Sumar á bið og hlaupandi feitabolla

Hvasst í MosóAnsi hvasst var á leiðinni frá Skaganum í morgun, við fukum til og frá Kjalarnesinu en hviður voru þó ekki mikið yfir 20 m/sek. Gummi bílstjóri stýrði okkur örugglega alla leið þótt hviðurnar tækju harkalega í á köflum. Á biðstöðinni í Mosó ákváðum við Lilja að sumarið væri á hold. Það var hvasst og kalt og eiginlega komið peysu- og vettlingaveður aftur. Ég lét veðrið þó ekki eyðileggja fyrir mér daginn, ég var nefnilega nýbúin að fatta mér til mikillar gleði að græna kortið mitt dugir akkúrat út þessa viku, eða til 06.06.08,en þá á Bubbi Morthens afmæli og ég byrja í sumarfríi.

Run fatboy runHorfði á mjög skemmtilega breska DVD-mynd í gær, Run Fatboy Run, og hló hástöfum að henni. Hún segir frá öryggisverði nokkrum sem yfirgaf ólétta konu sína við altarið fyrri fimm árum. ... Hann hittir son sinn reglulega og hefur ákaft reynt að vinna aftur hjarta konunnar. Hann fær sjokk þegar hún lendir á alvarlegum séns með öðrum manni. Sá er myndarlegur, í góðri vinnu og stundar ræktina. Hann stefnir meira að segja á að taka þátt í maraþonhlaupi eftir mánuð. Okkar maður, lúserinn, tekur til sinna ráða og ákveður að hlaupa maraþonið ... Ferlega skemmtileg mynd! Mjög fyndin og full af góðum og skemmtilegum leikurum.

Jæja, það verður nóg að gera í dag. Best að halda áfram að vinna. Megi dagurinn ykkar verða frábær og megi þessi ósk verða að áhrínsorðum. Ég er alla vega 50% góð í því, náði Svíaleiknum en klikkaði á ÍA-leiknum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ég skil ekki af hverju þið setjið sumarið á hold hér í Mosó. Hér er 12 stiga hiti þrátt fyrir sólarleysið og hér í skjólinu mínu bærist varla lauf á tré! Mestalla síðustu viku hef ég verið í útiverkum og varla farið í skyrtu, hvað þá peysu! -- Megi ögn skána hjá ykkur á Skaganum sem fyrst -- ég hef megnið af ævi minni horft þangað yfir flóann og séð reykinn liðast úr sementsstrompinum (nema þegar Skagastormurinn hefur hrifið hann með sér jafnóðum!)

Sigurður Hreiðar, 2.6.2008 kl. 11:19

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Já, sumarið er komið á hold. Vonandi verður það komið aftur þegar þú byrjar í fríinu.

Helga Magnúsdóttir, 2.6.2008 kl. 11:22

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Háholtið í Mosó liggur þannig að vindar eiga auðvelt með að blása þar um okkur í biðskýlinu. Þegar systir mín bjó í Arnartanga í Mosó ríkti þar alltaf logn ... og líka í Brattholtinu? Þetta átti alla vega ekki að vera einelti á Mosfellsbæ, elsku SH minn. Ef ég væri hrifnari af gróðri og óhrædd við geitunga væri Mosó draumastaðurinn.  Nei, mín kýs hryssingslegt hafið og sem minnstan gróður.

Væri alveg til í sumar eftir vikuna, Helga, helst fyrr!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.6.2008 kl. 11:45

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sendi þér rokkveðjur og vona að sumarið sé handan við hornið. Sálartetrið mitt þolir ekki mikið meira af vetrarveðri.

Steingerður Steinarsdóttir, 2.6.2008 kl. 12:30

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Varð hugsað til þín í gær, Gurrí mín, þar sem ég var á ferð um þínar slóðir, eða svona næstu bæjum við.  Mærði þig einmitt við samferðafólkið fyrir sniðugheitin, að búa á þessum fallega stað, við ströndina á Skaganum og nota svo stresslausan og ókeypis strfætó til að komast til og frá vinnu í Rvík.

Það var ansi kalt og hvasst í Skorradalnum, en við náðum lokahnykknum í hryllilega spennandi handboltaleiknum á Dússabar í Borgó og gladdi það stráka og stelpur á öllum aldri. (Litum líka við á Sögusetrinu, sem verður bara flottara...)

Varðandi stráka- og stelpupælingar, þá vil ég koma því að framfæri, að þessir þrír kk, sem mættu með kærustunum á frumsýningu Sex and the City í Hásk.bíó sl. föstud.kvöld, ásamt okkur Júffí og heilu fuglabjargi af ca. sjöhundruð öðrum stelpum, eiga sko skilið "karlmennskuverðlaun" vikunnar (-eða Vikunnar ?).

Alvöru menn þar á ferð.  Ekki hræddir við að missa kúlið... 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 2.6.2008 kl. 12:58

6 identicon

Veistu, það var sól og sumarylur í Sagafirðinum þegar ég yfirgaf hann rétt fyrir sjö í morgun  held bara að sumarið sé komið þar ... vonandi

Ragnheiður Ástvaldsdóttir (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 17:55

7 Smámynd: Svetlana

Andskotans rok. Ég þoli það ekki.

ég þarf að sjá þessa mynd, ekki spurning. Góður breskur húmor er það besta...

Svetlana, 2.6.2008 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 180
  • Frá upphafi: 1527540

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 147
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband