Hugsað til Potters

harrypotter_200Skil ekki hvað gengur hægt að klára Potterinn. Ýmist syfja, vinna, annir við blogglestur eða jafnvel sjónvarpsgláp orsaka þetta. Einnig spilar einhverja rullu að bakverkur skellur á ef rúm-lega við lestur er löng en þá ætti leisígörlinn að koma sterkur inn þótt skakkur sé. Hef þó ekki dottið ofan í átakanlegar fótbolta-, hafnabolta- eða golfmyndir í sjónvarpinu, finnst reyndar sumar þeirra átakanlega leiðinlegar og það er kannski lúmsk meiningin á bak við þetta. Finnst bara svo fyndin lýsing á íþróttamynd ... að segja hana átakanlega! Ég hugsa þó oft til Potters, eins og smiðurinn minn „hugsar“ til mín ... í stað þess að koma og klára að smíða.

Var einmitt að hugsa um Potter í gærkvöldi og fór á Youtube, sem getur verið fyrirtaksskemmtun, skellti inn Harry Potter og fann þetta líka fína myndband þar sem „skyggnst er á bak við tjöldin og sýnt úr myndinni“: http://www.youtube.com/watch?v=LJ0jvrRJ0Z8&mode=related&search=


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég bíð staðföst eftir upplýsingum.  Hm... á að drepa mann úr forvitni.  Dveldu í leisígörlinu þar til lestur er búinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 13:18

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Ókei, orð þín eru mér lög! Mun hlýða. Það var akkúrat þetta sem ég þurfti til að drífa mig í málið. Það pirrar mig aðeins að finnast ég stundum stödd í Enid Blyton-bók, þar sem kvenmaðurinn á staðnum gerir lítið annað en að redda mat og elda fyrir Harry og Ron. Arggggg! Þoli ekki þetta vantraust á karlmenn, að þeir séu svo bjargarlausir þegar er ekki einhver kvensa sem hugsar um þá! 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.7.2007 kl. 13:24

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Kíktu svo á jútúbið, kélling, það er ferlega fyndið!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.7.2007 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 212
  • Sl. sólarhring: 332
  • Sl. viku: 904
  • Frá upphafi: 1505911

Annað

  • Innlit í dag: 171
  • Innlit sl. viku: 737
  • Gestir í dag: 164
  • IP-tölur í dag: 158

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband