12.2.2008 | 15:48
Nýtt tryllitæki í himnaríki ... bróðir Jónasar!
Læknirinn, sem reyndist vera ung, hress pólsk kona, hlustaði mig í morgun og kvað upp dóm sinn: Þú ert með bronkítis og þarft að fara strax á lyf, svo mæli ég líka með því að þú horfir daglega á Bold and the Beautiful. Hérna færðu fljúgandi Vetnolin-disk til að fara í flugferð þegar hóstinn er að drepa þig ... og svo svona Augmentin-pillur (aukmenntunþína) til að gera þig gáfaðri ... eins og það sé hægt! Nú skellihló góði læknirinn og ákvað að gleðja mig enn meira með því að segja mér að fara í blóðprufu í fyrramálið.
Innöndunarúðadiskurinn er eins og smækkuð mynd af Jónasi ryksuguróbót og verðið eftir því. Eins gott að hann geti a.m.k. þurrkað af í himnaríki. Tækninni hefur fleygt svo fram síðan ég fékk púst síðast að það kæmi mér hreinlega á óvart ef hann hefði ekki fleiri hæfileika ...
Nokkur bið var á læknastofunni en ég náði þó að fá mér guðdómlega sveppasúpu í Skrúðgarðinum áður en ég þusti inn til Betu í sjúkraþjálfun. Sjúkrahúsið er skáhallt á móti sjúkraþjálfuninni og sjúkraþjálfunin er við sömu götu og Skrúðgarðurinn, gæti ekki verið hentugra. Meira að segja ástkær Einarsbúð í mínútufjarlægð.
Læknirinn réðst ekki á mig með ógeði og óbeit þegar ég minntist varlega á reykingar og þá löngun mína til að fara að hætta, heldur sagði að það væri ekkert nema flott hjá mér að hætta ... strax eða sem allra fyrst. Hún sagði mér frá lyfi sem hefði snilldaráhrif á reykingafólk og væri ekki geðlyf sem breytti persónuleikanum, nema bara því sem tengdist þessum sið/ósið ... Í apótekinu ákvað ég að geyma til næstu mánaðamóta að innleysa það, hver getur reitt fram 25.000 kall bara sisona? Ja, ekki ég. Lét mér nægja í dag að efla kostnaðarvitund mína gagnvart íslenska heilbrigðiskerfinu upp á tæpar 10 þúsund, reyndar með smádassi af baðbombum og munnhitamæli með, bara til að bjarga geðheilsunni. Það er ótrúlega frábær dægradvöl að dunda sér við að lesa af kvikasilfursmæli sitjandi í freyðibaði ... ekki satt?
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 25
- Sl. sólarhring: 38
- Sl. viku: 659
- Frá upphafi: 1506012
Annað
- Innlit í dag: 21
- Innlit sl. viku: 533
- Gestir í dag: 19
- IP-tölur í dag: 19
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Til hamingju með diskinn. Mig vantar að vísu 12 manna sett. Og helv.er dýrt að hætta mar.
En Dorodda hefur mjúkar hendur, það veit ég.
Þröstur Unnar, 12.2.2008 kl. 15:54
Trúi þessu ekki !!!! Virkilega meira BOLD í vændum :(
Er þessi læknir´bréfa skóla genginn, eða?
Alveg hissa að hún (Læknarinn) hafi ekki látið þig líka fá ávísun á vasageislaspilara og headsett ásamt geisladisk sem inniheldur ,,anda inn, anda út, anda inn, anda út anda ........ ''
Kveðja úr óbojvogi
Kjartan Pálmarsson, 12.2.2008 kl. 15:58
Bróðir Jónasar?? mér datt nú allt í hug annað en lyf, en þeir eru líkir það er satt. Sagði ég þér ekki í gær að þú þyrftir bara lyf og hvíld?? fara vel með sig stelpa.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 15:58
Sko, Þröstur, það kostar ekki 25.000 að fá þessi lyf, heldur 15.000! Ég hefði getað sloppið með 5.000 og leyst hitt út seinna ... en þetta er reyndar þriggja mánaða skammtur, skildist mér og það er ekki mikið að borga 5.000 á mánuði. Með hinu dótinu var þetta orðið svolítið dýrt ...
Kjartan, ég var bara að plata, elskan! Ég þarf ekki að horfa á þetta EN ... fótbolti og boldið=sjónvarpsefnisjöfnun. Má ekki vera of mikill gæi, heldur ekki of mikil skvísa!
Jú, Ásdís, ég verð slök, ekki spurning!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.2.2008 kl. 16:07
Hm svo þú hittir eina sæta! Ég hef heyrt vel af henni látið, gott að þú ert á batavegi - góðan bata Gurrý mín, verðum að fara hittast aftur- knús á þig.
Edda Agnarsdóttir, 12.2.2008 kl. 16:25
Það er ekkert verra en bronkítis og svoleiðis ógeð! Ég er alveg viss um að bróðir Jónasar geti hreinsað til á öðrum stöðum en kannski akkúrat inni á heimilinu
Láttu þér batna fljótt!
kv. frá Vín
Vera Knútsdóttir, 12.2.2008 kl. 16:34
Hjúkket maður eins gott að þú varst að plata! Ég var næstum því farinn að trúa þessu, ekki. :-))
Fær maður þá kannski boldaðar bolta fréttir?
Kjartan Pálmarsson, 12.2.2008 kl. 17:00
Góðan bata og gangi þér vel á pillunum gegn reykingum. Ég er búin að prófa!
Kolgrima, 12.2.2008 kl. 17:19
Leistu bara út lyfið við eyðum hvort sem er 20.000 á mánuði í sígarettur. Ég er reyndar á nefúða nicotíni og er komin með 22 daga núna náði tveimur árum og svona mánuði og vikum og svona.Takk fyri frábært blogg þú ert nú bara alveg frábær.
Áslaug Ásmundsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 19:43
Gurrí er gella "kúl",
ei grenjandi "kjúklingur"
Er "Bold and bjútífúl",
og Bronkitissjúklingur!
En mundu elskan mín, að eftir þessa þrjá mánuði á lyfinu, verður þú að standa á eigin fótum og það hefur unga og fallega pólska læknadaman væntalega sagt þér! Best væri reyndar að þú værir bara sex vikur og hættir svo.
Magnús Geir Guðmundsson, 12.2.2008 kl. 19:51
Láttu zér batna .... zad er dýrt ad vera sjúklingur á Íslandi!
www.zordis.com, 12.2.2008 kl. 22:50
Gurrí flott mynd af þér þarna á ströndinni,myndin hlýtur að hafa verið tekin síðastliðið sumar ,er það ekki.?
jensen (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 23:18
Bara tveir Bold-aðdáendur ég er búin að fylgjast með Bold frá byrjun!!!
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.2.2008 kl. 02:15
Góðan bata góan mín....lyfið virkar ef maður hefur smá vilja með......næ ekki alveg boldinu he he
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 13.2.2008 kl. 08:32
Flott græja! Ryksugar úr þér bronkítisið og virkar örugglega vel með boldinu
Laufey Ólafsdóttir, 13.2.2008 kl. 08:47
Til lukku með vel heppnaða læknisheimsókn. Í gamla daga var fólk með bronkítis bara látið hanga yfir gufu lon og don til að losa um óþverrann, nú eru bara komnar einhverjar geimskipsgræjur. Haldið þið að það sé munur. Láttu þér batna, Gurrí mín.
Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 10:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.