2.5.2024 | 23:18
Hefnd litlu systur og stórhættuleg Meta-gervigreindin
Seinni pakkinn frá Eldum rétt var eldaður áðan og elskan hún Inga neydd til að koma í mat, enda pakkarnir ætlaðir tveimur. Hún kom reyndar alveg sjálfviljug, borðaði nokkuð sterkan tagliatelle-rétt og sagði mér hryllingssögur úr Mall of America, þeim sataníska stað, sem hún neyddist til að fara á fyrir mörgum árum til að kaupa eitthvað sem einn afkomandann vantaði sárlega. Hún var þeirri stund fegnust þegar hún slapp út með eitthvað í poka. Þegar við Hilda skruppum ásamt nokkrum viðhengjum okkar til Orlando (Sjá allt um ævintýri Sjömenninganna í Karíbahafi (sjá mynd af vettvangi, Cozumel í Mexíkó, á leið í dolluna) í virtum fjölmiðlum í desember 2018), gistum við á hóteli með Florida Mall á neðri hæðinni. Svo vel vildi til að yfirleitt var ekki þörf á því að fara nema rétt fram hjá lobbíinu og fara ganginn að mollinu því þar er kaffihús, jólabúð (jólakúlan með mynd af Trump fékkst þar), veitingastaðurinn þar sem Junior, vinur okkar, var að vinna ... og pínkulítil sjoppa sem selur vatn, gos, bjór, tóbak, flensupillur og ávexti, svo fátt sé nefnt.
Vissulega hittum við þarna ýmsar dásemdir alveg óvænt, í mollinu sko, eins og mann sem vann með mér í Ísfélaginu í Eyjum fyrir löngu, annan sem er elsti sonur tvíburasystur mömmu og við sjáum hann allt of sjaldan, eins og aðra ættingja, en það eru alltaf fagnaðarfundir samt.
Frábæru karlarnir komu með rúmið upp úr kl. 18, skrúfuðu fyrst festingu undir (sem var óvænt) og svo rúmlappirnar. Afar kvenlegur hamar sem ég fékk í jólagjöf eitt árið fyrir löngu, með tvenns konar innbyggðum skrúfjárnum í skaftinu virkaði ansi hreint vel, alla vega hamarinn, en ég þurfti að heimsækja einn nágrannann og sníkja stjörnuskrúfjárn. Það var minnsta mál, hann rétti mér veglegt skrúfjárnasafn heimilisins og rúmkarlarnir urðu afskaplega glaðir og verkið gekk miklu hraðar eftir þetta. Rúmið er ansi hreint létt en samt ekkert drasl, fínt fyrir unglingsstrák og suddalega æðislega gott að hafa það létt þegar þarf að flytja það milli sveitarfélaga. Herbergið er orðið súperfínt ... sjá mynd.
Mynd: Rúmið frá Jysk var kannski ódýrt og létt en rúmfötin breyta því í konunglegan bedda, glæsileg sængurfötin njóta sín vel og einnig skiptir lýsingin talsvert miklu máli. Mottuna á gólfinu heklaði ég á mettíma, átta tímum, ljósakrónan fékkst í antíkskúrnum við Heiðarbraut, stóllinn í Húsgagnahöllinni. Ég vona innilega að drengurinn kunni að meta litina í teppinu og herbergið almennt. Ég gerði mitt besta, ekki hægt að krefjast meira af mér.
Þegar ég skrapp í bæinn á þriðjudaginn sótti Hilda systir mig. Ég hef oftar en einu sinni vælt og skælt yfir skorti hennar á rokkhjarta og spilun hennar á vissum geisladiski (Vinsælustu lög Íslandssögunnar-eitthvað) og ég hafi heyrt Heyr mína bæn svona 300 sinnum á ferðalagi okkar austur að Höfn og til baka. Var það ekki fyrra? Blessuð og sæl, sagði hún ansi hreint vingjarnlega miðað við illskuna sem hún var í þann veginn að beita mig, skömmu eftir að ég inn í bílinn. Þegar ég var að spenna á mig beltin, sem betur fer búin, ýtti hún á takka í mælaborðinu og hækkaði í botn ... Heyr mína bæn drundi í eyrum mínum svo hljóðhimnurnar engdust, tónlistin heyrðist yfir allt bílastæðið Breiðholtsmegin í Mjóddinni og fólk kom hlaupandi frá stæðunum Kópavogsmegin líka, gjörsamlega í losti. Þetta heitir að kunna að hefna sín. Veit samt ekki hvað vesalings fólkið í Mjódd hafði gert henni ...
2. maí 2009:
Sá í fréttum Stöðvar 2 að David Lynch leikstjóri drakk latte frá kaffitári, eins og ég geri annað slagið. Ykkar einlæg.
Mér finnst ég stundum svo alþjóðleg, veraldarvön, veit ekki hvaða orð lýstir þessu best. Drekk víst stundum sama kaffi og heimsfrægur leikstjóri, eins og kemur fram hér ofar. Fékk ókunnan mann á rúmstokkinn sama ár og Elísabet heitin Englandsdrottning lenti í því sama. Ég elska Skálmöld - alveg eins og Guðni forseti. Finn fyrir miklum andlegum skyldleika við þau, og fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu að ég eigi eitthvað sameiginlegt með.
Ég þori reyndar ekki að hafa mig mikið í frammi á fb þessa dagana - bara í þessari viku hafa tveir eða þrír fb-vinir verið sviptir síðum sínum fyrir engar sakir. Gervigreind sér um þetta og hún er ekki sveigjanleg, eins og þegar frændi nokkur fékk aðvörun þegar hann gerði grín að nýnasi..um og var svo látinn fjúka endanlega þegar hann sagði við eitt afmælisbarn dagsins orðið heillin. Fyrstu fjórir stafirnir í því orði sýndu einfaldlega að frændi væri óforbetranlegur.
Til að milda gervigreindina set ég reglulega inn krúttlegar myndir af kisunum mínum. Það virðist virka. Ég passa mig að læka ekki of mikið hjá fólki, ég set vissulega alltaf hlekk á blogg dagsins inn á fb en kannski þóknast Metu það ekki til lengdar. Fólk missir þarna minningar, mögulega myndir en mér skilst að hægt sé að endurheimta þær í einhverjum tilfellum. Svo missa sumir síður sínar í klær svindlara ... fékk kveðju frá gamalli vinkonu nýlega og svaraði strax með spurningu um hvernig henni liði í nýja landinu. Fékk ekkert svar, heldur hvarf síðan hennar. Nema þetta sé nýjasta nýtt til að slíta fb-vináttu á dramatískan hátt. Hvet fólk sem lendir í þessu að gúgla hvernig eigi að endurheimta síðu sína, sumir ná að gera það, aðrir ekki.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 4
- Sl. sólarhring: 295
- Sl. viku: 801
- Frá upphafi: 1516318
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 666
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.