21.4.2024 | 22:42
Fjör í vetrarlok og aðalsamkvæmisleikurinn í dag
Samkvæmislífið tók óvænt stökk í dag, eiginlega tvö sem hefðu getað orðið þrjú (heimsókn nr. 2) ef hraðklónun væri möguleg eða hægt að teleporta sig á milli staða. Litla systir brá sér í bíltúr upp á Skaga eftir hádegið (og það er mjög skemmtilegt, Erpur!) ásamt fylgikonu og tveimur mjög sætum hundum, og eftir smávegis kaffispjall í himnaríki kíktum við á stráksa þar sem hann lifir góðu lífi annars staðar en í himnaríki, ótrúlegt en satt. Hann bauð upp á sælgæti (hann lumar enn á nánast ósnertu páskaeggi) og við fengum líka nýbakaðar tebollur (með súkkulaði).
Myndin efsta sýnir gestina góðu stefna á Langasand sem var upp á sitt besta og fegursta í dag, sjórinn flottari eftir því sem leið á daginn og fullt af sjóbrettafólki í dag, skilst mér.
Við buðum stráksa í ísbíltúr en Frystihúsið hefur tekið nokkrum breytingum og nú er hægt að fá þar kaffi og bakkelsi (m.a. Langa-Jón). Staðfesta mín er einstök, einn latte, takk, hljóðaði pöntun mín. Stráksi var spenntur yfir meðlætinu, fékk sér safa og meððí, engan ís, og fékk að nota gjafakort sem hann fékk í afmælisgjöf í fyrra (það fannst í flutningunum). Engir stælar þarna þótt meira en ár væri liðið, bara ljúfmennska OG fínasta kaffi frá Costa. Þarf að prófa drykkinn Langasand, sem ég hef heyrt gott um, er bara svo hrædd við sætt kaffi. Sumir óttast uppvakninga og blóðsugur, jafnvel geitunga, ég er hrædd við sæta kaffidrykki, geitunga og að festast í sumarbústað með drukknu og leiðinlegu fólki sem ég þekki lítið.
Áður en systir mín renndi í hlað, hafði mér borist spennandi boð ... á söngleik í Bíóhöllinni á Akranesi. Grease, hvorki meira né minna. Ég hef áður sagt frá grimmd örlaganna, þegar ég er á leið í sumarbústað þar sem er kannski jafnvel ekki sjónvarp og HM í fótbolta er að hefjast klukkan fimm. Svipað gerðist í dag, bæði leikur með Liverpool ytra og ÍA mun nær. Skvísa sem er með FOTMOB í símanum sínum nær samt að gleðjast þegar hún kíkir í hléinu á sýningunni ... Fulham 1-3 Liverpool ... og svo ÍA 5-1 Fylkir.
Ég er kannski ekki orðlaus yfir sýningunni sem elsku Hjördís (mömmur.is-snillingurinn) bauð mér á og Peta, mamma hennar, ásamt fullt af krökkum á öllum aldri í fjölskyldu þeirra, heldur skortir mig frekar nógu sterk lýsingarorð til að hrósa krökkunum úr Fjölbrautaskóla Vesturlands sem sungu og dönsuðu eins og þeir hefðu ekki gert annað, og hljómsveitin var æðisleg líka. Fyrir misskilning var ég komin hálftíma á undan Hjördísi og kó en áttaði mig samt ekkert á því að standa upp til að vera fremst í biðröðinni. Hefði samt verið vesen að hlaupa fyrst inn, ég var ekki með miða og er heldur ekki nógu þybbin til að taka frá ellefu sæti, alveg spurning hvað maður getur klætt sig úr mörgum peysum, treflum og úlpum eða reynt að flæða yfir sætin. Við sátum fjórar á öðrum bekk, hægra megin og barnabörn Petu tóku eiginlega allan fyrsta bekk, ég hætti að telja þegar ég var komin upp í fimm. Ég táraðist nokkrum sinnum af einskærri hrifningu ... þau voru, hvert og eitt einasta, virkilega góð. Vona bara að það verði jafngaman á Skálmöld núna 1. nóvember. Mínir menn þurfa heldur betur að bretta upp ermar, stilla sína strengi og vera í sínu besta formi til að jafnast á við Grease-gengið á Skaganum.
Samkvæmisleikurinn sem allir taka þátt í þessa dagana er að finna skyldleika við forsetaframbjóðendurna í ár. Mér til mikillar gleði er ég skyld þeim öllum. Hér eru nokkur sigurstrangleg, eitt af þeim verður pottþétt forseti - og sem frænku verður mér vonandi boðið á Bessastaði:
Arnar Þór Jónsson - áttmenningar
Ásdís Rán - sjömenningar
Ástþór Magnússon - skyld í tíunda og sjöunda lið, löng saga
Baldur Þórhallsson - sjömenningar
Guðmundur Felix - skyld í sjöunda og áttunda lið
Halla Hrund Logadóttir - skyldar í fjórða og fimmta
Halla Tómasdóttir - sjömenningar
Jón Gnarr - áttmenningar
Katrín Jakobsdóttir - áttmenningar
Steinunn Ólína - áttmenningar
Veit ekki hvað ég á að gera við þennan skyldleika. Kjósa þá sem er mest skyld mér, Höllu Hrund - eða þann sem er minnst skyldur mér til að forðast klíkutengsl vegna skyldleika, Ástþór? Mér finnst samt mjög fúlt að vera ekki skyldari þessu fína fólki en ég er, það er samt blátt blóð sem rennur um æðar mér (spyrjið bara á sjúkrahúsinu, blóðprufudeild, s. 432 1000) einn forfaðir minn er norskur konungur - af hverju man ég ekki nafnið á honum. Svo er einn sona Jóns Arasonar líka skyldur mér, forfaðir ... Ég get reyndar montað mig af Kristjáni Jóhannssyni söngvara, ef hann hefði boðið sig fram til forseta hefði ég getað kosið hann, við erum þremenningar!
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 35
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 731
- Frá upphafi: 1517311
Annað
- Innlit í dag: 27
- Innlit sl. viku: 590
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.