti vélina í gang og hugsaði með tilhlökkun til að hitta Hekls Angels-vinkonurnar. Við ætluðum aldeilis út að spóla á vélhjólunum okkar með heklunál í annarri og kaffibolla í hinni. Ég var viss um að ég næði að brjóta saman þvottinn áður en ég þyrfti að fara út. Það var eins og ég hefði aldrei verið bakveik! Þá byrjaði ég að hnerra kröftuglega ...
Ég afboðaði mig í Hekls Angels-túrinn hálftíma seinna, hafði spreyjað kvefdrepandi meðali í hálsinn og skömmu síðar áttaði ég mig á því að höfðu verið blómin sem gerðu þetta óvænta kraftaverk á heilsu minni. Gleðin yfir blómvendinum hafði virkjað einhver hamingjuboðefni í heilanum sem leiddu svona skemmtilega niður í bak. Einhvern veginn þarf ég að sjá til þess næstu daga eða vikur að fá óvæntan blómvönd á klukkutíma fresti - eftir hádegi.
Ég setti mynd af mér á Facebook með manninum sem gaf mér blómin í dag. Hátt í milljón læk eru komin og athyglisverðar umræður fóru í gang. Er þetta löggan? spurði ein - en í spjalli gærdagsins um bloggfærslu gærdagsins réði hún mér frá því að næla mér í löggu. Hún kvaðst hafa prófað það fyrir mig, meira að segja tvisvar, og það ekki gengið upp. Sennilega er ég nærsýnni en hún, mögulega heyrnarskertari líka (allavega í háværri tónlist) svo þetta gæti gengið hjá mér og svo á ég líka frænku sem er gift alveg frábærri löggu ... en Ragna von DV kvaðst þarna í umræðu gærkvöldsins þekkja nokkrar löggur sem kæmu til greina fyrir mig, hún skyldi finna einn sætan. Ragna, það eru komnir meira en 20 klukkutímar ...
Ég hafði reyndar sett á statusinn um blómin og manninn í dag: ... og áður en þið missið ráð og rænu af spenningi - konan hans tók myndina og hún fékk líka blóm. Samt komu svona athugasemdir.
Fyrir 14 árum setti ég eftirfarandi á fésbókina:
...gúglaði að gamni hvaða lag var í 1. sæti Billboard-listans daginn sem ég fæddist. Það reyndist vera Poor Little Fool með Ricky Nelson.
Eitthvert árið mun ég herða upp hugann og hlusta á þetta lag. Mig minnir að ég hafi tekið þátt í leik sem gaf í skyn að lagið myndi segja til um hvernig líf mitt yrði, hvernig persóna ég yrði eða eitthvað slíkt. Vona samt ekki.
Í gær sá ég mesta kaffinörd landsins dásama (á fb) kaffitegund nokkra ÞRÁTT FYRIR að kaffið væri nokkuð mikið brennt (sem ég, kaffiplebbinn, elska).
Bóndadagskaffi frá Kaffistofunni sem er eitthvað nýtt kaffifyrirtæki sem ég vissi lítið sem ekkert um. Hef þó séð einhverjar auglýsingar en þurfti þessa ábendingu til að láta vaða. Ég tek alltaf mark á nördum, pantaði hálft kíló af því og fæ það sent innan tíðar upp að dyrum. Rosalega hlakka ég til.
Gef kaffiskýrslu hér, auðvitað, enda búin að fá endanlega sönnun fyrir því að ég er alvöruáhrifavaldur. Sjá mynd sem vill virkilega meina að ég eigi að vera netfrægðarpe-rsóna, það vill véfrétt himnaríkis alla vega meina. Hvenær hefur henni skjátlast? Aldrei.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 24
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 719
- Frá upphafi: 1524917
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 615
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 19
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.