5.3.2024 | 00:58
Tvítugur stráksi, hnetufár og júróhneyksli
Háttvirtur stráksi af Himnaríki er tvítugur í dag. Húrra, húrra, húrra. Hann var vakinn í morgun af Möttu sinni, þar sem hann gisti um helgina, og fékk afmælissöng og -köku. Hingað heim var hann kominn um hálfátta í morgun og fékk þá gjöfina frá mér, gegnsæan hraðsuðuketil til að hita sér vatn í te í nýju íbúðinni. Aðeins mánuður eftir hér, svona um það bil. Elsku Maren okkar frá Akraneskaupstað er búin að koma og kveðja og rígfullorðinslífið alveg að taka við. Hann er sennilega tilbúnari en ég í þessar breytingar.
Í kvöld mætti ástkær vinafjölskylda í pasta-pasta ... ég gerði sko tvöfaldan tagliatelle-rétt með piparosti, frá Eldum rétt, og bjó einnig til lasagne (úr pakka, dúndurgott). Þetta vakti gífurlega lukku hjá genginu mínu, litlu snúllurnar sem kalla mig vonandi ömmu með tíð og tíma, mættu í flottu kjólunum úr Costco sem Hilda lét mig kaupa í stað páskaeggja (einmitt) og þeir smellpassa núna og örugglega alveg í ár til viðbótar.
Myndin er svakalega óskýr eitthvað - en takið eftir afbragðs góðum fókus á ljósakrónunni sem ég keypti fyrir ábyggilega 25 árum hjá Jónasi antíksala sem þá var í Austurstræti, nú kominn í Kópavog. Þarna má sjá frábæra vinafólkið mitt skömmu áður en við réðumst til atlögu við tertuna sem þau komu óvænt með.
Það er alltaf verið að búa til einhvers konar staðalímyndir af okkur mannfólkinu og konur eiga til dæmis að geta multitaskað, gert marga hluti í einu, á meðan karlar geta í mesta lagi eitthvað eitt. Virkilega? Ég steingleymdi að gefa gestunum vatn með matnum, ætlaði aldeilis að hafa fína klaka út í úr flottu mikið notuðu klakavélinni sem lætur mig stundum vakna tvisvar á nóttu til að pissa, svo gráðug er ég í vatnið ... Það er ekkert annað en kraftaverk að ég hafi getað eldað tvo (svakalega einfalda) rétti á sama tíma og haft allt tilbúið um sexleytið.
Þau lofuðu að borða mjög vel en ég eldaði sennilega of mikið. Nóg til afgangs í hádegismat á morgun, og svo fer eitthvað í frystinn.
Þau mættu með flott súkkulaði handa stráksa í afmælisgjöf og súperfína AFMÆLISTERTU! Hann var alsæll með daginn og rúmlega það.
Myndin er af Kela þar sem hann var að enda við að helga sér klakavélina fyrr í kvöld.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Hvað gerðist eiginlega á laugardaginn? Af hverju sigraði ekki lagið sem kommúnista-RÚV með allt þetta góðafólksgengi hafði ákveðið að myndi sigra? Og hvers vegna sigraði lagið sem íhaldsfasistaliðið sem heldur RÚV í heljargreipum ákvað að myndi sigra?
Sko ...
- Mossad fékk Rússa til að brjótast inn í kosningaappið þannig að um hálf milljón atkvæða sem óvinurinn átti að fá, endaði sem páskaegg handa kennara ákveðins menntaskóla við visst Laugarvatn.
Ég horfði reyndar ekki á Söngvakeppnina í ár. Yfirleitt er slökkt á sjónvarpinu hvort sem er. Einhverra hluta vegna datt ég þó inn í breska bökunarþáttinn þar sem augnayndið hann Hollywood dæmir baksturshæfileika breskra áhugabakara. Enn eitt í lífinu sem ég er þakklát fyrir-hugsun kviknaði við áhorfið.
Já, ég er sérlega þakklát fyrir að vera ekki dómari í þessum þáttum, með mína góðu bragðlauka ... ég vissi ekki af öllum þessum hnetutegundum sem þarna var hægt að troða inn og skemma fínasta kex og kruðerí.
Er hnetufár kannski að aukast í heiminum? Horfði oft, nánast alltaf, á þessa keppni á meðan ég nennti að horfa á sjónvarp að einhverju ráði og man ekki eftir svona hrottalegri meðferð á deigi sem hefði getað endað sem eitthvað gómsætt. Eini bakarinn á Íslandi sem ég hef einlæga trú á er Siggi í Bernhöfts. Konudagskakan hans um árið var sú besta í manna minnum, og ... algjörlega hnetu-, möndlu-, döðlu- og rúsínulaus. Í þættinum komu kúrennur fram sem eitt hráefnið, var ekki búið að útrýma þeim?
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 134
- Sl. sólarhring: 312
- Sl. viku: 826
- Frá upphafi: 1505833
Annað
- Innlit í dag: 106
- Innlit sl. viku: 672
- Gestir í dag: 105
- IP-tölur í dag: 101
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.