Hátíðarhöld í himnaríki

17. júníVeðrið úti á svölum er guðdómlegt. Hvernig er það hjá ykkur? Kannski ég bara setjist þar í smástund. Verst að eina sólvörnin sem ég á er í meikinu mínu ... kann varla við að bera það á mig alla áður en ég fer í sólbað. Kannski ég setji bara ólífuolíu ... hehehhe.

Ströndin er stór og æðisleg núna, það er háfjara, en allt mannlaust vegna 17. júní-hátíðarhaldanna. Ég man eftir einni sekúndu úr draumi mínum sl. nótt þar sem var fjara og það sást varla í sjóinn, svo langt var hann frá ströndinni. Þetta táknar mögulega að Katla láti á sér kræla í sumar eða að skemmtilegur bloggvinafundur verði haldinn í Skrúðgarðinum í haust (þegar allir verða komnir úr fríi) og að Ridge í boldinu verði sérlegur gestur okkar bloggvinanna. Erum við ekki hinir sönnu aðdáendur?

Vaknaði á mínútunni 12 sem mér finnst flottur tími, ekkert fimm mínútur í eða yfir eða slíkt rugl, bara akkúrat. Þetta veit á góða næstu viku, fyrstu vinnuvikuna eftir sumarfrí!

Æsispennandi hátíðardagskrá er svo fram undan í dag. Það verður byrjað á glettilega góðu hátíðarbaði og síðan hefst bið eftir hátíðargestinum, bloggvinkonu sem ég hef aldrei hitt áður en finnst ég þekkja svo vel. Þetta veit á góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

OMG hvað ég er forvitin; hver er hún (bloggvinkonan)???

Settu endilega á þig ólífuolíu, húðin á þér verður svona "crispy" og æðisleg eins og á steiktum kjúklingi. Namminamm!

Gleðilegan 17.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2007 kl. 13:35

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Heiða, skessan ógurlega! Svo styttist vonandi í að fleiri bloggvinir kíki, í síðasta lagi 12. ágúst sko!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 13:43

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Jebb er sko búin að fylla bílinn af karlmönnum og brennivíni og legg bráðum af stað!! 

ps. tek blöðin með mér líka

Heiða B. Heiðars, 17.6.2007 kl. 14:39

4 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Gleðilegan 17. Júní, kæra Gurrí mín. Njóttu dagsins og heimsóknarinnar, vona að þið getið notið sólarinnar á svölunum án þess að breytast í vel steiktar gellur...er hér sjálf öll rauð eftir sundið síðustu dagana og fyrstu hitabylgjuna í San Jose, hún entist í þrjá daga, en það var ógeðslega heitt, og ég brann, þó svo að ég var með sólaráburðinn á mér, svona er þetta bara...

Bertha Sigmundsdóttir, 17.6.2007 kl. 14:40

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Steikingarfeiti er æði.....Já er Heiða að koma..en frábært. Seðu henni að Alice sé komin til landsins og geti nú um tima verið kærasta Sigurðar Freys barnabarnsins hennar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.6.2007 kl. 16:48

6 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Til hamingju með þjóðhátíðardaginn, vonandi hefur sólbaðið á svölunum verið gott - engin sólbruni og engir geitungar að ráðast á þig.

Björg K. Sigurðardóttir, 17.6.2007 kl. 17:01

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Frábær endir á sumarfríinu þínu Gurrí. Veðrið búið að vera yndislegt í dag. Bið að heilsa Heiðu.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.6.2007 kl. 17:05

8 identicon

Gleðilegan 17. júní, elsku besta dúlla! Ég sendi þér hlýjar kveðjur frá Akureyrinni, sem er ennþá þurr , en það er skýjað þó. Gestirnir í bænum væntanlega á heimleið í dag, og hvort sem það hafi verið aðkomumenn eða Akureyringar sem hafa málað bæinn rauðan o.s.frv. ... þá verður rólegra hér um sinn.

Eigðu yndislegan dag!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 17.6.2007 kl. 17:38

9 Smámynd: Ólöf Anna

Suss bara að skella sér í sólbað svo er það bara burn free og aloe vera eftir á. Seinni tíma vandmál.

Ólöf Anna , 17.6.2007 kl. 18:29

10 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, vá, hittir maður sameiginlega bloggvini á afmælisdaginn þinn, það verður gaman! Má leggja inn pantanir?

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.6.2007 kl. 20:00

11 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Og gleðilega þjóðhátíð, krúttó.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.6.2007 kl. 20:03

12 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Gleðilega þjóðhátíð, sömuleiðis elskurnar. Ég ætla bara rétt að vona að sem flestir bloggvinir láti sjá sig í afmælinu í ágúst og úði í sig djöfladjús (kaffi) og tertum.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 20:06

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vona að þú hafir átt frábæran svaladag við Langasand, elsku maddama, ekki-kelling, fröken, frú.  Hér var flott á svölunum, enda setti ég sumarblómin niður í gær og því gróandi og sumar... í hellulögninni.... Það eru ekki allir með pálmatré (öfund).  Faðm til þín yfir sjóinn!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.6.2007 kl. 21:08

14 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Dagurinn var frábær, vonandi var hann það líka hjá ykkur öllum, elskurnar!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 21:44

15 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Vá hvað ég hlakka til að hitta Ridge og komast að því hvort hann er í alvöru svona illa gefinn eða hvort hann er bara að feika...ég meina leika

Brynja Hjaltadóttir, 18.6.2007 kl. 00:16

16 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hahahahha, gáðu líka hvort hann er alvörunni! Held að hann sé úr plasti sko! Ég bið ekki að heilsa honum. Skemmtu þér samt vel.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.6.2007 kl. 00:21

17 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Well, kannski tala ég bara við hann sjálf í Skrúðgarðinum.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.6.2007 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 45
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 683
  • Frá upphafi: 1505974

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 550
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband