25.9.2008 | 11:41
Fótósjokk, kaffisjokk, húsfélagsfundur og hinstu orð Eiríks
Þegar Sigurður Mikael, blm á DV, gekk inn í strætó af Sætukarlastoppistöðinni á Skaganum spurði hann mig hvort ég hefði séð DV í dag. Hann var fölur og skömmustulegur þegar þegar hann tjáði mér að flennistór mynd væri af mér við viðtal við Sigþóru um Skaðræðisbrekkuna rétt við Súkkulaðibrekkuna. Hva, af hverju voru þeir að birta mynd af mér? spurði ég sár, enda fann ég á mér að DV-menn myndu velja mynd af mér þar sem ég líkist vélsagarmorðingja (sjá debit- og kredidkort mín). Sigþóra, sem hefur rúllað oftar en tárum tekur niður Skaðræðisbrekkuna, vegkantinn háa hjá stoppistöðinni á Vesturlandsveginum, var á Spáni þegar viðtalið var tekið við hana og því ekki hægt að mynda hana. SM tjáði mér að myndin af mér næði yfir næstum því heila síðu og þá áttaði ég mig á því að ég myndi örugglega virka ógeðslega feit. Ég fölnaði af bræði ... eða hefði gert ef ég hefði ekki haldið í þá veiku von að myndin væri kannski í lagi eða fótósjoppuð vegna skilnings DV-manna. Nei, þetta var fótóSJOKK ... Og svo hef ég ekki kvartað margoft við Strætó bs yfir Skaðræðisbrekkunni ... bara hérna á blogginu. Var kannski ekki nógu skýr í svörum.
Erfið byrjun á degi eftir viðburðaríkan aðalfund húsfélagsins í gærkvöldi ... nótt ... Ég skrifaði undir trúðaðarloforðsþagnareið vegna fundarins og get því miður ekki sagt frá öllu því dásemdarsvínaríi sem viðgekkst þar. Ostur, vínber, Pólverji og súkkulaði kemur við sögu ... Við ákváðum að halda svona fund eigi sjaldnar en einu sinni í viku héðan í frá. Önnur mál voru ekki á dagskrá. Ég get ómögulega munað hvort ég var kosin formaður, gjaldkeri, húsvörður eða ræstitæknir sameignarinnar eftir að hafa boðið mig aftur fram sem ritari.
Fljótlega eftir komu í vinnuna sagði Ragga hjá Séð og heyrt að ég væri greinilega í mikilli þörf fyrir líkamlegt samneyti ... (hvernig hefði hún svo sem átt að vita að ég var á húsfundi í gær), ég hváði, hló hæðnislega og hélt nú ekki, en þá sagði hún að þar sem ég væri í rauðum bol undir svarta jakkanum ... væri það raunin. Svo trítlaði hún yfir sætið sitt, svartklædd og gelluleg og það small í gólfinu undan rauðu hælaskónum hennar. Tobba er líka í þörf, hún er með rautt belti, allt hitt svart. Þá veit maður það.
Kaffibaunirnar kláruðust um níuleytið í morgun og Ragga djöfull stal ómerktum kaffibaunapakka einhvers staðar frammi og nú drekkum við einhvern hryllingsviðbjóð sem hefur ekki þótt nógu gott í vegkantafyllingar í Brasilíu. Hef reyndar ekki þorað að smakka það sá bara að Eiríkur Jónsson hneig niður við kaffivélina. Hinstu orð hans voru: Veit hún Gurrí af þessu? Ég er búin að hringja í Selecta og biðja um neyðarkaffisendingu á vanalega kaffinu okkar (frá Kaffitári) og nú er klukkan farin að ganga 12, ekkert kaffi komið enn. Veit fólk ekki hvað alvöruneyð er?
Vona að elsku Skúli bílstjóri á Skagastrætó fyrirgefi mér fyrir að hafa gleymt tómu kaffipappamáli í sætinu mínu í morgun, ég náði ekki að klára the latte on the stoppistöð og lauk við síðustu dropana inni í vagninum ... Tommi hefði drepið mig fyrir þetta, eða þá Gummi!
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 209
- Sl. sólarhring: 373
- Sl. viku: 901
- Frá upphafi: 1505908
Annað
- Innlit í dag: 168
- Innlit sl. viku: 734
- Gestir í dag: 162
- IP-tölur í dag: 156
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
sael elsku dullan min !!!
Her er bara frábaert vedur ad sjalfsogdu
tu geymir fyrir mig dv er thad ekki ?? Langar ekkert sma til ad lesa thessa frett og vonandi verdur hun til thess ad skadraedisbrekkan heyri sogunni til
Hafdu thad sem allra allra best
Solarkvedja fra Costa del Sol
Sigthora (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 11:49
Ég er farin að sakna Tomma verulega... og hvað varð af ógreidda manninum?
Lára Hanna Einarsdóttir, 25.9.2008 kl. 11:56
Hæ Hæ Gleymmerei hér frá Spáni, Hér er rigning og skýjað, spáð rigningu næstu daga, orðið kaldara.
Kötturinn sefur vært, eftir 2 bjóra, næs líf hjá honum, hiti einn á förnum vegi í morgun, klappaði honum aðeins.
Ég vona að þú fáir kaffisopann þinn, sammála að Kaffi frá Kaffitár er besta kaffið, liggur við að ég láti þá senda mér nokkra pakka, kaffið hér er ódrekkandi.
Kv úr rigningunni á SPáni Gleymmerei
Brynja Dögg Ívarsdóttir, 25.9.2008 kl. 11:56
Innlitksvitt með skellihlátri
Guðrún Jóhannesdóttir, 25.9.2008 kl. 12:10
p.s. á eftir að komast yfir DV
Guðrún Jóhannesdóttir, 25.9.2008 kl. 12:10
Arrrg hvað ég skemmti mér vel hérna.
Hafa þessar kjéllingar endalaust efni á að vera í stanzlausum spánarferðum.
Þröstur Unnar, 25.9.2008 kl. 12:53
Nú er hundadópkonan komin hér aftur sem gleymmér ei :Nú eru það kisurnar.
mmm (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 14:11
Æ, ég hefði kannski átt að hringja í þig í gær og vara þig við. En það var viðtal sem var tekið (ekki tekið?) við þig svo ég hélt bara að þetta væri allt í sómanum.
Helga Magnúsdóttir, 25.9.2008 kl. 14:34
haha, gat ekki annað en hlegið þegar ég kom að "eiríki að hníga niður við kaffivélina"
Hulda (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 15:36
innlitskvitt
Aprílrós, 25.9.2008 kl. 18:39
Ragga djöfull. Ég dey.
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2008 kl. 21:27
Knús knús á þig elskulegust og góða nóttina
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.9.2008 kl. 21:46
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 25.9.2008 kl. 21:49
Gurrí..þú ert ekkert venjulega fyndin kona....það bregst ekki að manni stökkvi bros eða jafnvel hlægi upphátt einn við tölvuna þegar maður les psitlana þína.
Þú ert ein helsta heilsusprauta okkar bloggara...vá hvað ónæmiskerfið hlytur að hafa styrkst hjá þínum fastalesendum!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.9.2008 kl. 12:44
fastalesendum...er þetta ekki skrítið orð??
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.9.2008 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.