Mötuneytiskjötbúðingskartöflumúsarsósurauðbeður

GrænmetiKjötbúðingur, kartöflumús og brún sósa, majóneshrásalat og rauðbeður, í æsku var svona eitthvað algjör draumamáltíð en ekki lengur. Gleymi því stundum að sæmilega metnaðarfullur salatbar er á staðnum.

Sigþóra sá að ég hafði reynt að hringja í morgun og lét heyra í sér nokkru síðar. Jú, hún var með á hreinu hvað gerðist í morgun. Strætó missti afl á milli Mosó og Reykjavíkur (fyrsta ferð dagsins fer alla leið í Ártún). Hún fór út á stoppistöðinni okkar og sá sér til hrellingar að strætó var orðinn afllaus og stóð kyrr á stoppistöðinni. Hasar í vinnunniSvo fór að rjúka úr honum og þetta var enginn smáreykur. Hin samviskusama Sigþóra dreif sig í vinnuna, enda mæting kl. 7.30, og einhverjir aðrir verða að segja okkur hvernig allir farþegarnir komust á áfangastað. Líklega hefur aukabíllinn tekið hring og hirt upp fólkið.

Slinkur kom á mig í morgun (tengist hvorki kynlífi né drykkju) smáhasar í gangi, og það þurfti ekki meira til, nú geng ég kengbogin, alveg að drepast í bakinu. Mikið er dásamlegt að það verður sjúkraþjálfun á morgun! Sjúkkitt, gott að ég fæ far með Ástu heim, það er ekki sniðugt að taka strætó með hálfgert þursabit. Hitapoki og íbúfen hjálpar eitthvað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Búin að geyma kjötbúðing.  Hm.. sennilega ekki mjög spennandi.

Hættu að slinka þig svona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.11.2007 kl. 13:13

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Kom slinkurinn þegar þú teygðir þig í fjarstýringuna eða bókina?

Þröstur Unnar, 12.11.2007 kl. 13:26

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Nojts, þetta gerðist í vinnunni og tengist myndinni til hægri. Hægt að segja að barist sé um spennandi forsíðuefni hérna hjá Birtingi. Ég er þessi vinstra megin.

Já, Jenný, ég er hætt að slika!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.11.2007 kl. 14:00

4 Smámynd: Ragnheiður

Ertu að lumbra á fólki í vinnunni ? Ji..ér so hissa. Það er hinsvegar vont að fá þursabit...andskoti vont. Fékk nokkur í röð eitt sumarið og veit síðan að það er 12 hraðahindranir frá þáverandi heimili út á Kópavogsháls....hataði hverja þeirra

Ragnheiður , 12.11.2007 kl. 14:10

5 Smámynd: Fjóla Æ.

Heyrðu eiga ekki öll dýrin í skóginum að vera vinir?

Ef hasarinn í vinnunni er eitthvað svipaður og í Kill Bill þá held ég að það VERÐI að gefa út auka Séð og heyrt. Og þá verður engin Vika.

Svo er bara að vona að þú getir farið í heitt bað þegar þú kemst heim og krossa putta að hitaveitan sé ekki í einhverri aðgerð eins og um daginn.

Fjóla Æ., 12.11.2007 kl. 14:37

6 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Ókei, ég var að plata. Mér fannst eitthvað svo hallærislegt að fá í bakið eftir að hafa beygt mig þannig að ég laug þessu eins og ég var löng til ... heheheheh. Jæja, farin heim!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.11.2007 kl. 14:48

7 identicon

Já Gurrí mín frétti þegar ég fór heim að leið 15 hefði tekið farþegana upp á leið sinni niður í bæ hann kom bara eftir smá stund sögðu þau sem ég hitti þegar ég fór heim seinnipartinn. Kom í ALGJÖRRI DRUSLU seinnipartinn þetta fer að verða hálf dapurlegt þarna hjá Teiti og co.  Takk elskan fyrir það sem þú sendir mér á e- mail í dag Tær snilld 

Sjáumst á miðvikudaginn vonandi ef hún Ásta sendir þér ekki BDMsms

Sigþóra Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 18:58

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér fannst alltaf gott að fá kjötbúðing í den

Kristín Katla Árnadóttir, 12.11.2007 kl. 20:46

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elskið mitt, vona að þú sért komin upp í rúm með íbúffa og hitapoka. Ég er búin að vera að ruslast í rúminu í dag, en ætla til Rek á morgun, vona að ég lendi ekki vondri rútu.  Þeir verða nú að hafa góða vagna undir ykkur Skagafólkið sem leggið í þessa langferð hvern dag og í öllum veðrum. Vona að þér barni fljótt.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.11.2007 kl. 20:59

10 Smámynd: Jens Guð

 Þetta er lengsta orð sem ég hef séð í fyrirsögn.

Jens Guð, 12.11.2007 kl. 21:57

11 identicon

Á ég að koma upp að dyrum á himnaríki í fyrramálið???Hef ekki komið þangað í langa hríð. Og jafnvel að bera þig niður,æ nei það gæti valdið misskilningi? Langt síðan þú hefur notað þann gula innanbæjar góða.KJÖTSÚPA og ELDSÚRT SLÁTUR vonandi hjá Maríu.Hressir, bætir,kætir. Kveðja frá strætóstrák sem fær stundum kaffi,takk fyrir það.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 30
  • Sl. sólarhring: 138
  • Sl. viku: 668
  • Frá upphafi: 1505959

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 538
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband