Skemmtileg fórn ...

Hilda og ÞóraInga Lára og EllýFórnaði bæði Formúlu og fótbolta í dag fyrir skrepp í sveitina. Mikið var gaman að fara í bíltúr í fjölbreytilegu veðri, sól og rigningu til skiptis, og hitta sumarbúðafólkið. Nú er allt að breytast í sannkallað ævintýraland á Kleppjárnsreykjum. Skrifstofan er að verða voða fín og herbergin hvert af öðru fallegri.

 

                                                     ---- o ---- o ---- O ---- o ---- o ---- 

Annars fólst aðstoð mín helst í því að senda foreldrum tölvupóst með undirbúningslista. Lítið hægt að gera annað, bakið slæmt, eflaust eftir að hafa legið of lengi í rúminu í morgun. Rúmið mitt er Trampólínin prufukeyrðStarfsmannabörnharður húsbóndi, þegar ég vakna þarf ég að fram úr strax, annars verður mér refsað grimmilega. Ég má ekki einu sinni lesa í korter, bara fram úr í hvelli! Hver framleiðir eiginlega svona rúm? 

Þetta var frábær dagur þótt bökunarilmurinn frá Sigurjónu og co í eldhúsinu hafi verið að gera alla brjálaða (úr græðgi). Við fengum nýbakaða volga sandköku í kaffitímanum ... sem bætti fyrir allt. Mikið hlakka ég til að fara aftur um næstu helgi, eða fyrr. Þá verður fyrsti barnahópurinn kominn og mikið, mikið fjör. Mmmm, ég elska sumarbúðirnar (www.sumarbudir.is)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Frábært að Hilda skuli vera búin að koma sér fyrir á Kleppjárnsreykjum. Mun senda henni öll þau börn sem ég heyri af á réttum aldri.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.6.2008 kl. 10:15

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Trúi vel að þetta hafi verið yndislegt.  Alltaf gott að komast út á land og í sveitasælu, ekki hefur félagsskapurinn eða verkefnið skemmt fyrir þér.  Það kemur annar boltaleikur og önnur Formúla.  Hafðu það gott elsku Gurrý. 

Ásdís Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 13:39

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ef eitthvað er að marka hann Úlla minn er Ævintýraland besti staður í heimi. Hann var þrjú tímabil þar seinasta sumarið sitt og vildi helst fara aftur.

Helga Magnúsdóttir, 9.6.2008 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 142
  • Frá upphafi: 1527442

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 126
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband