Annir, jólahúmor og ... tilboði tekið

Sjórinn minn í dagAnnasöm helgi fram undan ...svo vægt sé til orða tekið, verkefni sem þarf að klárast hratt og vel svo ég verð að sleppa því að skreppa á opnun vinkonu á myndlistarsýningu í miðborginni á morgun og barnaafmæli hjá litlum frænda í Kópamaros á sunnudag. Ekki skrítið að ég þurfi að flytja í bæinn, svo mikið að gera sunnan rörs. Annars var sjórinn minn svo glæsilegur í dag að mig langar helst til að taka hann með mér suður, eins og hann leggur sig. Ég seldi hann ekki með himnaríki svo sjáum til.

 

 

Myndin er tekin frá Nýju blokkinni á Höfðabraut og sýnir himnaríki og sjóinn minn.

 

Með smáoggulitlum fyrirvara gerði ég tilboð í eina af íbúðunum sem ég skoðaði í gær og það var samþykkt. Þannig að ég er 99% að verða eigandi að ágætri íbúð í Reykjavík, hún er vissulega á útjaðri gamalgróins hverfis ... og getið nú. Frábæra Guðný, hönnuðurinn sem gerði himnaríki svo fínt, ætlar að teikna upp eldhús fyrir mig á nýja staðnum, það gamla er orðið lúið en það nýja verður eflaust "bara" Ikea og reynt að halda kostnaði í algjöru lágmarki en fyrst mála og flytja inn, svo melta hlutina. Smiður í klani fjölskyldu minnar mun gera svalirnar kattheldar svo Mosi fari sér ekki að voða, hann flaug út um eldhúsgluggann hér um árið en varð ekki meint af, "nýja himnaríkið" (vantar nýtt nafn á bloggið?) er enn hærra uppi svo ég verð að passa hann einstaklega vel. Hann hefur ekkert fjarlægðaskyn, virðist vera, eða er bara glanni með þettareddast-heilkennið. Fyrri eigandi sagði fasteignasalanum að dýrahald væri leyft og það væru meira að segja hundar í húsinu. Það eru svo góðar fréttir, hundar gera allt betra. Geri ekki á milli katta og hunda, það þarf nefnilega ekki að vera annaðhvort fyrir kisur eða hunda ... 

 

Sætir bræðurÖnnur sýrlenska fjölskyldan mín ætlar að hjálpa mér við að pakka og losa mig við dót í Búkollu og á haugana, ef þarf, ásamt því að flytja, á meðan hin fjölskyldan sér um að gefa mér að borða ansi hreint reglulega, síðast nú í kvöld (sjá mynd af ömmustrákunum mínum). Íslenskan er tekin alvarlega á því heimili ... nema ég þurfti að benda húsmóðurinni á að það væri betra að segja TEPPI en tippi (ég nota viljandi ekki Y til að sjokkera ekki prúða bloggvini), jafnvel nota orðið motta ... Hún gargaði úr hlátri þegar ég þýddi dónaskapinn, og bætti um betur, sagðist hafa gert viss mistök í innkaupaferð nýlega þar sem hún kallaði köku kúk, voðalega góð kúka, sagði hún víst við gleði viðstaddra. Hún er algjör snillingur, bara búin með Íslensku I en fer í Íslensku II fljótlega ... kostar bara 52 þúsund ... og nei, þau borga allt sjálf, öfugt við það sem sumir segja. Ég væri að fara að kenna henni og fleiri yndum ef höfuðborgin hefði ekki togað svona fast í mig, samt sorglegt, það er svo gaman að kenna útlendingum íslensku.

 

 

Ég læri líka heilmikið af þeim og tala nú nánast öll tungumál heims. Huggulegi Spánverjinn á ónefndri bensínstöð sunnan rörs, næstum grét í gær þegar ég þakkaði honum fyrir viðskiptin á flottri spænsku ... gracias. Takk, elsku Venesúelafólk fyrir að kenna mér að segja takk á spænsku. Ég hef líka komist ansi langt á því að segja sjú tem við Frakka (ég elska þig), Sjúkran, habíbí við arabískt fólk (takk, elskan), Ich liebe Dich við Þjóðverja (ég elska þig) og hissi við Finna (lyfta). Tungumálakunnátta er algjör nauðsyn þegar heimurinn er orðinn svona lítill og allra þjóða kvikindi lífga upp á land og þjóð og bjarga manni án efa frá bæði innræktun og endalausum skyrhræringi.

 

JólatónleikarÉg hef aldrei nennt á jólatónleika, bara alls ekki, nema með Kór Langholtskirkju lengi vel á meðan ég bjó í bænum. Söng auðvitað með kórnum um hríð og fór svo áfram á jólasöngvana eftir að ég var hætt. Geggjaðir tónleikar sem gáfu gott í hjartað svo ég keypti flottari jólagjafir en ella. Jú, annars, ég sá einu sinni Palla og Monicu í Háteigskirkju ... sem var mjög hátíðlegt og flott.

 

Mér finnst húmor eitt það allra mikilvægasta í lífinu og ég hef á tilfinningunni að tónleikar Friðriks Ómars og co séu óbærilega fyndnir - og músíkin flott líka. Við Hilda systir ætlum að fara 21. des, á afmælisdegi Löllu vinkonu og Frank Zappa. Vetrarsólstöður eru kl. 9.19 um morguninn. Vitringaranir þrír; Friðrik, Jógvan og Eyþór Ingi, einnig Selma Björns, Salka Sól og Regína Ósk ... held að þetta geti ekki klikkað, æðisleg öll.

 

Lesturinn þessa daganaÉg er enn hálfmóðguð út í Storytel út af sögunni um Atlas, æ, þarna systurnar sjö-bækurnar fyrir að biðja okkur grunlausu lestrarhestana ekki afsökunar, okkur sem vorum byrjuð á henni en þvinguð skyndilega og án skýringa í þriggja vikna pásu-dæmið, og því hjakkast ég enn (helsátt þó) í gömlu frábæru sögunum um Martin Beck, lögreglufulltrúa í Stokkhólmi. Ég ætlaði aðeins að hvíla mig á ofbeldinu þar, hún er nefnilega frekar rosaleg sú sem ég er með núna, Maður uppi á þaki, en ég fór kannski úr öskunni í eldinn um tíma (sjá þessa bleiku), las eiginlega bara byrjunina samt ... fór svo aftur í sjöwall & wahlöö en tók bara fyrir eyrun þegar lýsingar á kennslu mannsins (þess myrta) þegar hann var í hernum, á því hvernig eigi að drepa, verða hroðalegar, ég hef náð að hlífa sál minni nokkuð vel með því að neita að hlusta, og hef því ekki hugmynd um allan skepnuskap myrta mannsins og vil ekki vita. Hélt að ég væri bara viðkvæm þegar kemur að dýrum í skáldsögum, ekki mönnum, en ég ber greinilega einhverjar tilfinningar til skáldaðs mannfólks líka. Hin bókin (bleika) sem ég kíkti aðeins í ber heiti sem hefur sjokkerað alla mína ættingja og jafnvel ógnað tilveru þeirra, að þeirra mati. Það ríkir víst einskær feginleiki yfir því að ég komist ekki í afmælið á sunnudaginn í Kópavogi, en ég frétti reyndar af krísufundi sem var haldinn vegna fyrirhugaðra flutninga minna í bæinn eftir rétt rúman mánuð! Leyfi ykkur að fylgjast með. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl. Gaman að sjá þig.

Benedikt Jóhannes Axelsson (IP-tala skráð) 31.8.2024 kl. 17:00

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hæ, og sömuleiðis. :) 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 1.9.2024 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 188
  • Sl. sólarhring: 475
  • Sl. viku: 1799
  • Frá upphafi: 1492904

Annað

  • Innlit í dag: 147
  • Innlit sl. viku: 1443
  • Gestir í dag: 147
  • IP-tölur í dag: 147

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Tungllendingin
  • Kleppsvegurinn
  • Kassar úr eldhúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband