2.1.2008 | 17:54
Músik, mórall, einkamál.is og pínku bold
Við svefnlausu kjéddlíngarnar ókum eins og meistarar á Skagann í dag og geispuðum ekki einu sinni. Af vanda sá ég um að jafna loftþrýstinginn í bílnum á meðan við ókum í gegnum göngin með því að ýta á takka hjá miðstöðinni. Veit ekki hvernig Ásta færi að án mín. Hoppaði út við Skeljungssjoppuna, sem hét Skaganesti í æsku minni, og afhenti þar 20 Völvu-Vikur. Blaðið seldist upp í hvelli fyrir áramótin og viðbótin var vel þegin.
Er að hlusta á ansi hreint ljúfa og notalega plötu sem einn uppáhaldsstrætóbílstjórinn minn var að senda frá sér, hann André Bachmann gleðigjafi. Ef André er ekki þegar búinn að fá fálkaorðu fyrir góðgerðastörf þá hlýtur að fara að koma að honum. Segi nú ekki annað.
Ég er með smá móral. Fór lítinn blogghring í gær og heimsótti m.a. þá sem ég vanræki oftast, fólk úr bloggfortíðinni. Moggabloggarar eru svo fyrirferðarmiklir í lífi mínu að hinir verða útundan. Í einni heimsókninni sá ég færslu um ókunnugt jólakort frá Sissí og Arnari (fölsk nöfn), hjón sem móttakandi kortsins kannaðist ekkert við. Auk þess talaði hann um þybbið barn sem myndskreytti kortið. Af óvæntri hvatvísi kommentaði ég og þóttist vera Sissí og Arnar, rosamóðguð hjón, barnið væri bara stórbeinótt ... hann fengi sko ekki framar jólakort frá okkur ... Efast reyndar um að fórnarlambið hafi trúað mér en ég hef samt áhyggjur af þessu jólakorti og öllum þeim jólakortum sem komast ekki til skila eða sendandinn þekkist ekki. Það versta sem ég lendi í er að fá kort með mynd af börnum sem ég þekki ekki og t.d. undirskriftina Guðrún og fjölskylda ... Ég þekki svo margar Guðrúnar, enda nokkuð algengt nafn. Þetta gætu meira að segja verið barnabörn, ég er komin á þann aldur. Ef ég sendi myndakort þá myndi mynd af köttunum mínum prýða það, hvaða Íslendingur þekkir ekki Kubb og Tomma?
Komin á þann aldur já ... Nú eru bara 223 dagar í viðbót sem ég get sagt að ég sé rúmlega fertug án þess að vera með lygaramerki. Sama má segja um Madonnu. Ég gerði mér grein fyrir þessu um áramótin. Ætla samt ekki að skella mér á einkamal.is, held að strákarnir þar séu of lífsreyndir til að hægt sé að hagræða sannleikanum á nokkurn hátt. Þegar ég tók áskoruninni um árið og prófaði einkamálið undir vinátta/spjall, eins og ég hef áður sagt frá, lauk æsku minni og sakleysi snarlega. Kanar á Vellinum buðu mér reglulega í hóp-lúdó með fjölda frískra karla, ungir strákar vildu prófa eldri konu og slíkt. Einu almennilegu karlarnir sem ég vináttu-spjallaði við komu svo fljótlega út úr skápnum sem kvæntir menn og þá hættu þeir að vera almennilegir í mínum huga. Kannski hefðu flestar konur í mínum sporum hoppað á Kanana, strákana og þá giftu. Þetta segir mér bara að ég hafi klikkaða sjálfsstjórn.
P.s. Langt síðan ég hef boldað. Felicia lifnaði við í sjúkrabílnum, var ég kannski búin að segja frá því? Stefanía fékk lánað barnið hennar til að efla lífsvilja hennar og það virðist ætla að ganga upp. Taylor, geðlæknirinn geðþekki með varirnar, daðrar ósleitilega við Nick og gengur bara vel við það þar sem Brooke ætlar að bíða með að sofa hjá Nick þar til hjónabandi hans og Bridget, dóttur Brooke, lýkur löglega ... eftir sex mánuði. Big mistake ... Læknirinn hennar Feliciu horfir ágirndaraugum á sjúklinginn sinn, frekar ógeðfellt. Skrifast kannski á skort á leikhæfileikum. Kannski á þetta að vera umhyggja. Bridget er farin að jafna sig eftir barnsmissinn og skilnaðinn og hlakkar til að ala upp Dominic litla sem reyndist vera sonur Dante, en ekki Nicks, sú á eftir að fá sjokk þegar Felicia lifnar við. Jackie er farin að kalla Eric (fyrri mann Brooke og Stefaníu og pabba Ridge, þó ekki blóðföður) darling, þau eru greinilega byrjuð saman, fjör hjá öldruðum. Jackie þráir ekkert heitar en að giftast Eric. Verst að hann er enn kvæntur Stefaníu löglega og það er spurning um sex mánuði þar líka???? Gvuð, Stefanía er að fara með Eric að sjúkrabeði Feliciu, hann hefur syrgt látna dóttur sína, enda veit hann ekki að hún lifnaði við í sjúkrabílnum. Tjaldið fellur.Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Sjónvarp, Tónlist, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 160
- Sl. sólarhring: 330
- Sl. viku: 852
- Frá upphafi: 1505859
Annað
- Innlit í dag: 128
- Innlit sl. viku: 694
- Gestir í dag: 123
- IP-tölur í dag: 119
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Æ, þú ert alltaf jafn yndisleg.
Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 18:08
Svo er nú ekkert víst að ungu strákarnir hafi verið jafnungir og þeir sögðust vera.
Fyrir nokkrum árum, þegar ég var með símsvara, biðu einu sinni löng skilaboð eftir mér þegar ég kom heim. Ég hlustaði á þau og skildi lengi vel ekki hvað var í gangi en svo rann upp fyrir mér að maðurinn á símanum taldi sig greinilega vera að hafa samband við einhverja konu sem hann hafði fengið númerið hjá gegnum einhverja vefsíðu, hvort sem það var einkamál.is eða eitthvað annað. Maðurinn byrjaði á að telja upp einhverja kosti sína en svo urðu skilaboðin smátt og smátt - tja - persónulegri, skulum við segja - og þegar hann fór að lýsa einhverjum ytri líffærum sínum nennti ég ekki að hlusta lengur. En hann hafði byrjað á að segja fullt nafn sitt og aldur. Ég fletti honum að gamni upp í þjóðskrá og hann reyndist tíu árum eldri en hann hafði gefið upp. Spurning hvort aðrar upplýsingar sem hann gaf um sjálfan sig (og ytri líffæri) hafa ekki verið álíka nákvæmar.
Nanna Rögnvaldardóttir, 2.1.2008 kl. 18:43
Hef eiginlega aldrei skilið "aldurskomplexa". Hlakka bara til að verða hrokafullt gamalmenni og angra sem flesta bloggmenn og konur.
Mundi aldrei þora í sturtu með svona hroðalega ljóshærðum og hvíttenntum manni, allavega ekki að beygja mig eftir sápunni.
Bold..... you know.
Þröstur Unnar, 2.1.2008 kl. 19:16
Þú er dásamleg Gurrí mín alltaf skaltu fá mann til að hlæja. Þú ert svo sannarlega gleðigjafi.
Kristín Katla Árnadóttir, 2.1.2008 kl. 19:37
Gleðilegt nýtt ár
Svala Erlendsdóttir, 2.1.2008 kl. 19:42
Hehe, prófaðir þú ekki ungu strákana, það kallast klikkuð sjálfstjórn
Prakkarastelpa (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 20:52
BÓLDið er æðislegt.... maður missir úr alveg marga mánuði en samt veit maður nákvæmlega hvað er að gerast.. I luv it...
Friður!
Signý, 2.1.2008 kl. 21:17
Sæl Gurrí og gleðilegt ár! Það var Blod-bloggið þitt sem fyrst vakti athygli mína á þessum þáttum, þökk sé þér ævinlega. Þvílíkt og annað eins hefur ekki fyrr ratað fyrir augu mín og er mér satt að segja stórlega til efs að jafnoki finnist á þessari jörð. Það sem fólkið getur grátið í hverjum þættinum af öðrum og svo, eins og hendi sé veifað, er það búið að skipta um maka, þó ævinlega innan sömu fjölskyldunnar. En aldrei er neinn hamingjusamur nema í mesta lagi einn þátt, þá þarf að búa til meira drama og gráta svolítið meira - gaman, gaman! Og þetta að láta fólk rísa upp frá dauðum eins og ekkert sé er líka mjög spes, fyrst Taylor og svo núna Felicia. Og kannski fleiri sem ég hef ekki vitað af ...
En ég vona að nýja árið verði þér gjöfult og gæfuríkt og að bannsett bakveikin hætti að plaga þig.
Vilborg Valgarðsdóttir, 2.1.2008 kl. 21:37
Ég vil taka undir orð þín um gleðigjafann Andra Bachman. Ég kynntist honum fyrir mörgum árum þegar ég vann á auglýsingastofu og hann var auglýsingasafnari á Tímanum og síðar Helgarpóstinum. Sannnefndur gleðigjafi.
Jens Guð, 2.1.2008 kl. 22:29
Maður kemur ekki að tómum kofanum hjá þér bloggvinur kæri
Linda Lea Bogadóttir, 2.1.2008 kl. 22:33
boldið er allsvakalegt, ætli þetta endi einhvern tímann ??
þyrfti að næla mér í völvuvikuna... kannski í fyrramálið bara ?
góða helgi
Hulda (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 23:26
Ég er nú líka bara rétt rúmlega þrítugur!!
Mummi Guð, 2.1.2008 kl. 23:51
Heheheh, ekki séns að ég kalli mig tæplega fimmtuga fyrr en 12. ágúst nk og þá kannski kl. 19.50. Þá eru fjórar mínútur í stóru stundina. Þangað til verð ég rúmlega fertug, ekki spurning.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.1.2008 kl. 00:00
Guðrún Jóhannesdóttir, 3.1.2008 kl. 00:34
hehe ég fékk eitt svona jólakort núna. Þekki ekki börnin og ekki heldur fólkið sem skrifar undir. Samt var umslagið kyrfilega merkt mer og Bretanum.
meilí meilí
Jóna Á. Gísladóttir, 3.1.2008 kl. 00:43
Sumir hafa ótrúlega gaman af að senda fólki hrekkjujólakort. Minnir mig reyndar á að ég er með jólakort uppí hillu sem einhver fjölskylda á. En býr hjá mér. Kannski íbúarnir í álfasteininum hér úti í garði. Gleymdi að gera ráð fyrir þeim möguleika...hmm
Brynja Hjaltadóttir, 3.1.2008 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.