Ananas vesen, hrópaði hún þegar kynþokkafulli fréttamaðurinn hvessti brýrnar og tilkynnti um lækkað lánshlutfall hjá Íbúðalánasjóði vegna verðbólguþrýstings

Súkkulaðikaka fyrir smiðinnIðnaðarmaðurEr alveg grútspæld. Þessi breyting kemur sér alla vega illa fyrir mig.

Ef ekki væri svona mikið að gera hjá iðnaðarmönnum á sumrin væru endurbæturnar í himnaríki að baki og ég búin að taka fyrirhugað endubótalán.

Efast um að ég geti reitt fram 20% úr eigin vasa þótt forrík sé. Skrambans verðbólguþrýsingur. Held að ég verði að bjóða upp á eitthvað betra en kaffi til að lokka til mín iðnaðarmennina.

P.s. Æ, ég gat ekki stillt mig um að fylgja tískunni í fyrirsögnum hér á Moggablogginu. Ellý, Jenný, Jón Valur eru fyrirmynd mín að þessu sinni.


mbl.is Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs lækkað í 80%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Þú verður bara að tæla iðnaðarmennina með djörfum sögum. Getur notað þetta hér: http://mengella.blogspot.com/2007/07/jarkurinn-ell_02.html

Svala Jónsdóttir, 3.7.2007 kl. 19:41

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko fyrirsagna veiran breiðist út með ógnarhraða.  Ekki nefna hana hvaðhúnnúheitir og hvaðhannnúheitir í sömu andrá og mína eðalpersónu.  Ég er svo LANGT yfir þau sett.

Gangi þér vel í lánunum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2007 kl. 19:43

3 Smámynd: Ísdrottningin

   Ananas vesen eða ansans vesen?

Ísdrottningin, 3.7.2007 kl. 19:57

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

ANANAS ... ég var að reyna að vera stillt og góð og blóta ekki.

Sorrí, Jenný, mun ekki klikka á þessu aftur, merka manneskja! Og Svala, ég er byrjuð að semja nokkrar subbulegar ... með hjálp Mengellu.  

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 20:07

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hva, finnst þér strákurinn Simmi Sexý?

(hlýtur að hafa meint hann!)

Hvað ætlarðu að bjóða, "Snúða" með kaffinu?

Ussuss, ekkert klám á síðu Sankti Guðríðar takk!

En að alvöru lífsins, gilda þessar lánareglur ekki fyrst og síðast um íbúðakaup?

Finnst endilega að um viðhald og endurbætur gildi önnur lögmál, allavega snýst bölvuð vísitölumælingin um byggingu og kaup á húsnæði þegar ég var endur fyrir löngu að læra eitthvað um verslunar- og viðskiptafræði! Byggingar- og lánskjaravísitala heita þær systur víst!) En er farin að ryðga í þessu, ættir bara að hringja í sjóðinn eða í bankann þinn. Nú kannski fellurðu undir félagslega hattinn, það á víst að sinna þeim sérstaklega segir í fréttinni, sem einhver lágmarkslaun hafa eða litlar eignir!

Magnús Geir Guðmundsson, 3.7.2007 kl. 21:18

6 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Mikið vona ég að þú hafir rétt fyrir þér! Best að hringja í þessar elskur hjá Íbúðalánasjóði á morgun.

Fell ekki undir félagslega hattinn lengur, gerði það þegar ég var ein af þessum ríku einstæðu mæðrum sem hafði það svo gott með allar þessar bætur. Hahhahaha!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 21:28

7 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Mér líst vel á þessa súkkulaðiköku

Brynja Hjaltadóttir, 3.7.2007 kl. 22:47

8 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Það er ekkert nýtt, Brynja, að þú sért smekkmanneskja!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 22:50

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já, við vonum það besta, held þú ættir að fá lán sem einfaldlega ætti að duga fyrir þessum endurbótum, en til að hafa vaðið fyrir neðan þig, þá áttu að semja nákvæmlega við verktakan, smiðinn t.d. um kostnaðinn við verkið, svo hann komi ekki í miðju kafi og segi, "Guðríður, þetta mun kosta meir en 500000, 700000 verður það allavega!" Þekki fleiri en einn sem lent hafa í voðalegum leiðindum vegna óprúttina iðnaðarmanna! Held að sjóðurinn hafi til þess gerð sérstök eyðublöð þar sem slíkir verksamningar eru tíundaðir í upphafi verrks. EF svo eitthvað kemur upp á, verk tefst eða kosnaður bætist við, þá ber verktakinn ábyrðina!

Þú skoðar þetta allavega vel og vandlega og þyggur væntanlega góð ráð hjá Sjóðnum!

Afsakaðu annars, ekki góður stíll á þessu, en þú skilur hvað um er rætt!

Magnús Geir Guðmundsson, 3.7.2007 kl. 23:10

10 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Einmitt! Það eina sem er virkilega rangt hjá þér er að smiðurinn minn kallar mig Gurrí! Annars ... verktakar á Akranesi eru þekktir fyrir heiðarleika, Skaginn er of lítill staður til að þeir geti svikið fólkið sem þeir hitta í Einarsbúð á föstudögum!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 23:18

11 identicon

Allir eiga leiðréttingar orða sinna. Himnaríkis frúin líka, gott fólk.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 24
  • Sl. sólarhring: 155
  • Sl. viku: 662
  • Frá upphafi: 1505953

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 532
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband